Morgunblaðið - 31.08.2019, Page 29
MINNINGAR 29Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019
✝ Lilja Sigurðar-dóttir fæddist á
Litla Hóli við Dal-
vík 2. október 1925.
Hún lést á Hrafn-
istu Reykjavík 11.
ágúst 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurður
Jón Guðjónsson,
sjómaður og for-
maður í Mói, Dal-
vík, f. 9. desember
1885, d. 7. janúar 1943, og Anna
Sigurðardóttir, húsmóðir frá
Hæringsstöðum, f. 17. október
1883, d. 7. júní 1971. Lilja var
yngst í röð 11 systkina en hin
eru: Kristján Jón Helgi, f. 1907,
d. 1934, Guðjón Sigurvin, f.
1908, d. 1988, Rósa, f. 1910, d.
1995, Jóhann Sævaldur, f. 1912,
d. 2001, Hallgrímur Friðrik, f.
1913, d. 1967, Jón Kristinn, f.
1915, d. 1992, Sigrún, f. 1916, d.
1996, Albert, f. 1918, d. 2007,
Jakob Þorsteinsson, þeirra
börn: Anna Lilja, Guðbjörg Guð-
rún, Auður og Jakob Símon. 3)
Sigurjóna Margrét, f. 3. júlí
1951, maki Guðmundur Skarp-
héðinsson, þeirra börn: Skarp-
héðinn og Margrét. 4) Tryggvi
Jóhannsson, f. 18. águst 1953,
fyrrverandi maki Ingrid Hagen.
5) Gísli Viðar, f. júlí 1966, hans
sonur: Andri Emil. Barnabörn
Lilju eru 11, barnabarnabörn
eru 24 og barnabarnabarnabörn
eru 5.
Lilja fæddist á Dalvík og ólst
þar upp. Hún var í barnaskóla á
Dalvík og stundaði síðar nám
við Húsmæðraskólann Ósk á
Ísafirði. Lilja starfaði við bóka-
verslun Hannesar á Siglufirði
um skeið. Hún og Sigmann hófu
sinn búskap á Siglufirði. Þau
fluttu síðan til Hríseyjar og
bjuggu þar til 1998. Þá fluttu
þau að Ási í Hveragerði og síðan
á Hrafnistu í Reykjavík og
bjuggu þar til dauðadags. Fyrir
utan það að vera húsmóðir vann
hún við afgeiðslustörf og fisk-
verkun í Hrísey.
Útförin fer fram í Hríseyjar-
kirkju í dag, 31. ágúst 2019,
klukkan 13.
Laufey, f. 1920, d.
1998, Sigurður
Marinó, f. 1922, d.
2010.
Lilja giftist hinn
28. desember 1946
Sigmanni Tryggva-
syni frá Syðri-Vík í
Árskógshreppi, f.
19. september 1917
en Sigmann lést 28.
október 2007. For-
eldrar hans voru
hjónin Tryggvi Ágúst Jóhanns-
son frá Galmarsstöðum í Arnar-
neshreppi í Eyjafirði og Mar-
grét Gísladóttir frá Ytri-Haga í
Árskógshreppi. Börn Lilju og
Sigmanns eru 1) Sigurður
Draupnir, f. 10. maí 1947, maki
Magnea Henný Pétursdóttir,
þeirra börn: Hendrik Pétur og
Hulda Hlín. Fyrri maki Guðrún
E. Aradóttir og þeirra börn:
Anna Sigrún og Lilja. 2) Hanna
Kristín, f. 27. ágúst 1948, maki
Elsku mamma mín. Nú ertu
farin í ferðina löngu eins og ein
frænkan sagði þegar ég sagði
henni frá andlátinu, og erum
við viss um að það eru nokkrir
sem taka vel á móti henni hin-
um megin. Hennar verður sárt
saknað, hún var kletturinn
minn og annarra líka veit ég.
Mamma var fluggáfuð og minn-
ugri en flestir í fjölskyldunni og
voru margir sem höfðu sam-
band við hana til að fá upplýs-
ingar um löngu liðna atburði,
hún mundi flest. Hún fylgdist
vel með afkomendum sínum og
hafði mikinn metnað fyrir
þeirra hönd og var mjög stolt
af sínum.
