Fréttablaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 81
Elsku eiginkona mín, móðir okkar,
tendamóðir, amma og langamma,
Hafdís Líndal Jónsdóttir
lést á dvalar- og hjúkrunarheimili
aldraðra, Kirkjuhvoli, Hvolsvelli,
þriðjudaginn 3. september.
Úför hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Sérstakar þakkir fær starfsfólk dvalar- og
hjúkrunarheimilis aldraðra, Kirkjuhvoli.
Marinó Sigurpálsson
Ingibjörg Marinósdóttir Lárus Geir Brandsson
Emma Marinósdóttir Georg Ottósson
Viðar Marinósson Bryndís Guðmundsdóttir
Berglind Marinósdóttir Hörður Filipsson
Sigurpáll Marinósson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sonja Ásbjörnsdóttir
Gunnlaugsgötu 18,
Borgarnesi,
lést þriðjudaginn 1. október.
Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju
laugardaginn 12. október kl. 14. Blóm og kransar
vinsamlega afþökkuð, en þeir sem vilja minnast hennar
láti Brákarhlíð njóta þess.
Örn R. Símonarson
Unnur Hafdís Arnardóttir Bjarni Knútsson
Ragnheiður Harpa Arnardóttir Guðjón Kristjánsson
Jónína Erna Arnardóttir Vífill Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu, móður, tengdamóður,
ömmu, systur og okkar kæru
Dagnýju Magneu
Harðardóttur
Mánatúni 17, Reykjavík,
áður Furulundi 19, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir alúð og góða umönnun
í veikindum hennar.
Bjarni Reykjalín
Þorleifur Kristinn Árnason
Ásta Árnadóttir Friðgeir Steinsson
Kristófer Máni Friðgeirsson
Jenný Kamilla Harðardóttir
Oddný Guðbjörg Harðardóttir Eiríkur Hermannsson
Ari Theodór Jósefsson
Guðbjörg Reykjalín Forup Katja Reykjalín Forup
Ástkær sonur minn,
bróðir, faðir og frændi,
Gústaf Benedikt Gústafsson
lést þann 29. september.
Útför fer fram frá Seljakirkju
þriðjudaginn 15. október kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Kristín Benediktsdóttir, Guðbjörg Kristín Grönvold
Aþena Máney Gústafsdóttir og Garpur Logi Guðlaugsson
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæru
eiginkonu, móður, tengdamóður
og ömmu,
Einöru Magnúsdóttur
Hörðukór 5, Kópavogi,
áður búsett í Bandaríkjunum.
Sérstakar þakkir fá þeir sem komu að hjúkrun hennar
og umönnun.
Einar Ásgeirsson
Ásgeir Einarsson Ásgeirsson Patricia Ásgeirsson
Valur Magnús Valtýsson Inga Dóra Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Arnardóttir
lést á dvalarheimilinu Skjóli
sunnudaginn 29. september.
Útför fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn
9. október kl. 13.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir og amma,
Sigurlaug Ingvarsdóttir
frá Bakka,
Melavegi 18, Hvammstanga,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á
Hvammstanga þann 27. september sl.
Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju föstudaginn
11. október kl. 15.00.
Ragnar Gunnlaugsson
Gunnlaugur Auðunn Ragnarsson
Ingvar Friðrik Ragnarsson Malin Persson
Dagný Sigurlaug Ragnarsdóttir Örn Óli Andrésson
Anna Heiða Ragnarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Þorsteinn Jónsson
fv. framkvæmdastjóri,
lést á hjúkrunarheimilinu
Höfða 26. september.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
fimmtudaginn 10. október klukkan 13.00.
Margrét Þórarinsdóttir
Anna Berglind Þorsteinsdóttir Guðmundur Valgeirsson
Jón Ágúst Þorsteinsson Sigríður Sigurðardóttir
afa- og langafabörn.
Samtökin Frú Ragnheiður starfa innan Rauða krossins. Þau hafa nú verið til í tíu ár á höfuð-borgarsvæðinu og unnið að því að bæta heilsu vímuefnasjúkl-inga sem sprauta sig í æð. Það
gera þau meðal annars með því að keyra
um daglega og sinna nálaskiptum og
heilsugæslu hjá þessum hópi.
