Morgunblaðið - 31.08.2019, Side 44

Morgunblaðið - 31.08.2019, Side 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019 Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Niehoff stólar með svörtu PU leðri Þola allt að 140 kg Verð frá 39.900 kr. »Tríóið Hot Eskimos lék sumardjass fyrir gesti Salarins í fyrradag og var ekki annað að sjá en þeim væri vel tekið. Tríóið lék útsetningar á íslenskri popp-, rokk- og pönktónlist auk er- lendra laga og frum- samins efnis. Tríóið skipa Karl Olgeirsson píanóleikari, Jón Rafns- son kontrabassaleikari og Kristinn Snær Agn- arsson trommuleikari. Þeir hafa starfað saman í níu ár. Hot Eskimos fluttu sjóðandi heitan sumardjass í Salnum Morgunblaðið/Árni Sæberg Heitir Hinir fingrafimu og sjóðheitu Hot Eskimos, Karl, Jón og Kristinn, léku af fingrum fram í Salnum í Kópavogi á fimmtudaginn. Lófatak Gestir voru hæstánægðir með tríóið og klöppuðu því lof í lófa. Tónleikarnir voru í röðinni Sumarjazz. Heimildarmyndin Varda par Agnés eftir kvikmyndagerðarkonuna Agn- ési Varda verður sýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, RIFF, sem fram fer 26. september til 6. október. Varda lést í mars á þessu ári og þótti með merkari kvikmynda- gerðarmönnum sinnar kynslóðar. Hún var frönskumælandi Belgi og hluti af frönsku nýbylgjunni. Hún hlaut á seinni hluta ævi sinnar marg- vísleg verðlaun fyrir framlag sitt til kvikmynda og tók við heiðursverð- launum á kvikmyndahátíðinni í Berlín í febrúar á þessu ári. Merkiskona Agnés Varda heitin. Varda par Agnés verður sýnd á RIFF The Man Who Killed Don Quixote, eða Maðurinn sem myrti Don Kí- kóta, var frumsýnd í Bíó Paradís í gær. Kvikmyndin er ástríðuverkefni leikstjórans Terry Gilliam og eitt mesta álagaverkefni kvikmyndasög- unnar. Gilliam margreyndi að gera kvikmyndina á um 29 ára tímabili og tókst loks að frumsýna hana í fyrra á kvikmyndahátíðinni í Can- nes. Gilliam hófst handa árið 1989 en tókst ekki að fjármagna myndina að fullu. Árið 1998 hófst framleiðsla á ný og voru þá í aðalhlutverkum þeir Jean Rochefort og Johnny Depp. Tökur hófust árið 2000 en af ýmsum ástæðum þurfti að stöðva þær, m.a. vegna flóða sem eyðilögðu leikmyndir og tæki. Þá varð Roche- fort að hætta vegna veikinda og ým- is fjárhagsleg vandræði komu upp á. Gilliam reyndi ítrekað að hefja tökur á ný með leikurum á borð við Depp, Ewan McGregor, Jack O’Connell, Robert Duvall, Michael Palin og John Hurt. Alltaf var þó hætt við. Í mars 2017 tókst loks að hefja tökur og lauk þeim 4. júní það ár. Kvikmyndin er lauslega byggð á sögu Cervantes um Don Kíkóta og segir af Toby nokkrum, auglýsinga- leikstjóra með allt á hornum sér, sem kemst í kynni við spænskan skósmið sem heldur að hann sé Don Kíkóti. Ævintýri Adam Driver og Jonathan Pryce leika Toby og Don Kíkóta. Ástríðu- og álagaverkefni Gilliam í Bíó Paradís Klassíski list- dansskólinn Dansgarðurinn tekur yfir Mjódd í dag með við- burði sem nefnist Mjóddamamma. Dagskráin stend- ur til kl. 13 og munu ungir dansarar leiða viðburðinn að mestu. Kl. 11 verður sýnd dans- innsetning eftir Sögu Sigurðar- dóttur með Forward Dance-hópn- um og kl. 11.50 verður opinn dans- tími í ballett og nútimadansi undir leiðsögn ungra dansara. Frá kl. 11 til 13 verða sýndar dansstutt- myndir í Bakarameistaranum. Saga Sigurðardóttir Dansinn dunar á Mjóddamömmu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.