Hún var afskaplega gjafmild
við alla. Hún kenndi okkur
margt sem við höfum reynt að
hafa að leiðarljósi, svo sem að
bera virðingu fyrir sjálfum sér
og ekki síst öðrum. Hún var af-
skaplega myndarleg til munns
og handa.
Við eigum margar góðar
minningar, svo sem um ferða-
lögin með þeim báðum, henni
og pabba og svo henni einni,
heimsókn til Noregs að heim-
sækja strákana eða til Kanarí í
skemmtiferð og til Ameríku að
heimsækja barnabarn sem þar
býr. Þau höfðu mjög gaman af
að ferðast, fóru í margar ferðir
innanlands með góðum ferða-
félögum. Elsku mamma mín, ég
gæti haldið endalaust áfram því
margs er að minnast, en ég vil
þakka þér fyrir alla þína leið-
sögn í gegnum lífið því þú hef-
ur ávallt verið mín fyrirmynd.
Að endingu vil ég þakka starfs-
fólki á Hrafnistu Reykjavík á
þeim deildum sem sinntu henni
og starfsfólki kaffihússins á
Hrafnistu fyrir góða umönnun
og gott viðmót.
Hún var einstök perla.
Afar fágæt perla,
skreytt fegurstu gimsteinum
sem glitraði á
og gerðu líf samferðamanna hennar
innihaldsríkara og fegurra.
Fáar perlur eru svo ríkulega búnar,
gæddar svo mörgum af dýrmætustu
gjöfum Guðs.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Fyrir hönd systkina,
Margrét Sigmannsdóttir.
Nú er hún elsku tengdamóð-
ir mín, hún Lilja, búin að
kveðja þetta jarðlíf eftir erfið
veikindi undanfarið ár.
Ég veit fyrir víst að hún hef-
ur orðið hvíldinni fegin eftir
erfiða baráttu frá því að hún
veiktist.
Ég er þess fullviss að Sig-
mann, tengdafaðir minn sem
lést árið 2007, stendur á
bryggjusporðinum og tekur á
móti Lilju sinni á öðru tilveru-
stigi, og verða þau þar ham-
ingjusöm ásamt áður gengnum
ástvinum.
Ég er búinn að þekkja Lilju í
hartnær 48 ár, frá því að ég
kom sem ungur maður haustið
1971 útí Hrísey til að kynna
mig fyrir væntanlegum tengda-
foreldrum mínum, Lilju og Sig-
manni, óneitanlega var kvíði í
mér að hitta þau, en sá kvíði
reyndist óþarfur. Mér var ákaf-
lega vel tekið og ekki spillti
fyrir að vera Siglfirðingur en
þangað höfðu væntanlegir
tengdaforeldrar mínir sterkar
taugar, þar höfðu þau hafið
sinn búskap og stofnað sitt
fyrsta heimili og áttu þar sína
vini og skyldmenni. Á þessum
tíma starfaði ég hjá KEA á
Akureyri og var að huga að
breytingum í starfi, en hlutir
æxluðust svo að ég var beðinn
um að fara tímabundið til
starfa hjá útibúi KEA í Hrísey,
yfirmönnum mínum hjá KEA
var kunnugt um tengsl mín við
eyjuna þar sem unnustan væri
þaðan og ætti þar foreldra. Þar
sem að við áttum von á okkar
fyrsta barni var þetta ágætis
úrræði fyrir unga foreldra. Í
Hrísey stofnuðum við Margrét
okkar heimili og ílengdumst
þar í hartnær sex ár. Á þessum
árum í Hrísey voru kynni mín
við tengdaforeldrana mína mik-
il og náin, en aldrei man ég eft-
ir því að þar hafi borið skugga
á frekar en hingað til. Lilja
gekk til allra starfa í Hrísey,
ásamt því að sjá um stórt heim-
ili af þvílíkum myndarskap sem
eiginkona mín hefur ríkulega
erft frá móður sinni, hún starf-
aði bæði í frystihúsinu, versl-
uninni og við það sem til féll í
fámennu samfélagi.
