Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019 GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is www.gimli.is Við vitum hvað þín eign kostar Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Alls eru 179 manns í framboði fyrir níu flokka í kosningum til lögþings Færeyja í dag, þar af 121 karlmaður og 58 konur. Málefni á borð við hús- næðismál, umhverfismál og gjaldtöku í ferðaþjónustu voru í brennidepli í kosningabaráttunni en minna bar á umræðu um sjálfstæðismálin sem hafa lengi sett mark sitt á færeysk stjórnmál. Fjórir stórir með sex til átta sæti Fjórir stærstu flokkarnir í Fær- eyjum fengu 27 af alls 33 sætum á lögþinginu í síðustu kosningum fyrir fjórum árum. Jafnaðarflokkurinn varð þá stærstur, fékk átta sæti, og formaður hans, Aksel V. Johannesen, 46 ára lögfræðingur, varð lögmaður, eða forsætisráðherra landstjórnar- innar. Flokkurinn er einnig með ann- að af tveimur sætum Færeyja á danska þinginu. Þjóðveldisflokkurinn fékk sjö sæti fyrir fjórum árum og gekk til stjórnarsamstarfs við Jafnaðarflokk- inn og Framsókn. Formaður hans er Høgni Hoydal, sem er 53 ára og hefur verið sjávarútvegsráðherra frá árinu 2015. Flokkurinn er til vinstri og hlynntur því að Færeyjar fái sjálf- stæði frá Danmörku. Fólkaflokkurinn stefnir einnig að sjálfstæði Færeyja. Hann fékk sex þingsæti í síðustu kosningum. For- maður hans er Jørgen Niclasen, sem er fimmtugur og hefur farið fyrir flokknum frá árinu 2007 þegar hann tók við af Anfinn Kallsberg sem var lögmaður Færeyja á árunum 1998 til 2004. Flokkurinn er systurflokkur Íhaldsflokksins í Danmörku og þeir hafa starfað saman á danska þinginu. Fólkaflokkurinn er til hægri í efna- hagsmálum og hefur meðal annars boðað lægri skatta og opinber gjöld. Sambandsflokkurinn er einnig með sex sæti á lögþinginu. Formaður hans er Bárður á Steig Nielsen, sem er 47 ára fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta. Hann lét af embætti fjár- málaráðherra árið 2007 til að stjórna framkvæmdum vegna áforma um að reisa íbúðarhúsnæði í Hoyvík en hætt var við þau vegna fjármálakrepp- unnar um ári síðar. Hann varð for- maður Sambandsflokksins árið 2015 þegar Kaj Leo Johannesen lét af for- mennsku eftir ósigur í kosningum. Eins og nafn flokksins gefur til kynna er hann hlynntur því að Færeyjar verði áfram í danska ríkissamband- inu. Þrír minni með tvö sæti hver Þrír aðrir stjórnmálaflokkar fengu tvö þingsæti hver í síðustu kosn- ingum. Framsókn, flokkur sem klauf sig út úr Fólkaflokknum árið 2011, er undir forystu Pouls Michelsen, sem er 75 ára og ráðherra utanríkis- og viðskiptamála í landstjórninni. Michelsen lýsir Framsókn sem frjáls- lyndum flokki. Hann vill að Fær- eyingar semji við Dani um nýjan samstarfssamning sem veiti Fær- eyjum sjálfstæði. Hann vill þó að Færeyjar haldi áfram samstarfi við Danmörku í öryggis- og peninga- málum, að Færeyingar haldi dönsku krónunni og verði áfram hluti af dönsku krúnunni. Miðflokkurinn er undir forystu Jenis af Rana, 66 ára læknis sem hef- ur átt sæti á þinginu frá 1994. Hann er skilgreindur sem kristilegur mið- flokkur og er andvígur hjónaböndum para af sama kyni og ókeypis fóstur- eyðingum. Írafár varð í Færeyjum þegar Jenis af Rana afþakkaði boð í kvöldverð til heiðurs Jóhönnu Sig- urðardóttur, þáverandi forsætisráð- herra, þegar hún heimsótti Færeyjar í september 2010 ásamt eiginkonu sinni. Hann sagði heimsóknina vera ögrun þar sem hjónabönd samkyn- hneigðra væru „ekki í samræmi við heilaga ritningu“. Sjálvstýri er einnig miðflokkur en frjálslyndur í samfélagsmálum. Hann er hlynntur því að Færeyjar fái sjálf- stæði í áföngum. Formaður hans er Jógvan Skorheim, sem er 37 ára og bæjarstjóri Klaksvíkur. Fellur stjórnin? Auk þessara sjö flokka taka tveir nýir þátt í kosningunum, Færeyja- flokkurinn og Framtakið, en kann- anir benda til þess að þeir fái ekkert þingsæti. Færeyjaflokkurinn hefur