Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019
Fjölbreytt dagskrá er á Akureyrar-
vöku, sem nú stendur yfir. Þessi
bæjarhátíð Akureyringa var sett í
gær og stendur út daginn í dag og
er bryddað upp á mörgu. Opið hús
er í söfnum bæjarins, efnt verður til
útimarkaða víða um bæinn til
styrktar góðum málum. Milli kl. 11
og 14 verður skemmtun í sundlaug-
inni þar sem fram koma hljóm-
sveitir og listamenn.
Vísindin verða í deiglunni í
Menningarhúsinu Hofi milli kl. 13
og 16. Sævar Helgi Bragason segir
þar frá undrum himingeimsins.
Einnig verða sýnd þrívíddarlíkön,
tunglsteinn og aðrir geimsteinar,
sólarsjónauki, þrívíddarprentarar
og margt fleira. Síðdegis verða
opnaðar tvær sýningar í Listasafn-
inu í Gilinu og á sömu slóðum verða
vinnustofur listamanna opnar. Í
verslun Eymundssonar verður
ljóðalestur skálda milli kl. 15 og 18
og skátaskemmtun á Ráðhústorgi.
Á þeim sama stað verður svo lagt
upp í sögugöngu kl. 16 undir leið-
sögn Arnórs Blika Hallmunds-
sonar, sem segir frá húsum og
mannlífi við Brekkugötu, Sniðgötu
og Munkaþverárstræti.
Á tónleikum í Listagilinu sem
herfjast kl. 21 koma fram Bríet, Eik
Haralds, Eyþór Ingi, Friðrik Dór
og Helgi Björnsson. Hljómsveitin
Vaðlaheiðin sér um undirleik. Með-
an á þessu stendur verða byggingar
skreyttar með vídeóverkum og í
kirkjutröppunum verður kveikt á
kertum, sem seld eru til styrktar
tækjakaupum björgunarsveitar-
innar Súlna. sbs@mbl.is
Fjölbreytt Akureyrarvaka
Markaðir, vísindi, ljóðalestur og tónleikar í Listagilinu
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Akureyrarvaka Ljósin verða tendruð í tröppunum við kirkju bæjarins.
Stórtónleikar á Miðbæjartorgi verða
á hátíðinni Í túninu heima, sem er í
Mosfellsbæ nú um helgina. Tónleik-
arnir hefjast kl. 21 í kvöld og þar
koma fram meðal annars Stuðla-
bandið, Katrín Halldóra Sigurðar-
dóttir, Björgvin Halldórsson, Páll
Óskar og Svala Björgvinsdóttir.
Útlit er fyrir góða þátttöku í
Tindahlaupinu, en þar er hlaupið á
nokkur þeirra fjalla sem eru í ná-
grenni Mosfellsbæjar. Boðið er uppá
að hlaupa á 1, 3, 5 eða 7 tinda og þeir
sem stefna á þá alla eru ræstir kl. 9
nú í morgunsárið frá Varmárvelli.
Síðari ræsing er kl. 11. - Frá hádegi
til kl. 14 verður fólk frá deildum ung-
mennafélagsins Aftureldingar í
íþróttahúsinu að Varmá og mun þar
kynna hinar ýmsu íþróttir sem boðið
verður upp á í vetur – auk þess sem
hægt er að fá aðstoð við skráningu
og upplýsingar
Milli kl. 12 og 16 er útimarkaður í
Álafosskvos, þar sem ýmsir lista-
menn munu koma fram. Sömleiðis er
lungað úr degi útimarkaður í Mos-
skógum í Mosfellsdal þar sem má fá-
ýmsar heimaunnar afurðir bænda.
Tónleikar og
Tindahlaup
Bæjarhátíð Mos-
fellinga stendur yfir
Morgunblaðið/Hilmar Gunnarsson
Gaman Mosfellingarnir Ellý Björns-
dóttir, t.v., og Auður Kjartansdóttir.
Um helgina er á
Hvolsvelli svo-
nefnd Kjötsúpu-
hátíð sem er
sumargleði íbúa í
Rangárþingi
eystra. Í dag,
milli kl. 13.30 og
17, er hátíð á
Miðbæjartúninu
á Hvolsvelli þar
sem listamaður
sveitarfélagsins fyrir árið 2019 verð-
ur kynntur. Einnig verður í boði ým-
iss konar sprell og skemmtun fyrir
gesti og gangandi og í markaðstjaldi
má gera góð kaup.
Í gærkvöldi var kjötsúpa á boð-
stólum á ýmsum stöðum. Í kvöld
verður svo brenna og brekkusöngur
við eldfjallamiðstöðina Lava á
Hvolsvelli. Á tólfta tímanum í kvöld
verður svo talið í kjötsúpuballið í
Hvolnum, þar sem hljómsveitin Allt
sér um fjörið.
Kjötsúpan
á Hvolsvelli
Hvolsvöllur Veisla
verður í bænum.