Ég ætla ekki að skrifa neina
lofræðu um hana Lilju, það
væri ekki að hennar skapi né
vilja. En að leiðarlokum vil ég
þakka tengdamóður minni fyrir
góða samfylgd öll þessi ár og
elskulegheitin og umhyggjuna
við okkur, börnin okkar og fjöl-
skyldur þeirra.
Nú er hún Lilja komin í höfn
hjá honum Sigmanni sínum eft-
ir langa gæfuríka ævi, örugg-
lega sátt við sitt lífsskeið sem
hún og afkomendur hennar
mega vera stoltir af.
Að lokum vil ég votta börn-
um þínum og fjölskyldum
þeirra mína dýpstu samúð og
þakka fyrir lánið á Möggu öll
þessi 48 ár, megi góðar minn-
ingar styrkja þau öll í sorginni,
hvíl í friði, Lilja mín.
Þinn tengdasonur,
Guðmundur
Skarphéðinsson.
Amma Lilja. Amma í Hrísey.
Það á eftir að venjast seint að
eiga þig ekki lengur að. Geta
ekki átt við þið spjall um lífið
og tilveruna.
Segja þér frá því hvað á
daga okkar hefur drifið. Hvað
strákarnir mínir hafi verið að
bardúsa.
Þú varst svo áhugasöm um
hagi okkar fjölskyldunnar og
hafðir alltaf verið. Allt síðan ég
var smápatti að skottast í
kringum þig í eldhúsinu á
Austurveginum. Þar var sko
gott að vera.
Þú hlustaðir alltaf. Sýndir
því áhuga sem maður var að
aðhafast og hafði að segja.
Hafðir líka skoðun á og hikaðir
ekki við að deila henni með
manni. En réðst manni líka
heilt.
Þú varst nefnilega hrein-
skiptin. Annað kom ekki til
greina. Það var hluti af ein-
stökum og einlægum heiðar-
leika þínum. Sem var allar göt-
ur þitt aðalsmerki. Þú komst til
dyranna eins og þú varst
klædd.
Varst hrein og bein. Stund-
um þannig að maður áttaði sig
ekki á hvað þú meintir, hvað
þér gekk til og hversu vel þú
vildir fyrr en síðar – þegar á
reyndi og meira vit var komið í
kollinn.
Og þannig vissi maður alltaf
hvar maður hafði þig – og vildi
hafa þig. Gat treyst því að þú
réðir manni ávallt heilt og inni-
lega – án allrar meðvirkni eða
meðaumkunar. Þannig varstu
alltaf.
Svo traust og heiðarleg í öllu
þínum orðum og gjörðum.
Skjól, skjöldur og hlíf. En þú
varst líka hæverskari en aðrir
og hlédrægari. Lagðir þig eftir
að láta sem minnst fyrir þér
fara.
Sem kom litla galgopanum
sem hvarf alltof fljótt suður
svolítið spánskt fyrir sjónir –
satt best að segja.
En eftir því sem árin færð-
ust yfir áttaði hann sig betur á
það var einfaldlega einn af
mörgum mannkostum sem þú
bjóst yfir og lærði vonandi eitt-
hvað, þó ekki nema smáræði af.
En nú ertu horfin á braut,
loksins og sem betur fer búin
að sameinast afa á ný, sem beð-
ið hefur lengi eftir kaffiboll-
anum sínum.
Þú manst vonandi eftir kúm-
enbætinum. Það sefar líka og
færir ró að vita af ykkur sam-
an, umvafin englum, ástkærum
ættingjum og ástvinum, sötr-
andi kaffisopann, að taka í spil;
vist, kana eða jafnvel manna.
Að rifja glaðhlakkalega upp
gamlar og góðar stundir úr
Perlunni góðu.
Takk fyrir allt, amma Lilja.
Kysstu afa Manna frá okkur.
Skarphéðinn.
Lilja
Sigurðardóttir
AKUREYRARKIRKJA | Þakkar-
gjörðarmessa kl. 11. Prestur er
Svavar Alfreð Jónsson. Klassíski kór
Akureyrarkirkju syngur. Organisti er
Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Hversvegna-
messa kl. 11 þar sem farið er í gegn-
um messuliði með útskýringum. Kór
Árbæjarkirkju syngur undir stjórn
Krisztinu Kalló Szkláner og sr. Petr-
ína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn
verður á sama tíma í safnaðarheim-
ilinu í umsjá Önnu Sigríðar Helga-
dóttur og Kristínar Jóhannesdóttur.