boðað aukið frjálsræði í atvinnulífinu og gagnrýnt forgangsröðunina í gangagerð. Framtakið berst fyrir því að kannabis verði lögleyft í lækninga- skyni. Gallup-könnun sem gerð var fyrr í mánuðinum bendir til þess að land- stjórnin missi meirihluta sinn og Jafnaðarflokkurinn og Þjóðveldis- flokkurinn missi eitt sæti hvor. Fólkaflokkurinn verður stærstur, bætir við sig tveimur sætum og fær átta gangi niðurstöður könnunar- innar eftir. Vilja sjálfstæði í áföngum Fyrir kosningarnar til danska þingsins í júní lagði Þjóðveldis- flokkurinn áherslu á sjálfstæðismálin með vígorðinu „Ef ekki núna, hve- nær?“ og sagði að nú væri rétti tím- inn til að lýsa yfir sjálfstæði. Hann missti hins vegar annað sæta Fær- eyja á danska þinginu til Sambands- flokksins og lagði minni áherslu sjálf- stæði í aðdraganda kosninganna til lögþingsins. Flokkarnir sem aðhyll- ast aðskilnað tala nú frekar um að Færeyingar leggi grunninn að sjálf- stæði í áföngum með því að taka við ábyrgð á fleiri málaflokkum og tryggja að þeir verði ekki háðir fjár- framlögum frá Danmörku. Þau nema nú um 6% af fjárlögum Færeyja, að sögn landstjórnarinnar. Fjölgun ferðamanna í Færeyjum á síðustu árum hefur verið á meðal helstu kosningamálanna að þessu sinni. Um 110.000 ferðamenn komu til eyjanna á síðasta ári og þeir voru tvöfalt fleiri en íbúarnir. Um fjórð- ungur þeirra kom frá Danmörku. Meðal annars hefur verið rætt um upptöku gjalda sem erlendir ferða- menn greiði fyrir aðgang að fær- eyskri náttúru en ekki Færeyingar. Íbúum Færeyja hefur einnig fjölg- að í um 52.000 úr 48.000 frá árinu 2013 og skortur á íbúðarhúsnæði hef- ur sett mark sitt á kosningabarátt- una, að sögn blaðamannsins og stjórnmálaskýrandans Inga Samuel- sens. Húsnæðismál og gjaldtaka í ferðaþjónustu í brennidepli  Fjölgun ferðamanna og íbúa setur mark sitt á lögþingskosningar í Færeyjum Ljósmynd/Gunnar Guðmundur Arndísarson Ólafsvaka í Þórshöfn „Bundin er bátleysur maður,“ er færeyskur málsháttur og hér er bátur borinn á þjóðhátíð Færeyja sem haldin er 28. og 29. júlí ár hvert. Lögmaður Færeyja boðaði til kosninga til lögþingsins á Ólafsvökunni. Bárður á Steig Nielsen Jørgen Niclasen Høgni Hoydal Aksel V. Johannesen Íbúar Flórída birgðu sig upp af mat- vælum, vatni og öðrum lífsnauð- synjum og gerðu ráðstafanir til að verja hús sín vegna fellibylsins Dori- an sem stefndi að ríkinu í gær. Hann var skilgreindur sem annars stigs fellibylur en bandarískir veðurfræð- ingar sögðu að hann gæti náð styrk fjögur á Saffir-Simpson kvarðanum. Vindhraði er þá 68 til 80 m/s og sjávarstaða yfirleitt fjórir til sex metrar yfir meðallagi. Ron De- Santis, ríkisstjóri Flórída, lýsti yfir neyðarástandi í öllum sýslum ríkis- ins og hvatti íbúana til að vera með sjö daga birgðir af matvælum, vatni og lyfjum. Gert er ráð fyrir að fellibylurinn komi að strönd Flórída seint á mánudag eða snemma á þriðjudag að staðartíma en veðurfræðingar segja að mikil óvissa sé um hvar hann komi að landi. Donald Trump Bandaríkjaforseti aflýsti fyrirhug- aðri ferð sinni til Póllands vegna óveðursins til að fylgjast með við- búnaði yfirvalda. Gæti orð- ið skæður  Vara við fellibyl Að minnsta kosti þrír lýðræðis- sinnar í Hong Kong voru ákærðir í gær vegna mótmæla við höfuð- stöðvar lögreglunnar 21. júní. Agnes Chow (t.v.) og Joshua Wong (t.h.) voru handtekin, ákærð og síð- an leyst úr haldi gegn tryggingu. Formaður flokks lýðræðissinna, Ivan Lam, var einnig ákærður en hann er ekki staddur í sjálfstjórnar- héraðinu. Einn þingmanna lýð- ræðissinna, Jeremy Tam, var hand- tekinn en ekki var vitað hvort hann hefði verið ákærður. Lýðræðissinnar höfðu fyrir- hugað götumótmæli í Hong Kong í dag en skipuleggjendur þeirra ákváðu að hætta við þau vegna þess að yfirvöld í sjálfstjórnarhéraðinu vildu ekki heimila mótmælin.AFP Ákærð fyrir mótmæli í Hong Kong

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.