Morgunblaðið - 31.08.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 31.08.2019, Síða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019 Frétt mánaðarins er á vefslóðinni: https://www.mbl.is/ frettir/innlent/2019/08/ 18/hafa_sinnt_verk- efnum_vegna_sae- strengs/ Vefútgáfa Morgun- blaðsins þ. 18.8. 2019: „Hafa sinnt verk- efnum vegna sæ- strengs.“ Fréttin er um tvö íslensk al- mannatengslafyrirtæki, KOM og ATON, sem eru í vinnumennsku hjá erlendum fjárfestum, sem ætla að leggja sæstreng milli Íslands og Bretlands. Á heimasíðu breska fyrirtækisins Atlantic Superconn- ection (AS) er íslenskum fjölmiðlum vísað á Friðjón R. Friðjónsson hjá KOM. Ekki þarf að efast um ætlan hins erlenda fyrirtækis, því heima- síðan er prýdd með íslensku lands- lagi og textum um tilgang fyrir- tækisins, þar sem segir m.a. að markmiðið sé að skila sjálfbærri, kolefnisorku frá Íslandi til Bret- lands, eða „Our mission is to deliver sustainable, low carbon energy from Iceland to the UK through world-leading HVDC cable techno- logy and energy infrastructure.“ Friðjón var áður aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar fjármála- ráðherra. Hitt fyrirtækið, ATON, hefur einnig tekið að sér verkefni fyrir er- lenda fjárfesta vegna sæstrengs. Framkvæmdatjóri og annar eigandi er Ingvar Sverrisson. Hann var að- stoðarmaður tveggja ráðherra í ríkisstjórn Samfylk- ingar og Vinstri grænna. Ingvar vildi ekki tjá sig um sæ- strengsmál. Hjá Aton starfar einnig Huginn Freyr Þorsteinsson, annar eigenda fyrirtækisins, hann var aðstoðar- maður Steingríms Joð árum saman. Hjá ATON er einnig Elías Jón Guðjónsson en hann var aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi mennta- málaráðherra. Það er allt lúsugt af aðstoðar- mönnum eða fyrrverandi aðstoðar- mönnum ráðherra í orkupakkamál- inu. Hér hafa verið upp taldir fjórir. Við þá tölu má bæta lögmönnunum Borgari Þór Einarssyni og Diljá Mist Einarsdóttur, sem bæði eru aðstoðarmenn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra. Borgar og Diljá ásamt sex öðrum lögmönnum, birtu þ. 19.6. 2019 grein „Um lagalega óvissu sem fylgir orkupakkanum“. Þar segja lögmennirnir m.a. að „hugar- burður“ sé að óttast bótakröfur þeirra sem ekki fengju að leggja sæstreng. Á eftirfarandi vefsíðu eru fullyrð- ingar um áralangar viðræður milli Breta og Íslendinga um sæstreng sem lesa má á þessari slóð: http://www.atlanticsuperconnec- tion.comSætta Íslendingar sig við ofbeldi einkavæðingar, sem fær fjárstyrk frá ríkisvaldi? Ekki hef ég heyrt því mótmælt að afleiðingar sæstrengs yrði dýrara rafmagn á Íslandi. Svo eru það ráðherrarnir og vinna aðstoðarmannanna sex. Það er augljóst mál að Bretarnir hafa lengi sótt á um lagningu sæstrengs. Málið hefur sennilega ratað á skrif- borð nokkurra íslenskra ráðherra síðasta ártuginn – allavega sem vangaveltur. Greinilegt er að að- stoðarmenn, sumir, hafa heillast nóg, til að fá sér vinnu við að und- irbúa lagningu strengsins. Það eru auðvitað engin landráð þótt flottur ráðherra eins og Bjarni Benediktsson veiti svör í blaða- viðtali í The Telegraph þ. 23.6. 2018 og segir á þá leið að Íslendingar hvetji bresk stjórnvöld til að koma með tilboð í verð á rafmagni um sæ- streng á milli landanna, eða: „Ice- land’s finance minister has called on the UK Government to offer a fixed energy price to enable plans for an undersea electricity cable between the two countries to move ahead.“ Hér eru aðeins kurteislegar ábendingar ráðherrans, ekkert afsal sjálfstæðis eða orkulinda. Það er svo annað mál hvað mikið af áætl- unum eru tilbúið í tölvum í Bret- landi. Og með vitund ráðandi fólks á Íslandi. Í veffrétt Morgunblaðsins frá Times kemur fram að samsteypan AS hefur lagt í 1,5 milljarða króna fjárfestingu vegna sæstrengs til Ís- lands. Áætlaður heildarkostnaður er um 377 milljarðar króna. Bret- arnir yrðu ekki ánægðir með að 1,5 milljarðar ISK sé tapað fé. Fyrir ári lýsti Bjarni Benedikts- son yfir undrun sinni á þrýstingi ESB um að íslensk stjórnvöld inn- leiddu orkupakka 3. Árum saman stóð Steingrímur Joð vaktina gegn orkupökkunum. Nú eru þessir tveir valdamenn í forystu um innleiðingu pakkans. Hvað veldur breyttri stefnu þeirra? Kannanir sýna að meirihluti landsmanna vill hafna orkupakka 3. Samt horfir í að Alþingi muni sam- þykkja pakkann. Það er undarlegt að valdamenn landsins skuli hafa svo einbeittan brotavilja gegn þjóð sinni. Hvað veldur? Er það ávinn- ingur fárra? Sögur ganga af nytsömum sak- leysingjum á Alþingi Íslendinga. Þingmönnum sem hafi sagt: „okkur er sagt að þetta sé allt í lagi“. Ef satt er, hefur þetta fólk fyrirgert rétti sínum. Það er vandasamt að setja lög. Hver sá er á Alþingi situr þarf að leggja sig allan fram. Í þessu máli þarf að leita upplýs- inga um þau öfl, sem hafa áhrif á fjármál innan lands og erlendis. Nota allt sitt vit til að hugsa rök- rétt. Leyfa sér að efast. Líka að efast um að ganga gegn þjóð sinni. Hvenær er refsivert að vera nyt- samur sakleysingi? Þau brot heimilda, sem hér hafa verið tilgreind og framganga Al- þingis vekja grunsemdir. Eru ein- hverjir að selja auðlindir Íslands? Orkupakkinn og frétt mánaðarins Eftir Tómas Ísleifsson » Sögur ganga af nyt- sömum sakleys- ingjum á Alþingi Íslend- inga. Þingmönnum sem hafi sagt: „okkur er sagt að þetta sé allt í lagi“. Tómas Ísleifsson Höfundur er líffræðingur. linekra@simnet.is Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsend- ar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgun- blaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höf- unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendi- kerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkom- andi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfs- fólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.