Kaffisopi og samfélag eftir stundina.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Sig-
urður Jónsson prédikar og þjónar fyr-
ir altari. Kór Áskirkju syngur. Bjartur
Logi Guðnason leikur á orgelið.
BESSASTAÐAKIRKJA | Vetrar-
starfið í Bessastaðasókn hefst með
fjölskylduguðsþjónustu kl. 11. Læri-
sveinar hans og aðrir leiðtogar safn-
aðarins leiða stundina og gesta-
hljóðfæraleikari að þessu sinni er
Eyþór Kolbeins.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalar-
nesi | Messa í Brautarholtskirkju kl.
11. Notaleg og róleg íhugunartónlist
(Taize). Fermingarbörn vetrarins og
fjölskyldur boðin velkomin. Skrán-
ingarblöð á staðnum. Predikunin
mun fjalla um von og vöxt. Kynning á
Messy Church á Kjalarnesi. Sóknar-
prestur þjónar. Sunnudagaskólinn
hefst 15. september kl. 11 í
Hreppnum.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnu-
dagaskólinn hefst 1. september kl.
11 með fjölskylduguðsþjónustu.
Steinunn Þorbergsdóttir og Steinunn
Leifsdóttir eru leiðtogar og kennarar
eins og undanfarin ár. Sr. Magnús
Björn Björnsson og Örn Magnússon,
organisti, eru þeim til halds og
trausts.
Alþjóðlegi söfnuðurinn. Bæna og lof-
gjörðarstund kl. 14. Prestur er Tos-
hiki Toma. ICB prayer and worship
service at 14. Pastor rev. Toshiki
Toma.
Fundir um fermingarfræðslu kl.
12.30 og 13.30.
BÚSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 20.
Jónas Þórir og félagar úr Kór Bú-
staðakirkju leiða söng. Messuþjónar
þjóna ásamt sr. Pálma Matthíassyni.
Heitt á könnunni eftir messu.
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö.
kl. 8, lau. kl. 16 er vigilmessa á
spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Fjölskyldumessa
kl. 11, upphaf fermingarstarfsins og
sunnudagaskólans. Sr. Sveinn Val-
geirsson og séra Elínborg Sturlu-
dóttir. Kári Þormar dómorganisti og
Dómkórinn. Fundur með fermingar-
börnum og forráðamönnum þeirra.
Messukaffi.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Kvöldguðs-
þjónusta kl. 20. Sr. Ólöf Margrét
Snorradóttir, sr. Sigríður Rún
Tryggvadóttir og sr. Þorgeir Arason
þjóna. Organisti Torvald Gjerde.
Væntanleg fermingarbörn á Héraði
og foreldrar þeirra sérstaklega hvött
til að mæta og boðin til kynning-
arfundar eftir messu.
FELLA- og Hólakirkja | Sunnudag-
inn 1. september hefst barnastarfið
aftur eftir sumarfrí. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Prestur er Guð-
mundur Karl Ágústsson, en með
honum verða Marta og Ásgeir leið-
togar æskulýðsstarfsins.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Hljómsveit kirkj-
unnar leiðir sönginn. Kvöldvaka kl.
20. Upphaf fermingarstarfs. Kór og
hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðs-
þjónusta kl. 14. Séra Hjörtur Magni
Jóhannsson leiðir stundina. Umfjöll-
unarefni: Farísei og tollheimtumaður.
Barn verður borið til skírnar. Hljóm-
sveitin Mantra og Sönghópurinn við
Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunn-
ari Gunnarssyni, organista. Ferm-
ingarbörn og fjölskyldur þeirra eru
hvött til að mæta.
GRAFARVOGSKIRKJA | Þjóð-
kirkjan fagnar upphafi vetrarstarfs-
ins með útvarpsguðsþjónustu frá
Grafarvogskirkju þar sem biskup Ís-
lands, Agnes M. Sigurðardóttir, préd-
ikar. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjón-
ar fyrir altari. Kórar kirkjunnar syngja,
organisti er Hilmar Örn Agnarsson,
stjórnandi barnakórs Grafarvogs-
kirkju er Margrét Pálmadóttir. Hjör-
leifur Valsson leikur á Fiðlu og Þor-
geir Jónsson á kontrabassa.
