Morgunblaðið - 31.08.2019, Side 40
ÍBV. Við spilum hann fyrst og
sjáum svo til hvernig staðan
verður. En jú, Blikaleikurinn verð-
ur mikilvægur og ég hef verið
mjög spennt fyrir lokakafla deild-
arinnar nú seinni hluta sumars.
Við mætum í leikina með því
hugarfari að vinna. Við erum sam-
stilltar í Valsliðinu hvað það
varðar,“ sagði Elín, en Valsliðið
var ekki í þessari stöðu í fyrra
þrátt fyrir að vera með öfluga leik-
menn. Í síðustu umferðunum í
fyrra átti liðið ekki möguleika á
titlinum. Nú er allt annað uppi á
teningnum.
„Við höfum slípað okkur
betur saman enda höfum
við haft lengri tíma sam-
an. Pétur (Pétursson
þjálfari) hefur fundið rétta
taktinn fyrir liðið og mér
finnst liðsheildin vera orð-
Landsliðskonan Elín Metta Jensen
fékk fjögur M í þremur leikjum í ágúst
ÁGÚST
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Elín Metta Jensen er leikmaður
ágústmánaðar í Morgunblaðinu, en
hún fékk M fyrir frammistöðu sína
með Val í öllum þremur leikjum
liðsins í mánuðinum og alls fjögur
M. Blaðið náði í gær tali af Elínu,
sem nú er í miðju landsliðsverk-
efni og skoraði einmitt tvö mörk
og lagði upp eitt gegn Ungverjum.
Valur er í efsta sæti þegar
þrjár umferðir eru eftir
og á eftir að mæta ÍBV
heima, Breiðabliki úti
og Keflavík heima.
Valur er með 43 stig
og hefur tveggja
stiga forskot á
Breiðablik.
„Ég hef
verið mjög
ánægð
með
okkur í
sumar. Ég
er hrikalega
ánægð með spila-
mennsku liðsins og
vona bara að það
haldi áfram. Enn
eru þrír leikir eftir
og eins og allir vita
er toppbaráttan mjög
spennandi. Við þurf-
um að halda rétt á
spilunum á lokametr-
unum,“ sagði Elín, sem
óttast ekki sérstaklega að
Valsliðið missi taktinn á
meðan gert er hlé á deild-
inni vegna landsleikja. Liðið
spilaði virkilega vel í í síðustu
leikjunum fyrir hlé. „Ég held að
það sé jafn krefjandi fyrir öll lið.
Slíkt getur gerst en leikmennirnir
eru að æfa á fullu meðan á þessu
stendur. Ég held að biðin eftir
næsta leik reyni mest á hjá leik-
mönnum allra liða. Þetta er ekkert
sérstakt áhyggjuefni, held ég.“
Styttist í leikinn í Smáranum
Valur og Breiðablik gerðu 2:2
jafntefli í fyrri umferðinni. Eru
það einu stigin sem Valur hefur
tapað á Íslandsmótinu. Þau mæt-
ast í næstsíðustu umferð á Kópa-
vogsvelli og er sá leikur nánast
eins og bikarúrslitaleikur miðað
við stöðuna í Pepsi Max deildinni.
„Við eigum nú leik fyrst á móti
in mjög góð.
Hún hefur verið
ótrúlega góð í sumar
og með því besta sem
ég hef upplifað hjá Val.
Það skiptir mjög miklu
máli. Við erum já-
kvæðar inni á vellinum
og hrósum hver annarri.
Í liðinu eru sterkir per-
sónuleikar og frábært að
fá Lillý (Rut Hlyns-
dóttur), Guðnýju (Árna-
dóttur) og Öddu (Ásgerði
Stefaníu Baldursdóttur) inn
í hópinn. Ég er mjög ánægð
með þessa viðbót sem við feng-
um ofan á þessa flottu leikmenn
sem voru fyrir.“
Er markahæst
Elín Metta hefur verið mjög
ógnandi í sókninni hjá Val og er
markahæst í deildinni með 15
mörk ásamt samherja sínum Hlín
Eiríksdóttur. Er þetta besta sum-
ar Elínar til þessa á ferlinum? „Já
ég held að þetta sé með betri tíma-
bilum hjá mér. Ég er ánægð með
spilamennsku mína yfir höfuð
og er að nýta færin mín vel.
