Morgunblaðið - 31.08.2019, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 31.08.2019, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Vandaðir þýskir póstkassar, hengi- lásar, hjólalásar, lyklabox og mælar MIKIÐ ÚRVAL Vefverslun brynja.is Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 Fagmennska í 100 ár Rakamælir tréLaser mælir Loftmælir Rafmagns- og röraskynjari Rennimál Töskuvog Það styttist í að sundhópurinn Marglytturnar leggi í boðsund yfir Ermarsundið. Ráðgert er að hefja sundið frá Dover í Englandi 4. september nk. en það fer þó eftir veðri hvenær lagt verður af stað. Hefur hópurinn tímaramma á sundið til 10. september en áfangastaðurinn er Calais í Frakk- landi. Leiðin er um 34 km löng. Undirbúningur er í fullum gangi. Meðal annars hefur verið gerður samstarfssamningur við Eimskip þess efnis að skipafélagið muni styrkja sundferðina. Munu öll áheit sem safnast renna beint til umhverfissamtakanna Bláa hersins. Í sundhópnum eru Sigrún Þ. Geirsdóttir, Þórey Vilhjálmsdóttir, Birna Bragadóttir, Halldóra Gyða Matthíasdóttir, Sigurlaug María Jónsdóttir og Brynhildur Ólafs- dóttir og skipuleggjendur eru Soffía Sigurgeirsdóttir og Gréta Ingþórsdóttir. Landsmenn geta stutt við Marglyttur í AUR-appinu í síma 788-9966 eða lagt inn á reikning 0537-14-640972, kt. 250766-5219. Styttist í boðsund Mar- glytta yfir Ermarsund Sundhópur Marglytturnar ásamt fulltrúum Eimskips við undirskrift samstarfssamnings í vikunni. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamála- ráðherra, heim- sótti Bryndísi Hlöðversdóttur ríkissáttasemj- ara í vikunni. Fóru þau yfir stöðu þeirra að- gerða sem heyra undir félags- málaráðuneytið í tengslum við lífs- kjarasamningana frá því í vor, að því er segir í tilkynningu frá ráðu- neytinu. Aðgerðirnar snúa m.a. að húsnæðismarkaðnum og félags- legum undirboðum. Vinna við þær er sögð vel á veg komin og munu fjölmörg frumvörp þeim tengd líta dagsins ljós á næsta þingi. Ásmundur Einar lýsti ánægju sinni með störf ríkissáttasemjara í kringum samningana á almennum vinnumarkaði. Félagsmálaráðherra átti fund með ríkis- sáttasemjara Ásmundur Einar Daðason Fjölbreytt dagskrá í tilefni af 40 ára afmæli Seljaskóla í Breiðholti hefst kl. 12 í dag. Farið verður í skrúð- göngu frá íþróttahúsi skólans um nágrennið og þaðan aftur á skólalóð- ina þar sem Magnús Þór Jónsson skólastjóri flytur ávarp. Ýmis skemmtiatriði verða á af- mælishátíðinni. Einnig verður hægt að bregða sér aftur til fortíðar og sjá til dæmis gamlar myndir úr skól- anum sem svo margir hafa stundað nám við. Í dag eru 664 nemendur við skólann í 1.-10. bekk en voru um 1.500 þegar flest var í upphafi, en starfsemi skólans hófst árið 1979. Sem sakir standa og eitthvað fram á næsta ár er nemendum í 6. og 7. bekk skólans kennt í húsnæði Fella- skóla í Breiðholti. Þar kemur til að altjón varð í einni álmu Seljaskóla í maí á þessu ári og aðrir hlutar húss- ins urðu fyrir skemmdum af völdum vatns og reyks, svo húsnæði var ekki notkunarhæft. Viðgerðir standa yfir og er búist við að þeim ljúki í lok árs- ins. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Jakob Fannar Seljaskóli Hátíð í skólanum sem er miðpunktur í mannlífi í Breiðholti. Afmælishá- tíð í Selja- skóla í dag  6. og 7. bekk er kennt í Fellaskóla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.