Sunnudagaskóli verður á neðri hæð
kirkjunnar kl. 11. Umsjón hefur
Þóra Björg og undirleikari er Stefán
Birkisson.
GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ
Í SPÖNG | Fyrsta Selmessan eftir
sumarfrí. Messan er kl. 13. Séra
Guðrún Karls Helgudóttir prédikar
og þjónar. Organisti er Hilmar Örn
Agnarsson og Vox Populi leiðir
söng.
GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Vetrarstarfið kynnt. Organisti
er Ásta Haraldsdóttir, félagar úr
Kirkjukór Grensáskirkju leiða söng-
inn. Sr. María Ágústsdóttir þjónar
ásamt sjálfboðaliðum og starfsfólki
safnaðarins. Fermingarbörn 2020
boðin velkomin ásamt fjölskyldum
sínum. Stuttur fundur eftir guðs-
þjónustu og gott með kaffinu/
djúsnum á eftir. Þriðjudagur: Kyrrð-
arstund kl. 12, samvera með bingói
kl. 13. Fimmtudagur: Núvitund kl.
18.15-18.45, 12 spora kynningar-
fundur kl. 19.15-21.15. Öllum opið.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti
| Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Prestur er Karl V. Matthíasson. Tón-
listarflutningur í umsjá barnakór-
stjóranna Sigríðar Soffíu og Svan-
fríðar Gunnarsdóttur. Þær munu
kynna starf barnakórsins í vetur.
Mömmur, pabbar, afar og ömmur
velkomin. Kaffisopi í boði eftir
messuna. Kirkjuvörður Lovísa Guð-
mundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA |
Messa og sunnudagaskóli kl. 11.
Fyrsti sunnudagaskólinn á þessu
hausti og sér Bylgja Dís og hennar
fólk um fjölbreytta dagskrá,
skemmtilega og uppbyggjandi fyrir
börnin. Foreldrar og afar og ömmur
hvött til að koma með börnum sín-
um. Sr. Þórhildur Ólafs messar. Org-
anisti er Guðmundur Sigurðsson.
Hressing eftir stundirnar.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn
Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Hópur messuþjóna aðstoðar.
Félagar úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngja. Organisti er Hörður
Áskelsson. Dagskrá fyrir börnin í
umsjá Ragnheiðar Bjarnadóttur og
Rósu Árnadóttur. Fermingarbörn og
foreldrar/forráðafólk þeirra eru sér-
staklega boðin velkomin.
Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjudag
kl. 10.30.
Messa miðvikudag kl. 8.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Kordía, kór Háteigskirkju leiðir
messusöng. Organisti Guðný
Einarsdóttir. Prestur Eiríkur Jó-
hannsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Kl.
11 hefst sameiginlegur sunnudaga-
skóli Digranes- og Hjallakirkju með
fjölskyldumessu í Hjallakirkju. Sr.
Karen Lind Ólafsdóttir og sr. Helga
Kolbeinsdóttir æskulýðsprestur sjá
um stundina ásamt leiðtogum
sunnudagaskólans, þeim Bryndísi,
Söru Lind og Höllu Marie. Hoppu-
kastali og kanilsnúðar. Öll börn fá
Kærleiksbókina mína í gjöf frá kirkj-
unni.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Fjöl-
skyldusamvera kl. 13 með áherslu
á dagskrá fyrir alla aldurshópa.
Gleði og gaman, lofgjörð og fyr-
irbænir. Hugleiðing, orð og bæn. At-
hugið að vetrarstarfið hefst form-
lega þennan dag og munu
samkomur framvegis vera á sunnu-
dögum kl. 13. Heitt á könnunni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl.
20 með Vox Felix. Arnór organisti
leiðir þennan ungmennakór í söng.
Fermingarbörn vetrarins og fjöl-
skyldur þeirra eru sérstaklega hvött
til að koma. Sr. Fritz Már og sr. Erla
þjóna.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00.
