Morgunblaðið - 31.08.2019, Síða 39
ÍÞRÓTTIR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019
KÖRFUBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Körfuknattleikskonan Bryndís Guð-
mundsdóttir hefur ákveðið að leggja
skóna á hilluna eftir afar farsælan
feril með Keflavík, KR, Snæfelli,
belgíska liðinu Royal Charleroi og
íslenska landsliðinu en hún er 31 árs
gömul. Hún á að baki 44 landsleiki
fyrir Ísland en gömul krossbandsslit
hafa dregið ákveðinn dilk á eftir sér
og eru ein ástæða þess að hún hefur
ákveðið að leggja skóna á hilluna á
þessum tímapunkti.
„Þetta var erfið ákvörðun að taka
og mann kítlar alveg vel í puttana
núna þegar tímabilið er að fara af
stað,“ sagði Bryndís í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Að sama skapi
þarf maður líka að hugsa um heils-
una enda er hún númer eitt tvö og
þrjú. Ég er með barn og fjölskyldu
og núna fer maður að sinna því.
Núna verður maður heima hjá sér
seinni partinn og notar svo kvöldin í
það að skella sér á leiki og horfa á úr
stúkunni sem verður ágætis til-
breyting. Þó það sé erfitt að kveðja
körfuboltann er kannski kominn
tími á að fara að snúa sér að ein-
hverju öðru og finna sér kannski ný
áhugamál.“
Tvennurnar eftirminnilegar
Bryndís sleit krossband árið 2007
og gáfu læknar henni fimm til fimm-
tán ár í körfuboltanum eftir það.
Hún var í leikmannahóp íslenska
landsliðsins sem tók þátt á Smá-
þjóðaleikunum í Svartfjallalandi í
sumar þar sem Ísland hreppti silfur
en Bryndís fór að finna fyrir
meiðslum í hné í aðdraganda móts-
ins.
„Ég fann mjög lítið fyrir þessum
meiðslum á síðasta tímabili enda
dreifist álagið jafnt og þétt yfir vet-
urinn. Ég fór í myndatöku í janúar á
þessu ári og eftir hana var mér tjáð
af læknum að það væri kominn tími
til þess að huga að því að draga að-
eins úr hlaupunum og álaginu. Dag-
inn áður en við förum svo út á Smá-
þjóðaleikana þá byrja ég að finna
fyrir eymslum í hnénu og þetta
versnaði mikið eftir því sem leið á
keppnina. Það var læknir þarna úti
sem skoðaði myndirnar aftur af
hnénu á mér og eftir samtal við hann
var ákvörðunin um að hætta ekki
erfið heldur meira leiðinleg.“
Ferill Bryndísar er afar glæstur
en sex sinnum hefur hún orðið Ís-
landsmeistari og fjórum sinnum bik-
armeistari. Þá hefur hún átta sinn-
um verið valin í úrvalslið efstu
deildar.
„Það er alltaf gaman að vinna titla
en tímabilið 2010-2011 með Keflavík
var ákveðinn hápunktur. Þegar að
við urðum bikarmeistarar það ár var
ansi langt síðan Keflavík vann þann
titil síðast, sem gerði sigurinn ennþá
sætari fyrir vikið. Við unnum auðvit-
að tvöfalt það ár og urðum Íslands-
meistarar líka þannig að það var frá-
bært ár fyrir mig, sem og tímabilið
2015-2016 með Snæfelli þar sem við
urðum einnig Íslands- og bik-
armeistarar en það var í fyrsta og
eina skiptið sem kvennalið Snæfells
hampar bikarmeistaratitlinum.“
Framtíðin björt í Keflavík
Bryndís eignaðist sitt fyrsta barn
í janúar 2018 og viðurkennir að það
hafi stundum verið erfitt að skipu-
leggja sig á síðustu leiktíð en þrátt
fyrir það er hún sátt með árangur
Keflavíkurliðsins á síðasta tímabili.
