Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Snjalltæki eruflestumómissandi, en þau eru einnig viðsjárverð. Á miðvikudag greindi fyrirtækið Apple frá því að stafræni hjálparkokkurinn Siri, sem fylgir snjalltækjum framleið- andans, hefði „deilt“ upp- tökum og samtölum notenda með starfsmönnum. Jafnframt voru birtar nýjar reglur um meðferð á upptökum þannig að starfsmenn megi aðeins hlusta á þær ef notendur hafa fallist á að taka þátt í því að bæta frammistöðu Siri. Þessi tilkynning barst frá Apple eftir að fréttir birtust um að verktakar hefðu hlustað á einkasamtöl notenda þar sem fram komu persónulegar upplýsingar um til dæmis heilsufar. Einnig hlustuðu þeir á samtöl um kaup og sölu á eiturlyfjum og upptökur af notendum í samförum. Forritið Siri snýst um að notandinn gefi skipanir munn- lega. Ýmislegt getur hins veg- ar kveikt á forritinu án þess að það hafi verið ætlun notand- ans. Fyrr í þessum mánuði kom fram að netfyrirtækið Face- book hefði greitt mörg hund- ruð verktökum fyrir að hlusta á og skrifa niður brot úr sam- tölum notenda snjallforritsins Messenger. Í fréttum kom fram að verktökunum hefði verið brugðið við að hlusta á sum samtölin vegna þess að þau hefðu snúist um einkamál, þeir hefðu ekkert fengið að vita um uppruna þeirra, né til hvers ætti að nota þau. Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, sagði í vitnaleiðslu fyrir öldungadeild Banda- ríkjaþings að sú samsæris- kenning væri á kreiki að fyrir- tækið hlustaði á samtöl notenda og notaði í auglýs- ingar og bætti við: „Það gerum við ekki.“ Síðar kom þó fram í skriflegu svari til þingsins að fyrirtækið safnaði samtölum ef notendur hefðu leyft það sérstaklega og notuðu ákveðin forrit í símum sínum eða snjalltækjum. Ekki var þó sagt til hvers upptökurnar væru notaðar. Google er með raddstýrðan þjón. Fyrirtækið hefur sagt að hlé verði gert á því að hlusta á og skrifa niður samtöl við hann í löndum Evrópusam- bandsins vegna persónuvernd- arrannsóknar í Þýskalandi. Netverslunin Amazon býður einnig upp á raddstýrða gervi- greindarþjónustu og nefnist þjónustufulltrúinn Alexa. Samtöl við Alexu eru tekin upp nema notendur óski þess sér- staklega að það verði ekki gert. Snjalltæknin getur þróast af sjálfri sér upp að ákveðnu marki, en í það minnsta enn sem komið er gerist það ekki án þess að mannshöndin komi nærri. Í þeim dæmum, sem lýst hefur verið hér að ofan, er snjalltæknin komin inn á grátt svæði svo ekki sé meira sagt. Í réttarkerfinu eru hleranir við- kvæmt mál og þarf að sýna fram á rækilegar ástæður eigi að hlera samtöl manna. Þegar yfirvöld vilja fá rýmkaðar heimildir til eftirlits og hler- ana kviknar ávallt á viðvör- unarbjöllum. Snúast áhyggj- urnar um að friðhelgi einkalífs verði stefnt í voða. Sennilega er þó meiri ástæða til að hafa áhyggjur af því hvernig fólk umgengst vef- miðla og hvaða upplýsingar það lætur sjálfviljugt af hendi og slóðina, sem það skilur eftir sig á ferðalögum sínum um netið. Þá hefur margfaldlega kom- ið í ljós að öryggi þeirra upp- lýsinga, sem netrisunum er treyst fyrir, er ábótavant. Per- sónulegar upplýsingar hafa iðulega komist í hendur óprúttinna einstaklinga. Þegar fólk notar miðla þess- ara fyrirtækja þarf það að samþykkja skilmála þeirra fyrir notkuninni. Fólk áttar sig ekki alltaf á því bessaleyfi, sem þau taka sér með upplýs- ingar. Reyndin er sú að þau hafa ansi frjálsar hendur. Fyrirtækin keppast við að rækta ímynd sakleysis, en rekstrargrundvöllur þeirra byggist ekki á góðgerðar- starfsemi hvað sem líður fögr- um fyrirheitum. Enn á eftir að ráðast hvert hlutverk raddstýrðra þjóna verður. Nú þegar er hægt að eiga við þá samtöl, spyrja til dæmis um höfuðborgir eða hæð fjalla eða biðja þá að segja brandara. En eiga þeir að virkjast þegar barn grætur eða rúða brotnar? Á lögregla að geta orðið sér úti um heim- ild til að nota gervigreindar- þjónana til hlerana? Spurning- arnar eru margar. Hin nýja tækni getur boðið upp á marg- vísleg