Fréttablaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 6
Streita – viðbrögð og varnir
Námskeið á vegum Forvarna – Streituskólans
www.stress.is
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur átti sig á hvað veldur þeim
streitu og öðlist færni í að bregðast við með uppbyggilegum hætti.
Fjallað er um leiðir til að ná jafnvægi og blómstra í starfi og einkalífi.
Fjallað verður m.a. um
- Áhrif mikillar streitu
- Gagnleg viðbrögð
- Markvissar streituvarnir
Námskeiðið er samtals sex klst. og fer fram miðvikudagana 16., 23. og
30. október, kl 16-18.
Kenndar verða mismunandi aðferðir sem byggja á rannsóknum um
árangursríkar leiðir til að vinna gegn streitu og ná jafnvægi.
Kennarar eru reyndir sérfræðingar á sviði mannauðsmála, vinnusálfræði
og streituráðgjafar.
Skráning og nánari upplýsingar á anna@stress.is
Hafáherslur í formennskum Íslands í Norðurskautsráðinu,
Norrænu ráðherranefndinni og samstar utanríkisráðherra
Norðurlanda og Eystrasaltsríkja
Norræna húsinu, mánudaginn 7. október 2019 kl. 10.00 – 12.30
Dagskrá:
Kl. 10:00 – 10:10 Afmælisávarp
Björg Thorarensen, prófessor, stjórnarformaður Hafréttarstofnunar
Kl. 10:10 – 10:30 Formennskuáætlun Norðurskautsráðsins og
málefni hafsins
Einar Gunnarsson, sendiherra, formaður embættismannanefndar
Norðurskautsráðsins
Kl. 10:30 – 10:45 Hað í formennsku Íslands í Norrænu ráðherra-
nefndinni og samstar utanríkisráðherra Norðurlanda og
Eystrasaltsríkja
Geir Oddsson, sérfræðingur á Norðurlandadeild utanríkisráðuneytisins
Kl. 10:45 – 11:00 Bláa hagkerð
Berta Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans
Kl. 11:00 – 11:15 Aðgerðir gegn plastmengun í norðurhöfum
Magnús Jóhannesson, sérlegur ráðgja í norðurskautsmálum í
utanríkisráðuneytinu
Kl. 11:15 – 11:30 Sóknarfæri til orkuskipta í höfnum
Sigríður Ragna Sverrisdóttir, verkefnastjóri, Klappir Grænar Lausnir
Kl. 11:30 – 11:45 Pólkóðinn og öryggi í siglingum á norðurslóðum
Sverrir Konráðsson, fagstjóri í siglingamálum á Samgöngustofu
Að loknum umræðum og fyrirspurnum verður boðið upp á léttar veitingar.
Málstofustjóri: Tómas H. Heiðar, forstöðumaður Hafréttarstofnunar
Hað bláa hað
Málstofa í tilefni af 20 ára afmæli
Hafréttarstofnunar Íslands
DÓMSMÁL Berglind Glóð Garðars
dóttir, lögmaður Roslyn Wagstaff,
segir kröfu lögmanns Arngríms
Jóhannssonar um að Roslyn greiði
7,5 milljónir króna til tryggingar
greiðslu málskostnaðar sæta furðu.
Roslyn er ekkja Grants Wagstaff
sem fórst í f lugslysi í Eyjafirði í ágúst
2015. Eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu hefur Roslyn stefnt
Arngrími og tryggingafélagi hans
Sjóvá sem neita að greiða henni
bætur vegna eiginmannsins.
Friðrik Smárason, lögmaður
Arngríms, krafðist þess fyrir hans
hönd í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær að Roslyn reiði fram 7,5 millj
ónir króna til að tryggja að Arn
grímur fái greiddan málskostnað
vinni hann málið. Vísaði Friðrik
meðal annars til þess að Roslyn væri
búsett í Kanada og erfitt gæti reynst
að innheimta málskostnað yrði hún
dæmd til að borga hann.
Lögmaður ekkjunnar lýsti furðu
sinni á kröfugerð Arngríms. Mikið
hagsmunamál væri að fá úr því
skorið hvað átti sér stað á slysdeg
inum og hvort gáleysi hefði átt þar
hlut að máli. Það væri ekki aðeins
hagsmunamál ekkjunnar heldur
einnig Arngríms sjálfs.
„Að reyna að koma í veg fyrir
að það sé hægt, með því að hindra
aðgang stefnanda, ekkju Arthurs
Grant, að fá leyst úr málinu fyrir
dómstólum með því að fara fram á
himinháa málskostnaðartryggingu,
kom því á óvart,“ sagði Berglind
Glóð Garðarsdóttir.
Benti Berglind á að Roslyn hefði
þegar fengið gjafsókn frá íslenska
ríkinu til að reka málið. Með veit
ingu gjafsóknar hefði íslenska
ríkið staðfest að nægileg ástæða
væri til málshöfðunar og einnig
að kostnaður við málarekstur yrði
henni ofviða og réttlætanlegt að
kostnaðurinn væri greiddur af hinu
opinbera.