„Þetta hefur verið ákveðið púslu-
spil, undanfarin ár, sérstaklega eftir
að maður hætti í skóla og byrjaði að
vinna fulla vinnuviku. Tímabilið í
fyrra gekk vel enda voru æfing-
artímarnir oftast þannig að ég
komst heim í kvöldmat og gat háttað
barnið og komið því í svefninn og
það hjálpaði mikið. Þetta hefði verið
annað ef ég hefði verið á æfingum á
kvöldin og þá hefði þetta eflaust ver-
ið erfiðara. Heilt yfir er ég mjög sátt
með síðasta tímabil þótt það hefði
verið gaman að verða meistarar en
við stóðum okkur mjög vel og annað
sætið á Íslandsmótinu er ekkert til
þess að skammast sín fyrir. Per-
sónulega gekk mér mjög vel að vera
valin í lið ársins, nýkomin úr barn-
eignarfríi, er eitthvað sem ég get
verið mjög stolf af.“
Keflavík fór alla leið í úrslit Ís-
landsmótsins á síðustu leiktíð þar
sem liðið tapaði 3:0-fyrir Val í úrslit-
um. Þá endaði liðið í öðru sæti deild-
arkeppninnar en Bryndís gengur
sátt frá borði og ítrekar að framtíðin
sé björt í Keflavík.
„Ég tel að framtíðin sé björt í
Keflavík og ég vona bara núna að
aðrir leikmenn stígi upp og taki við
keflinu af mér og gerist leiðtogar
innan vallar sem utan. Það er fullt af
leikmönnum í liðinu sem hafa allt til
bruns að bera til þess að vera frá-
bærir leiðtogar fyrir Keflavík um
ókomin ár. Það vantaði aðeins upp á
það hjá okkur í vetur að einhver
væri tilbúin að taka af skarið þegar
mest á reyndi en ég hef mikla trú á
þessum stelpum og óska þeim alls
hins besta,“ sagði Bryndís í samtali
við Morgunblaðið.
Nýtt áhugamál á döfinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sex Bryndís er sexfaldur Íslandsmeistari og fjórfaldur bikarmeistari.
Fimmtán ára körfuknattleiksferill
Bryndísar Guðmundsdóttur á enda
Ásdís Hjálmsdóttir tryggði sér í gær
gullverðlaun í spjótkasti á sænska meist-
aramótinu í frjálsum íþróttum sem fram
fór í Karlstad í Svíþjóð.
Ásdís kastaði 57,49 metra, tæplega
fimm metrum lengra en Anna Wessman
sem varð önnur.
Spjótkastarinn var nokkuð frá sínu
besta í gær, en Íslandsmet hennar í
greininni er 63,43 metrar. Þrátt fyrir
það hefðu öll þrjú köstin hennar á
mótinu dugað til sigurs. Ásdís hefur
lengst kastað 59,27 metra á þessu ári.
Það hefur verið nóg að gera hjá Ásdísi síðustu vikur, en
hún var hluti af íslenska landsliðshópnum sem vann til gull-
verðlauna í Evrópubikar landsliða fyrir þremur vikum.
Krækti í gull í Svíþjóð
Ásdís
Hjálmsdóttir
Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar verða bæði í eldlínunni á
morgun þegar þau hefja leik í fyrstu umferð EHF-bikarsins í
handknattleik.
Haukar taka á móti tékkneska liðinu Talent Plzen á Ásvöllum
á meðan FH heimsækir Belgíu þar sem liðið mætir Visé.
Mótherjar Hauka, sem eru ríkjandi deildarmeistarar, Talent
Plzen, urðu tékkneskir meistarar síðasta vor. Þetta er sjötta ár-
ið í röð sem tékkneska liðið tekur þátt í EHF-bikarnum. Á þess-
um sex árum hefur liðið fimm sinnum fallið úr leik í annarri um-
ferð keppninnar og einu sinni hefur liðið komist áfram í þriðju
umferðina.
Mótherjar FH, Visé, tóku þátt í Áskorendakeppni Evrópu á
síðustu leiktíð þar sem liðið fór alla leið í sextán liða úrslit
keppninnar. Þar féll Vise úr leik fyrir rúmenska liðinu Potaissa
Turda en takist FH að slá Visé úr leik í fyrstu umferðinni mætir
liðið Arendal í annarri umferð keppninnar.
Evrópuslagur í Firðinum
Hlauparinn Patrekur Andrés Axelsson setti í
fyrradag nýtt Íslandsmet í 400 metra hlaupi á
Opna franska meistaramótinu sem nú stendur
yfir í París í Frakklandi. Patrekur kom í mark
á 58,28 sekúndum en hann keppir í flokki T11
(alblindir) þar sem keppendur eru með svo-
kallaðan meðhlaupara sem tryggir að kepp-
andi hlaupi innan sinnar línu. Meðhlaupari
Patreks er Helgi Björnsson, en ekki er langt
síðan þeir byrjuðu að hlaupa saman.
