Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019 Heimsmeistaranum Magn-úsi Carlsen hefur senni-lega fundist nóg komiðþegar hann gerði sitt níunda jafntefli á stórmótinu í St. Louis sem kennt er við aflvaka þess og kostanda, Rex Sinquefield. Jafnteflunum hafði rignt niður og Norðmaðurinn jafn sekur og aðrir í þeim efnum. En hann hristi af sér okið og vann tvær síðustu skákir sínar, í tíundu umferð var Wesley So lagður að velli og í lokaumferð- inni Vachier-Lagrave. Lokaniður- staðan varð þessi: 1.-2. Carlsen og Ding Liren 6½ (af 11) 3.-4. Anand og Karjakin 6 v. 5.-8. Nepomni- achtchi, Caruana, Giri og Mame- dyarov 5½ v. 9.-10. Nakamura og Vachier-Lagrave 5 v. 11.-12. Aronj- an og So 4½ v. Efstu menn tefldu svo styttri skákir um sigurinn. Tveimur at- skákum lauk með jafntefli en síðan vann Ding Liren báðar hraðskák- irnar og telst því sigurvegari Sin- quefield-bikarsins. En Magnús, sem hefur nú teflt 90 kappskákir án taps, eygir þann möguleika að geta slegið við Kínverjanum, sem tefldi nýlega 100 kappskákir í röð án þess að tapa. Í síðustu umferð varð Magnús að vinna með svart. Hann vissi að undir þeim kringumstæðum er það hæpin hernaðaráætlun að ráðast fram strax í byrjun tafls; hann skipaði liði sínu fram á rólegan og yfirvegaðan hátt og beið færis. Nokkrir leikir hans í miðtaflinu eru sérstaklega athyglisverðir: St. Louis 2019; 11. umferð: Maxime Vachier-Lagrave – Magnús Carlsen Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Sneiðir hjá afbrigði Svesnikovs. 3. … g6 4. Bxc6 bxc6 5. d4 cxd4 6. Dxd4 f6 7. O-O d6 8. c4 c5 9. Dd3 Bg7 10. b3 Rh6 11. Rc3 Hb8 12. Bd2 O-O 13. Hae1 Rf7 14. h4 Hb7!? Hróksleikurinn lætur ekki mikið yfir sér en á eftir að koma að not- um síðar. 15. h5 g5 16. Rh2 Re5 17. Dg3 Kh8 18. f4 gxf4 19. Bxf4 Hg8 20. He3 Rc6 21. Df2 f5 22. Rf3 Hvítur átti tvímælalaust að leika 22. exf5 þótt svarta staðan sé lipr- ari eftir 22. … Bxf5. En næsti leik- ur svarts er bráðsnjall. (Sjá stöðumynd) 22. … Bxc3! 23. Hxc3 e5 Opnar fyrir hrókinn á b7 og hyggst svara 24. Bc1 með 24. … f4 og sóknin eftir g-línunni verður ekki stöðvuð. 24. Hd3!? Ekki verra en hvað annað og Magnús kvaðst ekki hafa tekið þenn leik með í reikninginn. Nú strandar 24. … fxe4 á 25. Rxe5! og hvítur vinnur. 24. … exf4 25. Db2+ Hbg7 26. h6 fxe4 27. Hd2 exf3 28. hxg7+ Hxg7 29. Hxf3 Dg5 Þrátt fyrir leppunina eru varnir svarts tryggar og hann er með unnið tafl. Úrvinnslan er fumlaus. 30. Hdf2 Rd4 31. Hxf4 Bf5 32. b4 Be6 33. Hf8+ Bg8 34. bxc5 dxc5 35. Db8 De3 36. Dd6 Dc1+ 37. Kh2 Dg5 38. Dd5 Dh4+ 39. Kg1 De7 40. Dh5 De3 41. Dh4 Re2+ 42. Kh1 Dc1+ 43. Hf1 Rg3+ 44. Kg1 De3+ – og hvítur gafst upp. Pal Benkö Pal Benkö, sem lést hinn 26. ágúst sl., 91 árs að aldri, var mikið í fréttum hér á landi eftir að Stúd- entamótinu í Reykjavík lauk sum- arið 1957. Hann hafði teflt fyrir ungversku skáksveitina en sótti um hæli sem pólitískur flóttamaður. Um haustið hélt hann vestur um haf og varð síðar bandarískur ríkis- borgari. Benkö var frábær skák- maður en samdi einnig ógrynnin öll af skákdæmum og sagan segir að Bobby Fischer hafi veðjað við hann um að honum tækist að finna lausn eftirfarandi dæmis á innan við hálf- tíma – en ekki tekist. Getur þú betur, lesandi góður? Hvítur leikur og mátar í 3. leik. Lausn í næsta pistli. Taplaus í 90 kappskákum Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Pal Benkö t.v. og Boris Spasskí var boðið til dagskrár tileinkaðrar minningu Bobbys Fischers í mars 2018. Hér ræða þeir málin í Ráðhúsi Reykjavíkur. Nýlokið er fundi for- sætisráðherra Norður- landanna hér á landi. Eftir fréttum að dæma var þetta jákvæð og virðuleg samkoma samherja og vina. Eitt aðalviðfangsefni ráðstefnunnar var hlýnun jarðar. Nú á að hætta að tala og taka til hendinni. Markmiðið, metnaðarfullt og göf- ugt, er sett: Árið 2030 skulu Norður- löndin vera sjálfbærasta svæðið í heiminum. Einmitt það sem kjós- endur umræddra ráðherra eru taldir vilja heyra. En Norðurlöndin eru ekki einangrað svæði á hnettinum, heldur