Sr. Sigurður Arnarson leiðir ásamt
sunnudagaskólakennurum. Mál
dagsins hefst þriðjudaginn 3.
september kl. 14.30.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl.
11, söngur, gildin í lífinu hugleidd
og sunnudagaskóli. Léttur hádegis-
verður í boði. Félagar úr Fílharm-
óníunni leiða sönginn undir stjórn
Magnúsar Ragnarssonar organista.
Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknar-
prestur þjónar ásamt messuþjón-
um og kirkjuverði.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl.
11. Elísabet Þórðardóttir organisti
og Kór Laugarneskirkju leiða
tónlistarflutning. Sr. Hjalti Jón
Sverrisson þjónar fyrir altari og pré-
dikar. Sunnudagaskóli í safn-
aðarheimilinu á meðan. Kaffi og
samvera á eftir.
Þriðjudagur 3. september kl. 20.
Kyrrðarbæn. Kristin íhugun.
LÁGAFELLSKIRKJA | Fögnum
bæjarhátíð í Mosfellsbæ, Í túninu
heima. Guðsþjónusta í Lágafells-
kirkju kl.11. Prestur er Ragnheiður
Jónsdóttir. Þorvaldur Örn Davíðs-
son organisti spilar og stjórnar al-
mennum söng og kórsöng kirkju-
kórs Lágafellssóknar. Meðhjálpari
Hildur Salvör Backman.
LINDAKIRKJA í Kópavogi |
Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl.
20. Kór Lindakirkju syngur undir
stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Dís
Gylfadóttir þjónar.
NESKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Fyrsti sunnudaga-
skóli vetrarins. Söngur, leikur,
sögur. Umsjón hafa: Katrín H.
Ágústsdóttir, Margrét H. Atladóttir,
Gunnar T. Guðnason og Ari Agnars-
son sem leikur undir söng. Í mess-
unni syngur kór Neskirkju og leiðir
söng undir stjórn Steingríms Þór-
hallssonar organista. Prestur er
Steinunn A. Björnsdóttir og um-
ræðuefnið er óvæntar uppákomur í
veislum.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-
Njarðvík | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Baldur Rafn Sigurðsson
þjónar og kirkjukórinn leiðir söng
undir stjórn Stefáns H. Kristins-
sonar organista. Meðhjálpari er
Pétur Rúðrik Guðmundsson.
SALT kristið samfélag | Sameig-
inlegar samkomur Salts og SÍK kl.
17 alla sunnudaga í Kristniboðs-
salnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Barnastarf. Túlkað á ensku.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Óli og Jóhanna leiða
stundina. Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Ólafur Jóhann Borgþórsson predik-
ar, félagar úr Kór Seljakirkju leiða
söng. Organisti: Tómas Guðni Egg-
ertsson. Barn verður borið til skírn-
ar í athöfninni.
SELTJARNARNESKIRKJA |
Söngstund barnanna á bæjarhátíð í
Albertsbúð í Gróttu laugardag kl.
12-12.30. Sveinn Bjarki mætir með
gítarinn. Uppskeruguðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11 í græna
hverfinu á bæjarhátíð. Sóknar-
prestur þjónar. Organisti kirkjunnar
leikur á orgelið og flygilinn. Sveinn
Bjarki, Erla María, Þórdís og Tómas
sjá um sunnudagaskólann. Félagar
úr Kammerkórnum syngja. Kaffi-
veitingar og samfélag eftir athöfn í
safnaðarheimilinu. Grænmet-
ismarkaður til styrktar Innanlands-
aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar.
VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir altari
ásamt fræðurum sunnudagaskól-
ans. Barnakórar Vídalínskirkju
syngja undir stjórn Davíðs Sig-
urgeirssonar og Jóhönnu Guðrúnar
Jónsdóttur. Sjá gardasokn.is.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði
| Guðsþjónusta kl. 17. Kór Víði-
staðasóknar syngur undir stjórn
Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Prestur Bragi J. Ingibergsson. Máls-
verður á 1.000 kr. í safnaðarsal að
messu lokinni.
„Guð stendur gegn
dramblátum en auð-
mjúkum veitir hann
náð.“
(1Pét 5.5b)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Lágafellskirkja í Mosfellsbæ.