Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019
OPIÐ
ALLA H
ELGINA
Seinas
ti séns
að næl
a
sér í m
ögnuð
opnuna
tilboð:)
r-
SÍÐUSTU
DAGAR
TILBOÐA
Mörkin 3 • Reykjavík | Undirhlíð 2 • Akureyri
Vararíkissaksóknari krafðist þess
fyrir Landsrétti í gær, að refsing
Dags Hoe Sigurjónssonar, sem Hér-
aðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í
fyrra fyrir manndráp, yrði þyngd.
Verjandi Dags krafðist hins vegar
sýknu og til vara að refsingin yrði
milduð.
Dagur Hoe var á síðasta ári
dæmdur í 17 ára fangelsi fyrir að
ráðast með hníf að vopni á tvo alb-
anska karlmenn á Austurvelli í
Reykjavík 3. desember 2017. Annar
mannanna, Klevis Sula, lést af sárum
sínum. Hinn særðist einnig en ekki
lífshættulega.
Helgi Magnús Gunnarsson vara-
ríkissaksóknari krafðist þess í gær
að Dagur Hoe yrði dæmdur í 18-19
ára fangelsi fyrir brotin. Lúðvík Örn
Steinarsson, skipaður verjandi
Dags, sagði hins vegar héraðsdóm
rangan og að litið hefði verið framhjá
öllum þeim atriðum sem gætu orðið
skjólstæðingi hans til refsilækkunar.
Við upphaf aðalmeðferðar málsins
í gær voru spilaðar upptökur úr ör-
yggismyndavélum sem sýndu
hversu stuttan tíma atlaga Dags tók,
einungis um 25 sekúndur.
Helgi Magnús sagði útilokað að
mennirnir tveir hefðu ráðist að Degi
að fyrra bragði, þar sem læknir hefði
staðfest að engir áverkar hefðu verið
á líkama hans, utan skurða á hönd-
um eftir eigin hníf.
Réttargæslumaður foreldra Klev-
is Sula gerði kröfu um samtals 20
milljóna króna miskabætur fyrir
þeirra hönd.
Réttargæslumaður hins mannsins
sem fyrir árásinni varð krafðist 2,5
milljóna króna í miskabætur fyrir
hönd skjólstæðings síns.
Saksóknari krefst þyngri
refsingar fyrir manndráp
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sakborningur Dagur Hoe Sigur-
jónsson í héraðsdómi í fyrra.
Verjandi sakborn-
ings krafðist sýknu
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Ákvörðun Icelandair um að lækka
starfshlutfall 111 flugmanna niður í
50% og færa 30 flugstjóra tíma-
bundið í starf flugmanns var ekki
tekin í samráði við Félag íslenskra
atvinnuflugmanna (FÍA). Félagið
fékk þó fregnir af fyriráætlunum
fyrirtækisins, en með tiltölulega
skömmum fyrirvara.
Guðmundur Már Þorvarðarson,
varaformaður FÍA, segist lítið hafa
heyrt frá félagsmönnum sínum en
stefnt sé að því að halda fund með
félagsmönnum í næstu viku. „Ég
held að mannskapurinn sé aðeins
að melta þetta,“ segir Guðmundur.
„Við höfum bara tekið við sömu
upplýsingum og aðrir og eigum svo
eftir að fara yfir stöðuna með fé-
lagsmönnum okkar.“
Ákvörðun Icelandair er tekin
vegna áframhaldandi óvissu og til
að lágmarka áhrif kyrrsetningar
MAX-vélanna á rekstur fyrirtækis-
ins. Í tilkynningu frá Icelandair
kemur fram að fordæmalaus staða
með MAX-vélarnar hafi óhjá-
kvæmilega haft áhrif á áhafnaþörf
félagsins og að félagið hafi þurft að
bregðast við með því að aðlaga
fjölda í áhöfnum flugflotans. Ice-
landair ekki ráð fyrir því að taka
MAX-vélar félagsins til rekstrar
fyrr en í upphafi næsta árs.
Tekur til fimmtungs
flugmanna
Í dag starfa tæplega 550 flug-
menn og flugstjórar hjá Icelandair
og hafa þessar tímabundnu breyt-
ingar sem flugfélagið kynnti í gær
því áhrif á rúman fimmtung flug-
manna félagsins, en áður höfðu
störf yfir 100 flugmanna til við-
bótar þegar tekið breytingum fyrir
veturinn. Félagið greip þó ekki til
uppsagna flugmanna til að mæta
árstíðasveiflum eins og tíðkast
hefur.
Spurður hvort ekki sé um mikið
tekjutap að ræða hjá þeim skerð-
ingin tekur til segir Guðmundur
svo vera. „Þetta er væntanlega
töluverð skerðing á ráðstöfunar-
tekjum þessara einstaklinga. Í ein-
hverjum tilfellum gæti reyndar
verið að þetta nýtist einhverjum,
þar sem oft hefur verið ásókn í að
fara í hlutastörf. En þegar við er-
um komin í svona stóra tölu er
kannski meirihlutinn ekki að sækj-
ast eftir þessu,“ segir Guðmundur
og bætir við að ásókn í hlutastarf
tengist oft barneignum og þess
háttar.