Fyrir dóminum í gær sagði lög
maður Arngríms málið mjög
umfangsmikið með málskjöl og
skýrslur upp á mörg hundruð blað
síður sem þegar hefðu verið lagðar
fram af hálfu lögmanns Roslyn. Að
auki þyrfti mögulega að afla mats
gerða. Ljóst væri að málskostnaður
kynni að verða mjög hár. Krafan
væri lögð fram til að tryggja að
Arngrímur gæti gengið að fénu ynni
hann málið og yrði dæmdur máls
kostnaður.
Friðrik benti á að þegar lægi
fyrir ítarleg lögregluskýrsla um
f lugslysið og einnig skýrsla frá
Rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Berglind sagði hins vegar eðlilegt að
aðilar málsins væru ósammála um
aðdraganda og atvik á slysdeginum.
Allir hlytu því að vera sammála um
að málið væri ekki byggt á sandi og
margt benti til að skoða þurfi atvik
nánar til að leiða sannleikann í ljós.
Lögmaður ekkjunnar mótmælti
kröfunni eindregið og sagði að ef
fallist yrði á hana væri verið að úti
loka aðgang efnalítils fólks að dóm
stólum. Vísaði Berglind til ákvæða
stjórnarskrár um rétt til aðgangs að
dómstólum og ákvæða um bann við
mismunun á grundvelli bæði efna
hags og þjóðernis.
Þannig sagði Berglind að ef fallist
yrði á kröfu um málskostnaðar
tryggingu lægi það fyrir að aðgengi
Roslyn að dómstólum yrði mjög
skert og hreinlega ekki fyrir hendi.
Með vísan til stjórnarskrárákvæða
fælist veruleg mismunun í því að
setja slíkar hömlur á erlenda borg
ara með takmörkuð fjárráð.
Dómari úrskurðar um kröfu Arn
gríms í næstu viku.
gar@frettabladid.is,
adalheidur@frettabladid.is
Krefst 7,5 milljóna í
tryggingu frá ekkju
Arngrímur Jóhannsson vill að ekkja sem höfðar bótamál gegn honum vegna
andláts eiginmanns skili 7,5 milljóna króna tryggingu fyrir málskostnaði.
Lögmaður ekkjunnar segir það myndu hindra aðgang hennar að dómstólum.
Lögmennirnir Friðrik Smárason og Berglind Glóð Garðarsdóttir í dómsal í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Að reyna að koma í
veg fyrir að það sé
hægt, með því að hindra
aðgang stefnanda, ekkju
Arthurs Grant, að fá leyst úr
málinu fyrir dómstólum
með því að fara fram á
himinháa málskostnaðar-
tryggingu, kom því á óvart.
Berglind Glóð Garðarsdóttir
Arngrímur
Jóhannsson.
Roslyn
Wagstaff.
STJÓRNSÝSLA Tvær kvartanir bár
ust em bætti for seta Ís lands vegna
á mælis verðrar hegðunar starfs
manns for seta skrif stofunnar gagn
vart sam starfs konum. Heimildir
Fréttablaðsins herma að um sé að
ræða kyn ferðis lega á reitni starfs
mannsins í garð tveggja kvenna.
Annað at vikið á að hafa komið upp
í starfs manna ferð í París í Frakk
landi í síðasta mánuði en hitt hér
á landi.
And rúms loftið á vinnu staðnum
er sagt þungt þessar vikurnar, en
Örn ólfur Thors son forsetaritari
vildi ekki tjá sig um málið þegar
eftir því var leitað. Hann vildi held
ur ekki upp lýsa um hvernig tekið
sé á málum sem þessum og vísaði
til laga um opin bera starfs menn.
Eftir að frétt um málið var birt á
vef Fréttablaðsins, frettabladid.is,
sendi Guðni Th. Jóhannesson, for
seti Íslands, frá sér yfirlýsingu þar
sem segir að starfsmaðurinn hefði
sýnt af sér óafsakanlega hegðun í
ferð til Parísar í september. Í kjöl
farið hafi viðkomandi farið í leyfi
og fengið skrif lega áminningu.
Starfsmaðurinn bað hlutaðeig
andi afsökunar og leitaði sér sér
fræðiaðstoðar. Lauk málinu með
sátt. „Formlegu ferli málsins er
þannig lokið með samþykki allra
þeirra aðila sem málið varðar og
starfsmanni var heimilað að snúa
aftur til starfa að uppfylltum til
teknum skilyrðum,“ segir í yfir
lýsingu forseta Íslands. – ósk, sks
Formlegu ferli málsins lokið með sátt
Guðni Th.
Jóhannesson.
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
F
3
-5
3
9
0
2
3
F
3
-5
2
5
4
2
3
F
3
-5
1
1
8
2
3
F
3
-4
F
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
4
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K