þægindi, sem freistandi er að færa sér í nyt. En sá böggull fylgir skammrifi að við það verður neytandinn ber- skjaldaður og lætur af hendi upplýsingar, sem hann getur ekki treyst á að varlega verði farið með. Stóru netfyrirtækin misstíga sig í notk- un raddstýrðrar gervigreindartækni} Hleranir netrisa Í næstu viku kemur þú til Íslands. Þá þurfa þeir sem rödd hafa að nýta sér hana og ákvað ég því að rita nokkur orð um það sem ég vil koma á framfæri við þig í von um að orð mín berist þér. Í fyrsta lagi vil ég nefna að Ísland hefur heilt yfir staðið framarlega í baráttu fyrir kynjajafn- rétti sem og réttindum hinsegin fólks. Það skiptir okkur máli að ríki heimsins virði jafnan rétt fólks, hvaðan sem það kemur og hvernig sem það er. Því vil ég leyfa mér að fordæma hvers kyns skerðingar á rétti hinsegin fólks í heimalandi þínu og brýna fyrir þér að kynna þér betur aðstæður þess. Jafn réttur fólks af öllum stærðum og gerðum, kynhneigð, þjóð- erni og kyni skiptir okkur gestgjafa þína máli og vona ég að við náum að opna augu þín örlítið í þeim málum. Í öðru lagi vil ég nefna réttindi barna á flótta. Bandarísk stjórnvöld hafa hert mjög stefnu sína gegn fólki á flótta á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna og hefur stjórnin nýlega boðað enn frekari hörku gegn þeim. Ég fordæmi þessa stefnu og skora á þig að beita þér gegn frekari sundrun flóttafjölskyldna. Í nýrri skýrslu sem barst Bandaríkjaþingi í sumar segir að þúsundir barna hafi ver- ið aðskilin frá fjölskyldum sínum og eru sum hver týnd öll- um og órekjanlegt hvar þið hafið komið þeim fyrir vegna skorts á faglegum vinnubrögðum. Nú hlýtur þú stöðu þinnar vegna að hafa kynnt þér örlítið hvað það er sem knýr fólk til að yfirgefa heimili sitt og fara með ung börn sín út í fullkomna óvissu. Þetta gerir enginn nema í algjörri neyð og því verður að segjast eins og er að framkoma ykkar í þeirra garð er algjörlega óboðleg með öllu, fjandsamleg litlum börnum, hættuleg og mannskemmandi til langrar framtíðar. Staðfest er að þið ætlið enn að auka við þennan aðskilnað og fordæmi ég það af öllu hjarta og skora á bandarísk stjórnvöld að stöðva þegar í stað þessi mann- réttindabrot. Í þriðja lagi vil ég nefna land okkar og nátt- úru. Nú berast fregnir af því að þið hyggist stórauka viðveru ykkar hér á landi. Þykir mér það nokkuð djarft af ykkur þar sem þið hafið jú ekki tekið til eftir síðustu veru ykkar hér á landi. Það ber ekki vott um mikla mannasiði að mæta hingað á ný án þess að hafa gengið svo frá að jörð sé hér óspillt eftir síðustu dvöl ykkar. Á Langanesi, nánar tiltekið á H-2-herstöð ykkar á Heiðarfjalli, hefur komið í ljós að ástand mála er mun verra en áður var talið. Ný kanadísk rannsókn sýnir að allt svæðið, langt út fyrir úrgangs- og spilliefnahauga ykkar, er mengað hættulegum efnum sem hefur alvarleg áhrif á dýralíf og náttúru. Það er því að lokum algjör grundvallar- krafa að þið hefjist nú þegar handa við tiltekt áður en þið hugleiðið að mæta hingað á nýjan leik. Bið ég íslensk stjórnvöld um að beita sér í þessum efnum. Helga Vala Helgadóttir Pistill Það sem ég vildi sagt hafa, herra Pence Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. helguvolu@gmail.com STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Verði hækkun á skylduið-gjaldi í lífeyrissjóði úr 12%í 15,5%, og heimild til aðráðstafa 3,5% af því í til- greinda séreign, lögfest fyrir allan vinnumarkaðinn, sem stjórnvöld lof- uðu í tengslum við gerð lífskjara- samninganna í vor, getur sú breyt- ing haft veruleg áhrif þrátt fyrir að þessi hækkun nái nú þegar yfir stærstan hluta vinnumarkaðarins. Opinberir starfsmenn hafa um lang- an tíma greitt slíkt iðgjald sem fer í samtryggingu. Lífeyrisréttindi opin- berra starfsmanna falla undir væntanlega löggjöf „og þar með hafa opinberir starfsmenn rétt til að flytja hluta samtryggingar yfir í sér- eign. Sá hópur sem kýs að gera slíkt mun alla jafna hafa lægri trygginga- réttindi“, eins