Morgunblaðið - 31.08.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.08.2019, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulæif MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019 Flottir í fötum Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími 551-3033 Buxur frá NÝ SENDING mikið úrval 31. ágúst 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.23 124.83 124.53 Sterlingspund 151.69 152.43 152.06 Kanadadalur 93.47 94.01 93.74 Dönsk króna 18.438 18.546 18.492 Norsk króna 13.694 13.774 13.734 Sænsk króna 12.756 12.83 12.793 Svissn. franki 126.4 127.1 126.75 Japanskt jen 1.1688 1.1756 1.1722 SDR 170.09 171.11 170.6 Evra 137.52 138.28 137.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.6599 Hrávöruverð Gull 1536.65 ($/únsa) Ál 1723.5 ($/tonn) LME Hráolía 60.48 ($/fatið) Brent ● Rekstrarhagn- aður af starfsemi Rarik nam ríflega 1,2 milljörðum króna á fyrri helmingi þessa árs. Þetta kemur fram í árshluta- reikningi félagsins sem birtur var í gær. Rekstrartekjur stóðu í stað milli ára á meðan rekstrargjöld og afskriftir hækkuðu lítillega, eða um tæp 2%. Rekstrar- gjöld voru þó í samræmi við áætl- anir, en rekstrartekjur undir vænt- ingum. Heildareignir Rarik voru nær 68 milljarðar króna undir lok júnímán- aðar. Eigið fé nam tæplega 43 millj- örðum króna og eiginfjárhlutfallið því um 63%, sem jafnframt er 1% aukn- ing frá áramótum. Hlutdeildarfélag Rarik, Landsnet, hafði jákvæð áhrif á rekstur ársins. Hagnaður félagsins jókst af þeim sökum um 538 milljónir króna sam- anborið við 373 milljónir króna í fyrra. aronthordur@mbl.is Rarik skilaði hagnaði á fyrri árshelmingi Rafmagn Vel geng- ur í rekstri Rarik. STUTT BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Samanlagður hagnaður fasteigna- félaganna Regins, Reita og Eikar, jókst um 100% á fyrstu sex mánuð- um þessa árs séu þeir bornir saman við sama tímabil í fyrra. Samanlagð- ur hagnaður eftir skatt nam 5,5 millj- örðum króna samanborið við 2,8 milljarða króna í fyrra. Hagnaður Regins eftir skatt nam 2,1 milljarði króna, Reita 1,9 og Eikar 1,5. Matsbreytingar fjárfestingar- eigna á fyrstu sex mánuðum ársins, sem endurspegla mat félagsins á virði eignasafnsins, voru hjá félögun- um þremur jákvæðar sem nemur 5,3 milljörðum króna, sem er um 332% aukning á milli ára. Nam matsbreyt- ingin 2,2 milljörðum hjá Regin, 1,8 milljörðum hjá Reitum og 1,3 millj- örðum hjá Eik. Rekstrarhagnaður fyrir mats- breytingu jókst um 13,12% á fyrstu sex mánuðum ársins og nam saman- lagt um 9,8 milljörðum króna miðað við 8,7 milljarða króna á sama tíma- bili í fyrra. Nam rekstrarhagnaður Regins fyrir matsbreytingu 3,2 millj- örðum, Reita 3,9 og Eikar 2,7 millj- örðum króna. Rekstrartekjur félaganna á fyrstu sex mánuðum ársins námu 14,9 millj- örðum króna og jukust þær um tæp 12% en þær voru 13,3 milljarðar í fyrra. Rekstrartekjur Regins námu 4,8 milljörðum króna, Reita 5,8 millj- örðum og Eikar 4,2 milljörðum króna. Óheppilegt fyrirkomulag Að mati Þorsteins Andra Haralds- sonar, sérfræðings í greiningardeild Arion banka, var rekstur fasteigna- félaganna á fyrri árshelmingi í sam- ræmi við væntingar. Þó hafi fast- eignagjöld hækkað mikið í ár og aldrei verið hærri sem hlutfall af leigutekjum. „Við höfum bent á það að fyrirkomulag fasteignagjalda at- vinnuhúsnæðis hafi að okkar mati verið óheppilegt í kjölfar breytingar á aðferðafræði fasteignamatsins árið 2015 og leitt til verulegrar hækkunar á húsnæðiskostnaði fyrirtækja,“ segir Þorsteinn Andri. Í uppgjörum félaganna vöktu rekstrarhorfur félaganna athygli. Eik var við neðri 1% á EBITDA-spá félagsins, og þá voru leigutekjur Regins um 200 milljónum króna und- ir neðri mörkum tekjuáætlunar sem birt var í byrjun árs. Reitir sendu aftur á móti frá sér endurskoðaðar rekstrarhorfur vegna ársins 2019 í ágústmánuði fyrir hálfsársuppgjörið þar sem tekjur voru færðar niður um 200 milljónir króna og rekstrarhagn- aður fyrir matsbreytingu samtals niður um 300 milljónir króna þar sem um 100 milljónum var bætt við hugs- anlega niðurfærslu viðskiptakrafna. Búa sig undir stærra högg Að mati Þorsteins Andra hafa þó skilaboð stjórnenda félaganna verið nokkuð ólík. „Reitir sendu frá sér afkomuvið- vörun þar sem félagið býst við því að fækkun ferðamanna og þyngri rekstrarhorfur í mörgum atvinnu- greinum muni hafa neikvæð áhrif á útleigu og innheimtu viðskipta- krafna. Þannig býst félagið við aukn- um vanskilum eftir því sem líða tek- ur á árið,“ segir Þorsteinn og heldur áfram. „Reginn færði einnig niður sínar afkomuhorfur þó á öðrum forsendum en Reitir. Hvorki stjórnendur Reg- ins né Eikar hafa endurómað skila- boð Reita um að vanskil séu að aukast verulega í sínum rekstri. Þeir