Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019 Ég fylgdist ekkert með orkupökkum 1 og 2 en vissi að verð á umframrafmagni hækkaði og einkaaðili hagnaðist vel á að kaupa mæla Orkuveit- unnar. Mest áberandi var að glugga- umslögum með greiðsluseðlum fjölg- aði um helming. Nú þurfti tvö fyrirtæki til að inn- heimta það sem áður gerði ein stofnun. Á greiðsluseðlunum stóð að orkan sem ég keypti væri fram- leidd með kjarnorku og brennslu jarðefnaolíu. Þá skildi ég ekki þetta bull en nú skil ég að þetta var útspekúlerað og miðaðist við að í framtíðinni kæmi allt rafmagn úr orkubanka ESB. Kannski fá þeir sem keyptu aflátsbréfin for- kaupsrétt að grænna rafmagni. Orkupakka 3 (OP3) fylgdist ég vel með eftir að hófust umræður, sem stjórnarflokkarnir kölluðu málþóf, sem þeir tóku ekki þátt í og töfðu þannig störf þingsins. OP3 var frestað í tvo mánuði. Það sem síðan hefur komið fram sýnir að farsælast sé að hafna OP3. Með pakkanum fáum við ekkert. Ekki neitt, en afsölum okkur stjórn á orkuauðlindinni. Í Sviss kjósa íbúarnir oft um þjóðar- og borgarmál. Fyrir at- kvæðagreiðslur eru þeir vel upp- lýstir á hlutlausan hátt um hvað málið snýst. Nú er einn mánuður liðinn frá því ákvörðun um pakkann (OP3) var frestað í tvo mánuði. Ekkert hefur verið gert af hálfu hins opinbera í að kynna fyrir al- menningi á hlutlausan hátt hvað í pakkanum felist. Það er skiljan- legt því fylgi við OP3 mun minka þeim mun meir sem almenn- ingur er betur upp- lýstur um innihald pakkans. Við höfum fyrst og fremst séð og heyrt skoðanir þeirra sem eru með og þeirra sem eru á móti OP3. Rök þeirra sem vilja samþykkja pakkann eru ekki sterk og ótrú- verðug. Þeir hafa haldið fram að OP 3 skipti engu máli. Hvorki fyr- ir okkur né EES. Hvers vegna þá að samþykkja hann? Þeir segja hækkun raforku til heimila og fyr- irtækja neytendavernd og að ekk- ert afsal felist í því að fela EES og þar með ESB yfirstjórn orkumála Íslands. Nýjasta útspilið er að það sé misskilningur að nú sé verið að samþykkja OP3. Hann hafi verið samþykktur fyrir tíu árum. Það sem nú sé í gangi sé bara upp- færsla á pökkum eitt og tvö. Verði OP3 samþykktur munu þeir segja Eftir Sigurð Oddsson » Greinar Arnars Þór Jónssonar eru svo rökfastar og skýrar að þeir sem vilja sam- þykkja OP3 eiga ekkert annað svar en reyna að þagga niður í honum. Sigurður Oddsson Mega þingmenn gefa orku- auðlindina? Að nýloknu Reykja- víkurmaraþoni við upphaf skólaárs er gaman að bera saman hlaupaþjálfun og lestr- arþjálfun. Margt er líkt með þessu tvennu, þar sem undirbún- ingur og árangur helst í hendur. Fáeinar æf- ingar fyrir hlaupið geta komið manni í gegnum það, en eru ekki vænlegar til mikils árang- urs. Þeir sem settu upp og fylgdu þrautreyndri æfingaáætlun upp- skáru betur, hlupu hraðar og fengu meiri ánægju út úr hlaupinu. Í því felast engir töfrar, heldur er þetta rökrétt afleiðing og allir skilja formúluna. Þú uppskerð eins og þú sáir! Yfirfærslan á lestrarþjálfun er heldur engin geimvísindi; því betur sem þú sinnir henni því betri verð- ur árangurinn í lestri! Sannarlega hafa ýmsir þættir áhrif á niðurstöð- una hverju sinni. Hlaupaleiðir eru misjafnar, ýmist hæðóttar eða flat- ar, veður og vindar skipta máli, mataræði, skóbúnaður o.fl. Rétt eins og í lestri, þar sem þyngd texta, leturstærð, birta, þreyta o.fl. hefur áhrif. Æfingin er þó mikil- vægust af öllu, að rækta þá færni barnanna okkar að lesa fyrirhafnar- laust, að skynja og skilja texta á auðveldan hátt svo þau fái sem mesta ánægju og gagn út úr lestri. Líkams- og erfðaþættir hafa líka áhrif, bæði í hlaupi og lestri. Lík- amsbygging hlaupara getur ýmist hjálpað honum eða minnkað lík- urnar á góðum árangri. Rétt eins og lesblint barn þarf að hafa meira fyrir því að lesa en þeir sem ekki eru lesblindir. Ólíkar aðstæður, erfðaeiginleikar eða aðrir þættir breyta ekki þeirri staðreynd að eljusemi og úthald er það sem skil- ar bæði langhlauparanum og les- aranum góðum árangri. Sumir þurfa að leggja meira á sig – stund- um miklu meira á sig – en allir geta Lestrarþjálfun er langhlaup Eftir Heiðrúnu Scheving Ingvars- dóttur og Katrínu Ósk Þráinsdóttur »Hvatningin frá klappliðinu á hliðar- línunni skiptir sköpum, hvort sem þú hleypur í gegnum maraþonbraut eða ert að þjálfa lestrar- færni og skilning. Heiðrún Scheving Ingvarsdóttir Katrín Ósk Þráinsdóttir ergmann islustjórn Berg flytur h Hlökkumtilmorgundagsins! Fundir formanna og flokksráðs Sjálfstæðisflokksins í tilefni af 90 ára afmæli flokksins verða haldnir á Hilton ReykjavíkNordica (Hótel Esju) laugardaginn 14. september. Formannafundurinn hefst kl. 9 ummorguninn. Þar munu formenn aðildarfélaga og ráða flokksins stilla saman strengi sína, fara yfir stjórnmálaviðhorfið, félagastarfið og það sem þar skarar fram úr. Sameiginlegur fundur formanna og flokksráðs hefst kl. 11, en seturétt eiga allir flokksráðsmenn og allir formenn félaga og ráða í flokknum. Afmælishátíð í tilefni 90ára afmælis Sjálfstæðisflokksins Um kvöldið heldur Sjálfstæðisflokkurinn glæsilega afmælishátíð í kjölfar flokksráðs- og formannafundar laugardagskvöldið 14. september, en hún hefst kl. 19:30 á Hilton ReykjavíkNordica. Allir sjálfstæðismenn eru velkomnir til að fagna saman 90 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins. Dúndurfjör þar sem hin goðsagnakennda hljómsveit Stjórnin leikur fyrir dansi á Sjallaballi aldarinnar ásamt valinkunnum gestasöngvurum eins ogBjarnaAra og Stefaníu Svavars aukmagnaðra leynigesta. Hinnmergjaði grínistiBergur Ebbi verður með uppistand, en veislustjóri er Logi Bergmann. Ljúffengar veitingar innifaldar og aðrar veitingar á boðstólum enmiðaverð afar hóflegt. Nánari upplýsingar á xd.is. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN LogiB annast ve urEbbi ugvekju Sjallaball aldarinnar! Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.