hluti, reyndar mjög lítill hluti, hans sem og af lofthjúpnum, sem um- lykur jörðina þannig, að bein áhrif okkar á hann eru vart merkjanleg. Mannfjöldinn á jörðinni er talinn vera um 7.500.000.000 (sjö og hálfur milljarður). Á Norðurlöndum búa um það bil 25 milljónir manna eða ná- lægt 1/300.000, eða einn þrjú hundr- uð þúsundasti af íbúafjölda jarðar- innar, þannig að það þarf fleira að koma til en breyting á lifnaðarhátt- um okkar Norðurlandabúa til þess að draga úr hlýnuninni, svo merkjan- legt sé. Í Skáldamálum Snorra-Eddu er ásinn Þór látinn segja þegar tröll- konan gerði flóðið: Á skal at ósi stemma. Eins er það með hlýnun jarðarinnar. Ef árangur á að nást þarf að stöðva stóru fljótin, sem mestri menguninni valda. Allir vita hvar þau eru, en enginn dirfist að nefna það, vegna pólitískra, hern- aðarlegra og/eða efnahagslegra ástæðna. Lausnirnar, sem nefndar eru, virð- ast fyrst og fremst miðast við að draga úr áhrifum mengunarinnar frekar en að stöðva upprunann: að stífla ósinn. Menn keppast við að inn- leiða rafbíla og er það frábært fyrir okkur Íslendinga, sem gefst tækifæri til þess að aka um á vistvænni inn- lendri orku. En rafbíllinn er ekki lausn fyrir allan fjöldann. Hann er að- eins vistvænn ef hann er hlaðinn með raf- magni sem framleitt er á vistvænan hátt. Mér telst svo til, að það séu aðeins um fimm lönd í Evrópu sem geta boðið upp á vistvæna orku svo nokkru nemi; Aust- urríki, Ísland, Noregur, Sviss og Svíþjóð. Og hvar er aðal- uppspretta meng- unarfljótsins? Jú, hún er hjá stóriðn- aðinum, sem í fæstum tilfellum býr við sjálfbæra orkugjafa. Þar við bæt- ast þarfir heimila milljarða manna, sem ekki eiga kost á öðru en meng- andi orkugjöfum til hitunar, eldunar og lýsingar. Lýðræðiskjörnir stjórnendur nú- tímans eru ekki eins valdamiklir og fyrirrennarar þeirra voru enda oft studdir hervaldi, sem voru þá hinir eiginlegu stjórnendur. Núna virðist það vera fjármagnið sem fer með völdin, kannski meira óbeint. Ráð- endur fjármagns eru einkum bankar, fjárfestingasjóðir, vogunarsjóðir o.s.frv. Þeir hafa allir hið sama mark- mið: að hagnast og auka eignir sínar. Við slík markmið skortir löglega kjörnar ríkisstjórnir oft nauðsynleg vopn til varnar. Baráttan gegn hlýn- uninni verður aðeins unnin með sam- eiginlegu átaki allra jarðarbúa. Stóra vandamálið eru fjárhagslegir hags- munir voldugra ríkja sem hafa ólíkra hagsmuna að gæta, því enginn vill tapa. En almenningur ber líka mikla sök. Iðnaðurinn framleiðir aðeins það sem markaður er fyrir. Og hverjir eru þeir sem kaupa? Jú, almenn- ingurinn. Á skal at ósi stemma Eftir Werner Ívan Rasmusson »Ef árangur á að nást þarf að stöðva stóru fljótin, sem mestri menguninni valda. Werner Ívan Rasmusson Höfundur er eftirlaunaþegi. Björn Sveinbjörnsson fædd- ist 1. september 1919 á Hegg- stöðum í Andakíl, Borg. For- eldrar hans voru Sveinbjörn Björnsson og Margrét Hjálms- dóttir. Björn lauk prófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1939 og frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1945. Á náms- árunum var hann formaður Félags frjálslyndra stúdenta frá 1940-1941 og formaður Orators 1943-1944. Að loknu lögfræðiprófi varð Björn fulltrúi sýslumannsins í Gullbringu- og Kjósarsýslu og var sýslumaður þar og bæjar- fógeti í Hafnarfirði 1956-1966. Árið 1966 stofnaði hann ásamt fleirum lögmannsskrifstofu í Reykjavík og rak hana uns hann var skipaður hæsta- réttardómari árið 1973. Hann lét af því embætti í árslok 1985. Þá sat hann um tíma á Alþingi haustið 1971 sem vara- þingmaður Reykjaneskjör- dæmis fyrir Framsóknar- flokkinn og var í stjórn Lög- mannafélags Íslands 1971-1973. Eiginkona Björns er Rósa Loftsdóttir, f. 13.11. 1930, fyrr- verandi ritari, bús. í Hafnar- firði. Björn átti eina dóttur sem ólst upp í Bandaríkjunum. Björn lést 10.2. 1988. Merkir Íslendingar Björn Svein- björnsson Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ER08 hægindastóll Leður – verð 285.000,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.