tóku hins vegar undir það að vissar atvinnugreinar ættu undir högg að sækja, eins og veitinga- og hótel- rekstur. Það virðist því vera að Reit- ir séu að búa sig undir stærra högg en hin tvö félögin enn sem komið er,“ segir Þorsteinn Andri. Mismunandi skilaboð Í samtali við Morgunblaðið segir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, að félagið þurfi að auka varúð vegna viðskiptakrafna með tilheyrandi áhrif á rekstrarhagnað Reita fyrir árið, ef þau skyldu raungerast. Um 17% af virði eignasafns Reita eru í hótel- og veitingageiranum. „Við erum að sjá að nokkrir stórir rekstraraðilar, sérstaklega innan ferðaþjónustugeirans eru ekki að ná að standa við þær skuldbindingar sem þeir hafa undirgengist hvað varðar leigutekjur,“ segir Guðjón en tekur fram að Reitir hafi ákveðið að hafa tilkynningaskyld frávik frá áætluðum tekjum og rekstrarhagn- aði túlkuð „mjög þröngt“. Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, segist ekki sjá neina vísa að kerfisbundinni aukningu á van- skilum. „Við sjáum ekki þessa aukn- ingu á vanskilum eða auknar líkur á því að við þurfum að afskrifa við- skiptakröfur,“ segir Helgi og bendir á að hlutfall eignasafns Regins í hót- el- og veitingageiranum sé lágt, eða um 11% af virði safnsins. Garðar Hannes Friðjónsson, for- stjóri Eikar segir að það megi sjá á reikningum að vanskilakröfur hafi aukist. „En það er í takti við gang fé- lagsins. Við sjáum ekkert í kortunum sem kallar á það að við höfum þurft að uppfæra áætlanir okkar.“ Mismunandi skilaboð frá stjórnendum fasteignafélaga Morgunblaðið/Árni Sæberg Miðbær Hafnartorg, sem er í eigu fasteignafélagsins Regins, hefur sett sterkan svip á miðborg Reykjavíkur. Fasteignafélögin » Að mati Þorsteins Andra Haraldssonar hjá greiningar- deild Arion banka er best að horfa á rekstrarhagnað fyrir matsbreytingu til þess að átta sig á því hvernig útleiga á at- vinnuhúsnæði er að þróast. » Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nam 3,2 millj- örðum hjá Regin og jókst um 36%, 3,9 ma. hjá Reitum og jókst um 3,7% og 2,7 ma. hjá Eik og jókst um 5,7%.  Tekjur fasteignafélaganna þriggja um 15 milljarðar á fyrstu sex mánuðum „Ég hef ekki talið það skynsamlegt að ríkisfyrirtæki sé að standa í flug- stöðvarrekstri,“ segir Óli Björn Kárason, formaður efnhags- og við- skiptanefndar Alþingis. Vísar hann í máli sínu til fréttar ViðskiptaMogg- ans fyrr í vikunni þar sem greint var frá þreifingum milli íslenska ríkisins og Innviða fjárfestinga slhf. um hugsanlega sölu á hlut í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fram hefur kom- ið að líkur séu á því að lífeyrissjóðir verði fengnir að samningaborðinu sé pólitískur vilji fyrir því að selja Leifsstöð. Að sögn Óla Björns hefur málið margsinnis komið til umræðu, en sala flugstöðvarinnar hefur verið á stefnuskrá Sjálfstæðisflokks í tals- verðan tíma. „Ég tel að það væri skynsamlegt að losa um þessa fjár- muni og nota þá t.d. í samgöngumál. Allt svona tekur tíma en ég er þeirr- ar skoðunar að það ætti að vera löngu búið að þessu,“ segir Óli Björn. ViðskiptaMogginn greindi frá því í síðustu viku að virði rekstrar Leifs- stöðvar gæti legið á bilinu 80-120 milljarðar króna. Með sölu væri þannig hægt að losa um umtalsvert fjármagn ásamt því sem ríkið myndi eftirláta einkaaðilum að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir. „Að mínu mati eru til hæfari og betri aðilar en ríkið sem sjá ættu um flug- stöðvarreksturinn. Fyrst þarf þó að taka ákvörðun um að selja og í fram- haldinu hvernig á að selja. Það þarf að selja aðila sem bæði kann til verka og er tilbúinn að greiða sem hæst verð,“ segir Óli Björn. Spurður hvort ráðgera megi að Leifsstöð verði, að hluta eða öllu leyti, komin í hendur einkaaðila inn- an fárra mánaða kveður Óli Björn nei við. „Ég á ekki von á því að ákvörðun liggi fyrir á næstu mánuð- um. Ef ákvörðun er þó tekin er hægt að losa um eignarhaldið innan tveggja ára,“ segir Óli Björn. aron- thordur@mbl.is Losa eigi um eignarhaldið á Leifsstöð sem allra fyrst  Óskynsamlegt að ríkið sé að stunda flugstöðvarrekstur ● Vöruviðskiptahalli á fyrstu sjö mán- uðum ársins nam 66,4 milljörðum króna. Á tímabilinu voru fluttar út vörur fyrir 385 milljarða króna. Að sama skapi nam innflutningur ríflega 451 milljarði króna. Hallinn er þó umtalsvert minni en í fyrra þegar hann var ríflega 102 milljarðar króna. Ef einungis er litið til júlímánaðar þessa árs voru vöruviðskipti óhagstæð um 19,9 milljarða króna. Það er umtals- vert meira en á sama tíma í fyrra þegar vöruviðskiptahallinn í mánuðinum nam 18,2 milljörðum króna. Neikvæð vöruviðskipti það sem af er þessu ári

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.