Patrekur setti met í þessari vegalengd fyrir
rúmu ári sem þá var 1:02,80 mínútur og því
hefur hann bætt sig um meira en fjórar sekúndur síðan þá, en
lágmarkið fyrir HM í Dubai sem fram fer í nóvember á þessu ári
er 57,00 sekúndur. Patrekur hefur til 30. september til þess að ná
lágmarkinu.
Setti Íslandsmet í París
Patrekur
Andrés Axelsson
Íslandsmeistarinn Guðrún Brá
Björgvinsdóttir var einu höggi frá því
að fara í gegnum niðurskurðinn á
Scandic PGA-meistaramótinu á LET-
Access-mótaröðinni, þeirri næststerk-
ustu í Evrópu, í Svíþjóð í gær.
Guðrún lék fyrsta hringinn í gær á 71
höggi, einu höggi undir pari, og
stefndi í gegnum niðurskurðinn. Hún
lék hins vegar á 75 höggum í dag og
lauk leik á tveimur höggum yfir pari.
Enski knattspyrnumaðurinn Chris
Smalling er genginn í raðir Roma á
Ítalíu frá Manchester United á láns-
samningi sem gildir út tímabilið. Roma
greiðir United tæpar þrjár milljónir
punda fyrir lánssamninginn.
Smalling hefur leikið 323 leiki með
United síðan hann kom til félagsins frá
Fulham fyrir níu árum. Hann hefur orð-
ið enskur meistari tvisvar og auk þess
unnið bikarinn, deildabikarinn og
Evrópudeildina.
Smalling er fjórði leikmaður United til
að fara til Ítalíu upp á síðkastið.
Romelu Lukaku og Alexis Sánchez
fóru til Inter Mílanó og Matteo Darmi-
an til Parma.
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir lék fyrsta hring sinn á
Cambia Portland-Classic mótinu í golfi
aðfaranótt föstudags, en mótið er
hluti af LPGA-mótaröðinni. Ólafía spil-
aði flott golf og lék á 71 höggi, einu
höggi undir pari vallarins. Hún fékk
þrjá fugla og tvo skolla á hringnum og
var í 68.-103. sæti. Fyrir
annan dag mótsins
miðaðist
niðurskurðarlínan við
tvö högg undir par.
Ólafíu hefur aðeins einu
sinni tekist að komast í
gegnum niðurskurðinn á
þeim átta LPGA-mótum
sem hún hefur tekið þátt
á í ár en þá endaði hún í
74. sæti.
Eitt
ogannað
Morgunblaðið/Eggert
Ferna Rúnar Kárason var atkvæðamikill fyr-
ir Ribe-Esbjerg og skoraði fjögur mörk.
Í gær var dregið í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA.
Nokkur Íslendingalið voru í hattinum og voru helstu
tíðindin þau að tvö þeirra drógust saman í riðil með
Manchester United.
Það voru AZ Alkmaar, lið Alberts Guðmunds-
sonar, og Astana, lið Rúnars Más Sigurjónssonar.
Liðin eru í L-riðli ásamt Partizan frá Serbíu.
Af hinum Íslendingaliðunum eru Jón Guðni Fjólu-
son og lið Krasnodar frá Rússlandi í C-riðli með
Basel frá Sviss, Getafe frá Spáni og Trabzonspor frá
Tyrklandi.
CSKA Moskva, lið Arnórs Sigurðssonar og Harð-
ar Björgvins Magnússonar, er í H-riðli ásamt tveim-
ur andstæðingum sem slógu út íslensk lið. Annars
vegar er það Ludogorets frá Búlgaríu, sem sló út
Val í 2. umferð undankeppninnar, og Espanyol frá
Spáni sem sló út Stjörnuna í sömu umferð. Fjórða
liðið í riðlinum er svo Ferencváros frá Ungverja-
landi.
Arnór Ingvi Traustason og lið Malmö eru í B-riðli
með Dynamo Kíev frá Úkraínu, FC Kaupmannahöfn
frá Danmörku og Lugano frá Sviss. yrkill@mbl.is
Albert og Rúnar
á Old Trafford
Ljósmynd/@EuropaLeague
Eftirvænting Albert Guðmundsson og liðsfélagar
hans í AZ Alkmaar eru á leið til Manchester.