Mér finnst einnig gaman
að geta lagt upp mörk
fyrir liðsfélaga mína.
Það verður
skemmtilegra
og skemmti-
legra með
aldrinum.
Þetta snýst um að vinna leiki og ef
maður getur spilað liðsfélaga sína
uppi er það ógeðslega gaman. Eins
og í leiknum í gær á móti Ung-
verjalandi naut ég þess að leggja
upp mark fyrir Hlín.“
Engin áform um að
leika erlendis
Elín stundar nám í læknisfræði
við Háskóla Íslands. Það að hún er
að sækja sér góða menntun hér
heima er það væntanlega vísbend-
ing um að hún muni ekki spila með
félagsliði erlendis næstu árin eða
hvað?
„Ég hef ekki verið að velta því
fyrir mér. Til að byrja með vildi ég
byrja í læknisfræðinni og athuga
hvernig gengi að vera í boltanum
samhliða náminu. Ég útiloka svo
sem ekkert en mér líður voðalega
vel í Val,“ sagði Elín Metta Jensen
í samtali við Morgunblaðið.
3-4-3
Lið ágústmánaðar hjá Morgunblaðinu
Pepsi Max-deild kvenna 2019
Kelsey Wys
Selfossi
Ída Marín
Hermannsdóttir
Fylki
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Breiðabliki
Allison Murphy
Selfossi Margrét Björg
Ástvaldsdóttir
Fylki
Katrín
Ómarsdóttir
KR
Elín Metta
Jensen
Val
Kristín Dís
Árnadóttir
Breiðabliki
Guðný
Árnadóttir
Val
Fanndís Friðriksdóttir
Val
Arna Sif
Ásgrímsdóttir
Þór/KA
Fjöldi sem leikmaður
fékk í mánuðinum
5
Varamenn:
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, Þór/KA
Ásta Eir Árnadóttir, Breiðabliki
Lilja Dögg Valþórsdóttir, KR
Dóra María Lárusdóttir, Val
Karólína Jack, HK/Víkingi
Clara Sigurðardóttir, ÍBV
Hlín Eiríksdóttir, Val
2
3
3
2
2
2
2
2
2
2
2
2
3
3
3
3
3
4
Ein besta liðsheild sem
Elín hefur upplifað hjá Val
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019
Það styttist í annan endann
á knattspyrnusumrinu en heilt
yfir hefur þetta sumarið verið hin
mesta skemmtun. Það er ótíma-
bært að fara að veita verðlaun
fyrir allt milli himins og jarðar
enda ennþá spenna á bæði toppi
og botni í efstu deild karla og
kvenna. Lesendur Morgunblaðs-
ins þurfa hins vegar ekki að hafa
áhyggjur, ég mun dæla út mis-
góðum verðlaunum í Bakverði
dagsins, þegar tímabilinu lýkur í
lok september.
Það er hins vegar vert að nefna
að aðeins hafa tvö lið gefið þjálf-
ara sínum rauða spjaldið í sumar.
Karlalið ÍBV lét Pedro Hipólito
fara í lok júní og kvennalið HK/
Víkings rak Þórhall Víkingsson úr
starfi um miðjan júlí. Það er
óhætt að segja að þessar brott-
vísanir hafi gert sama og ekkert,
þar sem liðin sitja bæði pikkföst
á botni úrvalsdeildar karla og úr-
valsdeildar kvenna.
Frá því að Hipólito var látinn
fara frá ÍBV hefur liðið fengið 1
stig úr níu leikjum. Liðið hefur
með öðrum orðum tapað átta
leikjum og gert eitt jafntefli,
gegn KA. Þá hafa Eyjamenn skor-
að sex mörk og fengið á 16 mörk
á sig. Frá því að Þórhallur var
rekinn frá HK/Víkingi hefur liðið
fengið eitt stig úr sex leikjum.
Liðið hefur skorað fimm mörk og
fengið á sig 21 mark þrátt fyrir
að fimm leikmenn liðsins sitji
alltaf til baka þegar liðið er í
sókn.
