Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
Hugsaðu vel um
húðina þína – alltaf
Bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir
andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan.
»Kvikmyndahátíðin í Feneyjum hófst 28. ágúst með pomp
og prakt og lýkur 7. september. Að vanda eru margar
kvikmyndir þar heimsfrumsýndar og mæta stjörnurnar á
rauða dregla að vanda. Tvær þeirra, Marriage Story og Ad
Astra, voru frumsýndar í upphafi hátíðar og skarta báðar
þekktum leikurum. Brad Pitt, aðalleikari Ad Astra, er
þeirra á meðal og gaf sér góðan tíma í að sinna aðdáendum
og sitja fyrir í myndatökum. Scarlett Johansson og Adam
Driver, aðalleikarar Marriage Story, voru líka kát og
prúðbúin á dreglinum.
Stjörnurnar njóta sín á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Feneyjum
AFP
Vinalegur Leikarinn Brad Pitt heillaði unga sem aldna fyrir frumsýningu á Ad Astra, nýjustu kvikmynd sinni, og sat góðfúslega fyrir með aðdáendum.
Sjóuð Bandaríska leikkonan Scarlett Johans-
son hefur gengið margan rauðan dregilinn.
Glæsileg Ísraelska samkvæmisljónynjan Hofit Golan mætti til
frumsýningar á Marriage Story í sínu fínasta pússi.
Reffilegur Leikarinn Adam Driver fyrir
frumsýningu Marriage Story.
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir
sellóleikari heldur tónleika í Þórs-
hafnarkirkju í dag og í Raufar-
hafnarkirkju á morgun. Tónleik-
arnir eru í þremur lotum og geta
gestir mætt kl. 16, 16.40 eða 17.10
eða á allar loturnar, að því er
greint er frá í tilkynningu. Á dag-
skrá eru 5. og 6. sellósvíta Bachs,
leiknar á fjögurra og fimm strengja
selló, sem og lög og ljóð eftir Stein-
unni. Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis. 8. september leikur Stein-
unn svo í Ólafsfjarðarkirkju.
Þrenna Steinunn Arnbjörg heldur tónleika
í þremur lotum í þremur kirkjum.
Heldur tónleika
í þremur lotum
Anna Jónsdóttir sópran, Þóra Pass-
auer kontraalt, Friðrik Vignir Stef-
ánsson orgelleikari og Páll Einars-
son sellóleikari flytja Stabat Mater
eftir Giovanni Battista Pergolesi á
tónleikum í Stykkishólmskirkju í
dag kl. 16. „Í verkinu skiptast á ein-
söngs- og tvísöngskaflar sem lýsa í
tali og tónum þjáningu Maríu þar
sem hún stendur við kross sonar
síns og frelsara þar sem hann er
píndur til dauða,“ segir í tilkynn-
ingu.
Flytja Stabat Mater í
Stykkishólmskirkju
Listafólk Hópurinn sem fram kemur.
„Hvernig er Árnessýsla á bragðið?“
er heiti gjörnings sem framinn
verður í Listasafni Árnesinga í
Hveragerði í dag kl. 14-16. Lista-
mennirnir Tinna Ottesen og Gosie
Vervloessem munu bjóða til sam-
tals og smökkunar eftir að hafa
ferðast um Hornafjörð og Árnes-
sýslu á höttunum eftir náttúrulegu
bragði þessara svæða, eins og segir
í tilkynningu. „Þær hafa rýnt í sög-
ur, skoðanir, hugmyndir og fleira
sem hefur áhrif á bragð og bragð-
skynjun og velt fyrir sér spurn-
ingum eins og hvernig eru hug-
myndir og skoðanir á bragðið?
Getur matur verið ógeðslegur
vegna þess að innihald hans stend-
ur fyrir eitthvað sem þér líkar
ekki?“ segir þar m.a.
Vervloessem er belgískur gjörn-
ingalistamaður sem fæst við lögmál
eðlisfræðinnar til heimilisnota og
skoðar náttúrufyrirbæri gagn-
rýnum augum. Tinna fæst við
rýmistengda frásögn innan hönn-
unar, leikhúss, dans, gjörnings og
kvikmyndar.
Samstarfskonur Myndlistarkonurnar
Gosie Vervloessem og Tinna Ottesen.
Hvernig bragðast
Árnessýsla?