og segir í skýringum fjármála- og efnahagsráðuneytisins um fyrirhugaða löggjöf, sem ætlað er að taki gildi 1. janúar næstkom- andi. Fram kemur í nýrri umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða við áform um lagasetninguna á sam- ráðsgátt stjórnvalda að hækkun skylduiðgjaldsins hefði þau áhrif á sjálfstætt starfandi einstaklinga „að þeim ber að greiða 29% hærra ið- gjald að lágmarki fyrir sjálfan sig í lífeyrissjóð“. Sjálfstætt starfandi þurfa að greiða bæði framlag laun- þega og mótframlag launagreiðanda, sem er 12% í dag. Gunnar Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Almenna lífeyr- issjóðsins, bendir á í umsögn að þessi lagaáform feli í sér að lágmarks- iðgjaldið verði hækkað um 29% í þeim tilgangi að jafna lífeyrisréttindi en í kynningu ráðuneytisins komi ekkert fram um áhrif þessarar hækkunar á áætluð eftirlaun ein- staklinga né um áhrif á hagkerfið í heild. ASÍ og SA sömdu um það í janúar 2016 að hækka skyldutryggingar- iðgjaldið á almenna vinnumark- aðinum í skrefum úr 12% í 15,5%, sem lokið var í fyrra og jafnframt að sjóðfélögum væri heimilt að ráðstafa í heild eða að hluta 3,5% hækkunar- innar á iðgjaldinu til tilgreindrar séreignar. Það er þessi breyting sem lögfesta á fyrir allan vinnumarkað- inn. ASÍ leggur hins vegar áherslu á það í umsögn við áform stjórnvalda að lögfesting þessarar hækkunar og heimild til ráðstöfunar á 3,5% í til- greinda séreign eigi ekki að skerða greiðslur frá almannatryggingum. Samtök starfsmanna fjármála- fyrirtækja eru meðal þeirra sem standa utan heildarsamtaka á vinnu- markaði. Friðbert Traustason, for- maður SSF, gagnrýnir lagaáformin í umsögn og bendir á að skv. tölum Hagstofunnar séu nú um 210.000 einstaklingar á íslenskum vinnu- markaði, en um helmingur þeirra eru félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ. ,,Það eru því um 100.000 ein- staklingar á vinnumarkaði sem ekki eiga aðild að kjarasamningum á vett- vangi ASÍ. Nálægt 50.000 eru félags- menn í stéttarfélögum opinberra starfsmanna en 50.000 eru einyrkjar, sjálfstæðir atvinnurekendur eða eiga aðild að stéttarfélögum utan heildarsamtaka.“ Bendir hann á að í núgildandi kerfi hafi einstaklingar val og sveigjanleika, sérstaklega varðandi frjálsa séreign, ráðstöfun hennar og úttekt. Fyrirhuguð lög- festing megi ekki skaða þann sveigj- anleika og það stríði gegn frjálsum samningsrétti á vinnumarkaði að breyta lögum í þá veru að þau þvingi alla launamenn undir kjarasamninga sem ASÍ-félög gera við sína viðsemj- endur. SSF leggist því alfarið gegn þessum áformum. Í mati ráðuneytsins er gert ráð fyrir að 2-4% starfsmanna njóti ekki þess mótframlags sem til stendur að lögfesta. 29% hækkun iðgjalds sjálfstætt starfandi Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Lífeyrisréttindi Lögfesta á 15,5% lágmarksskyldutryggingariðgjald til líf- eyrissjóða og heimila öllum að ráðstafa 3,5% þar af í tilgreinda séreign. Í umsögn Landssamtaka lífeyris- sjóða segir að með því að lög- binda lágmarksiðgjald í 15,5% megi vænta þess að innheimta iðgjalda verði skilvirkari. Hins vegar er vakin athygli á því að ekki virðist liggja fyrir rýni á hvar þörfin liggur, þ.e. hvort almennt sé þörf á því að hækka skylduið- gjaldið úr 12% í 15,5%. Í umfjöll- un um tilgreindu séreignina seg- ir enn fremur m.a. að óæskilegt sé að flækja lífeyrssjóðakerfið að óþörfu ,,og því spurning hvort raunveruleg þörf sé á því að setja ákvæði um svokallaða til- greinda séreign,“ segir Þórey S. Þórðardóttir framkvæmdastjóri samtakanna. Gunnar Baldvins- son, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, segir að með út- reikningum megi sýna fram á að í mörgum tilvikum geti fyrir- huguð hækkun iðgjalda leitt til þess að eftirlaun verði á mörkum þess að vera of mikil og spyrja megi hvort launþegar væru ekki betur settir með því að fá þessa hækkun frekar í formi launa. Þörf fyrir hækkun? UMSAGNIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.