Hvort bæði lið væru á leið í 1.
deildina ef þau hefðu ekki látið
þjálfara sína fara skal látið ósagt
en gengið gæti að minnsta kosti
ekki verið mikið verra.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Fjölnismenn eru með pálmann í
höndunum í efsta sæti 1. deildar
karla í knattspyrnu, Inkasso-
deildarinnar, eftir stórsigur gegn
Þrótti á Extra-vellinum í Grafarvogi
í 19. umferð deildarinnar gær.
Leiknum lauk með 6:0-sigri Fjölnis
en staðan í hálfleik var 4:0, Graf-
arvogsliðinu í vil. Albert Brynjar
Ingason og Orri Þórhallsson skor-
uðu báðir tvívegis fyrir Fjölnismenn
í leiknum.
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson og
Ígnacio Anglada voru á skotskónum
þegar Leiknir fékk Hauka í heim-
sókn á Leiknisvöll í Breiðholti en
bæði mörkin í 2:0-sigri Leiknis
komu í fyrri hálfleik. Þá gerðu Fram
og og Víkingur Ólafsvík markalaust
jafntefli á Framvelli. Úrslitin þýða
að Ólsarar eru svo gott sem úr leik í
baráttunni um sæti í efstu deild en
liðið er með 28 stig í fimmta sæti
deildarinnar, tíu stigum frá toppliði
Fjölnis.
Þegar rúmlega þrjár umferðir eru
eftir af tímabilinu berjast þrjú lið um
það að fylgja Fjölnismönnum upp
um deild. Grótta er með 34 stig og
Þór er með 33 stig en bæði lið hafa
leikið átján leiki. Leiknir er í fjórða
sætinu með 33 stig eftir nítján leiki.
Þá stefnir í harða baráttu milli
Magna, Hauka og Aftureldingar um
það hvaða lið fylgir Njarðvík niður
um deild. Njarðvík er í neðsta sæti
deildarinnar með 14 stig eftir átján
umferðir, Magni og Haukar eru með
16 stig, en Magnamenn eiga leik til
góða á Hauka. Þá er Afturelding í ní-
unda sæti með 18 stig eftir átján
leiki.
Línur farnar að skýrast á toppi jafnt sem botni
Morgunblaðið/Arnþór
Efstir Fjölnismenn sitja á toppi 1. deildarinnar með 38 stig.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla:
Mustad völlurinn: Grindavík – KA ........L16
Samsung völlurinn: Stjarnan – FH ..L19:15
Hásteinsvöllur: ÍBV – Valur ...................S16
Kórinn: HK – Víkingur R........................S16
Meistaravellir: KR – ÍA ..........................S17
Kópavogsvöllur: Breiðablik – Fylkir S19:15
1.deild karla:
Afturelding – Njarðvík ...........................L14
Keflavík – Þór ..........................................L16
Magni – Grótta.........................................L16
2.deild karla:
Dalvíkurvöllur: Dalvík/Reynir – Vestri.L14
Nesfisk-völlurinn: Víðir – FjarðabyggðL14
Hertz völlurinn: ÍR – Þróttur V .............L16
Sauðárkróksvöllur: Tindastóll – SelfossL16
HANDKNATTLEIKUR
EHF-bikar karla:
Ásvellir: Haukar – Talent Plzen.............S16
GOLF
Reykjavík Junior Open, tveggja daga viða-
mikið opið mót fyrir ungmenni yngri en 21
árs, verður haldið í fyrsta skipti af Golf-
klúbbi Reykjavíkur á Grafarholtsvelli.
Leikið verður laugardag og sunnudag.
Stefnt er að því að mótið verði árlegur við-
burður.
UM HELGINA!
Elín Metta
Jensen
» Fædd 1. mars 1995 og
er því 24 ára gömul
» Leikur sem mið-
herji með Val og
landsliðinu
» Er uppalin í Val
og hefur leikið 132 leiki fyrir fé-
lagið í efstu deild og skorað
100 mörk
» Hefur leikið 43 A-landsleiki
og skorað 12 mörk
Marksækin
Miðherjinn Elín
Metta Jensen
hefur hrellt
markverði í allt
sumar og hélt
því áfram í
leikjum Vals í
ágústmánuði.
Ljósmynd/Víkurfréttir