Morgunblaðið - 31.08.2019, Qupperneq 48
Hljómsveitin Mosi frændi heldur
tónleika á Hard Rock Café í kvöld
kl. 20 ásamt hljómsveitunum Blóð-
mör og Saktmóðigum. Mosi frændi
sendi frá sér sér fyrstu stúdíóplötu
sína, Óbreytt ástand, fyrir tveimur
árum og hyggur á útgáfu nýrrar
plötu á næstunni sem mun bera
titilinn Aðalfundurinn og verða lög-
in á henni harðari og pönkaðri en
fyrri lög sveitarinnar. Platan verður
frumflutt í kvöld.
Mosi frændi, Blóðmör
og Saktmóðigur rokka
LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 243. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Ég er með barn og fjölskyldu og
núna fer maður að sinna því. Núna
verður maður heima hjá sér seinni
partinn og notar svo kvöldin í það
að skella sér á leiki og horfa á úr
stúkunni, sem verður ágætis til-
breyting,“ segir Bryndís Guð-
mundsdóttir, landsliðskona í körfu-
knattleik, um þá ákvörðun sína að
leggja skóna á hilluna. »39
Landsliðskona lætur
staðar numið Hljómsveitin Gaukshreiðrið leikur á
fjórtándu og síðustu tónleikum
sumardjasstónleikaraðar veitinga-
hússins Jómfrúarinnar við Lækjar-
götu í dag kl. 15. Hljómsveitina
skipa Þorleifur Gaukur Davíðsson á
munnhörpu, Sölvi Kolbeinsson á
saxófón, Mikael Máni Ásmundsson
á gítar, Anna Gréta Sigurðardóttir á
píanó, Birgir Steinn Theódórsson á
kontrabassa og Magnús Trygvason
Elíassen á trommur.
Gaukshreiðrið á
Jómfrúartorgi
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Edinborgarhátíðin er stærsta
listahátíð heims sem haldin er árlega
í ágúst hér í Edinborg. Innan hennar
eru margir flokkar, meðal annars
Edinburgh Fringe sem inniheldur
jaðarlistir og stór hluti af því er uppi-
stand. Núna vorum við nokkur ís-
lensk sem komum þar fram, Ari Eld-
járn, Bylgja Babýlons, Snjólaug
Lúðvíksdóttir og Laufey Haralds-
dóttir,“ segir Ingibjörg Rósa Björns-
dóttir uppistandari, sem býr í Edin-
borg og var á hátíðinni með níu
sýningar á Sense of Tumour, uppi-
standi þar sem hún deilir með fólki
ýmsum skondnum hliðum þess að
greinast með krabbamein og því að
fara í gegnum krabbameinsmeðferð.
Ingibjörg Rósa lauk lyfjameðferð
um miðjan júní, var í geislameðferð
allan júlímánuð og fór í síðustu geisl-
ana í byrjun ágúst, daginn sem Edin-
borgarhátíðin hófst.
„Ég tók tvær vikur í að hvíla mig
aðeins en steig svo á svið með fyrstu
sýninguna mína á afmælisdegi móð-
ur minnar 17. ágúst,“ segir Ingibjörg
Rósa sem greindist um síðustu jól
með brjóstakrabbamein og hóf með-
ferð í janúar.
„Áður en ég byrjaði í lyfjameðferð
var ég farin að hugsa alls konar
fyndna krabbameinsbrandara, en ég
fékk þessa brjálæðislegu hugmynd í
byrjun febrúar að halda eina sýn-
ingu. Ég prófaði að fara í það sem
kallað er „open mic“, en þá fær mað-
ur aðeins 5 mínútur, sem er of stutt,
því fólk fær svo mikið sjokk um leið
og ég byrja að tala um að ég sé með
krabbamein. Það þarf lengri tíma og
atrennu til að fá fólk til að slaka á og
fá það til að hlæja að krabbameininu
mínu, því ég er auðvitað að gera grín
að mínu krabbameini og minni með-
ferð, mínum viðbrögðum og hugs-
unum. Ég er ekki að gera grín að
krabbameini yfirhöfuð, enda ekkert
fyndið við það.“
Hjálpaði í veikindunum
Ingibjörg vildi líka í sýningunni
sinni koma á framfæri ýmsum upp-
lýsingum sem fólk gerir sér ekki
grein fyrir sem hefur ekki farið í
gegnum þá reynslu að greinast með
krabbamein.
„Mér finnst að aðstandendur þurfi
að vita hvað maður er að pæla þegar
maður er staddur í þessu ferli, til
dæmis hvaða aukaverkanir geta
komið upp í lyfjameðferð aðrar en
hárlos og uppköst. Sýningin mín er
því ekki hefðbundið uppistand held-
ur flokkast hún sem uppistand með
frásögn. Það koma nokkrir kaflar
þar sem fólk er ekki að hlæja heldur
er ég að segja frá því á léttan hátt í
hverju ég lenti og hvað ég upplifði.
Eitt af því sem ég þurfti að pæla í var
hvernig ég gæti undirbúið það að
segja mögulega skilið við þetta jarð-
líf. Þá komu upp mjög furðulegar
hugsanir, og sumar ekkert rökréttar.
Ég geri mér grein fyrir að þessi sýn-
ing inniheldur mjög svartan húmor,
en þannig er ég,“ segir Ingibjörg og
bætir við að það hafi klárlega hjálpað
henni heilmikið í því að takast á við
veikindin að velta fyrir sér skondnu
hliðunum á þeim og semja efni fyrir
sýninguna Sense of Tumour. »12
Ingibjörg Rósa Með auglýsingamiðana sína fyrir uppistandssýninguna.
Ég veit þetta er svartur
húmor, þannig er ég
Kemur með sýningu sína Sense of Tumour til Íslands