Tekur gildi 1. desember
Að sögn Láru V. Júlíusdóttur
hæstaréttarlögmanns getur vinnu-
veitandi lækkað starfshlutfall
starfsmanna með samþykki eða ef
ákvæði um slíkt er að finna í kjara-
samningi. Að öðrum kosti þarf slíkt
að vera gert með uppsagnarfresti
viðkomandi. Ákvörðun Icelandair
sem tilkynnt var í gær tekur ekki
gildi fyrr en 1. desember 2019 og
stendur yfir í fjóra mánuði. Guð-
mundur segir að engin ákvæði um
lækkun starfshlutfalls sé að finna í
kjarasamningi flugmanna. „Megin-
reglan er að lækkun starfshlutfalls
sé háð samþykki. Það er ekki heim-
ild fyrir einhliða aðgerð sem þess-
ari í kjarasamningum flugmanna,“
segir Guðmundur.
Berglind Hafsteinsdóttir, for-
maður Flugfreyjufélags Íslands,
segist ekki vita til þess að breyt-
ingar verði gerðar á starfshlutfalli
flugfreyja og -þjóna hjá Icelandair.
„Það hafa engar upplýsingar borist
frá fyrirtækinu um hugsanlegar
uppsagnir eða neitt slíkt,“ segir
Berglind.
Einhliða ákvörð-
un um lækkun
starfshlutfalls
Icelandair lækkar starfshlutfall 111
flugmanna í 50% vegna MAX-vélanna
Víkurfréttir/Hilmar Bragi
Icelandair Breytt starfshlutfall
mun gilda yfir háveturinn.Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Samkvæmt upplýsingum okkar eru
áform óbreytt hvað varðar heimsókn-
ina,“ segir María Mjöll Jónsdóttir,
deildarstjóri upplýsingadeildar utan-
ríkisráðuneytisins.
Undirbúningur fyrir heimsókn
Mike Pence, varaforseta Bandaríkj-
anna, til Íslands í
næstu viku stend-
ur nú yfir. Ferða-
plön hans hafa
breyst eftir að
hann þurfti að
hlaupa í skarðið
fyrir Donald
Trump í heim-
sókn til Póllands
um helgina en
María kveðst ekki
hafa fengið upplýsingar um að það
breytti nokkru um Íslandsheimsókn-
ina.
Varaforsetinn er væntanlegur
hingað á miðvikudag. Ekkert fæst
uppgefið um dagskrá heimsóknarinn-
ar annað en það að hann muni sækja
málþing um viðskipti milli ríkjanna
tveggja. Það efnahagssamráð er af-
rakstur fundahalda Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar utanríkisráðherra og
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fyrr á þessu ári.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun Pence auk þess funda
með Guðlaugi Þór í Höfða. Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri mun einnig
hitta varaforsetann við það tækifæri.
Áður hefur blaðið greint frá því að
Pence hafi þekkst boð um að snæða
hádegisverð með Guðna Th. Jó-
hannessyni, forseta Íslands, á Bessa-
stöðum. Heimildir blaðsins herma að
Pence lendi hér að morgni miðviku-
dags og haldi af landi brott síðdegis.
Þar með verður ekkert af fundi hans
og Katrínar Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra, sem verður þann dag á nor-
rænu verkalýðsþingi í Málmey.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins verða hátt í 300 manns í
fylgdarliði varaforsetans og verður
mikil öryggisgæsla vegna heim-
sóknarinnar. Tugir vopnaðra fulltrúa
frá öryggisstofnuninni US Secret
Service munu fylgja Pence á ferðum
hans hér. Öll sérsveit Ríkislögreglu-
stjóra sinnir öryggisgæslu og full-
trúar úr bæði sprengjusveit og flug-
deild Landhelgisgæslunnar verða til
taks. Þá eru sérútbúnar sjúkraþyrl-
ur, af gerðinni Sikorsky UH-60, til
taks í Keflavík.
Búist má við því að sérútbúin öku-
tæki sem varaforsetinn ferðast í verði
flutt til landsins með herflutningavél-
um. Bandaríkjamenn hafa farið fram
á götulokanir í Reykjavík meðan á
ferðum Pence stendur en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er ekki
ljóst hvort af þeim verður.
Ljósmynd/Landhelgisgæsla Íslands
Þyrlur Sikorsky-sjúkraþyrlur verða til taks vegna heimsóknar Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna.
Pence fundar með
Guðlaugi Þór í Höfða
Sérsveit RLS og fulltrúar Secret Service sjá um öryggið
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að bandarískar öryggissveitir vilji
flytja sérþjálfaða sprengjuleitarhunda til landsins. Er þetta til marks um
hve mikil öryggisgæsla verður.
Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir staðfestir í samtali við Morgun-
blaðið að fyrirspurnir þessa efnis hafi borist til Matvælastofnunar. „Það
hafa ekki komið nein formleg erindi en fyrirspurnir frá landbúnaðar- og
utanríkisráðuneytinu.“
Sigurborg segir að innflutningur á hundum sé bannaður en Matvæla-
stofnun geti leyft innflutning að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Eitt af
því er að hundar fari í fjögurra vikna einangrun í Höfnum eða á Suður-
landi. „Það var ekki sótt um undanþágu í þessu tilviki. Ég held að menn
hafi bara verið að kanna hvort skilningur þeirra væri ekki réttur,“ segir
Sigurborg.
Vilja sprengjuleitarhunda
MIKIL ÖRYGGISGÆSLA VEGNA HEIMSÓKNAR MIKE PENCE
Mike Pence