Helga Sif Friðjónsdóttir er faglegur
bakhjarl samtakanna. Hún er með dokt-
orsgráðu í geðhjúkrun með áherslu á
fólk í vímuefna- og geðvanda. „Ég er
búin að vera tengd Frú Ragnheiði frá
upphafi, tók þátt í að móta hugmyndina
og koma verkefninu af stað og er enn
að hjálpa til eftir þörfum,“ segir hún.
„Svala Jóhannesdóttur er verkefnastýra
og nú erum við komin með hjúkrunar-
fræðing í 100% vinnu sem heitir Elísa-
bet. Ásamt Marín, verkefnastjóra hjá
Rauða krossinum í Reykjavík, berum
við ábyrgð á hinu faglega starfi. En það
eru sjálfboðaliðar sem sinna vöktunum
á bílnum. Þetta er eitt vinsælasta sjálf-
boðaliðaverkefni Rauða krossins. Yfir-
leitt eru 60-80 á skrá á hverjum tíma og
þar er bara eðlileg velta. En nánast alltaf
er biðlisti yfir þá sem vilja taka þátt.“
Helga Sif segir þrjá á vakt í einu,
hjúkrunarfræðing, bílstjóra og sér-
þjálfaðan starfsmann í skaðaminnkun
fyrir sprautufíkla. „Svo er læknir á bak-
vakt hjá okkur, hjúkrunarfræðingurinn
hefur samband við hann eftir þörfum og
við leysum út sýklalyf ef læknirinn telur
þörf á þannig meðferð. Svo hjálpumst
við öll að við að hjálpa einstaklingunum
að muna eftir að taka lyfin og aðstoðum
þá þar sem þeir eru staddir, sem getur
verið í Konukoti, Gistiskýlinu og víðar.“
Tæplega 40 manns hafa lokið sýkla-
lyfjameðferð hjá Frú Ragnheiði og það
telur Helga Sif gott. „Fólk í þessari stöðu
dregur svo oft að leita sér hjálpar þar til í
óefni er komið. Hópurinn sem við þjón-
um er jaðarsettur og nærþjónusta á vett-
vangi skiptir sprautusjúklinga miklu
máli. Allar rannsóknir sýna að hún
er árangursrík leið til að bæta heilsu
sjúklingsins.“
Bíll Frú Ragnheiðar ekur um öll
kvöld frá 18 til 21. „Við erum með fasta
viðkomustaði sem eru skráðir á heima-
síðunni okkar. Þar er líka símanúmerið
okkar svo fólk getur alltaf hringt og við
stoppum þar sem hentar, af hendum
þann búnað sem þarf og eigum stuðn-
ingssamtöl.“
Helga Sif viðurkennir að það
sé merkilegur áfangi að þetta verkefni
skuli vera orðið tíu ára. Hún segir það
í raun alltaf vera að vaxa. „Fólkið sem
sækir til okkar treystir sjálf boðaliðun-
um og verkefninu í heild.“ Hún kveðst
ekki hafa á tilfinningunni að hópurinn
sem þarfnast aðstoðar Frú Ragnheiðar
hafi stækkað á þessum tíu árum. Hins
vegar sé þjónustan að ná til stærri og
stærri hluta hans.
En ætlar Frú Ragnheiður að halda upp
á daginn á morgun? „Já, það er planið.
Það verður væntanlega kökuboð, bæði
fyrir skjólstæðinga og sjálf boðaliða í
höfuðstöðvum Rauða krossins uppi í
Efstaleiti,“ svarar Helga Sif og heldur
áfram: „Ég er alltaf jafn auðmjúk yfir
því hvað við erum með góða sjálf boða-
liða. Þeir ganga í allt mögulegt, sækja
vörur, sjá um viðhald á bílnum og halda
utan um hjúkrunarlagerinn. Hlutverkin
eru fjölbreytt og hver og einn leggur
fram sína hæfni og krafta.“
gun@frettabladid.is
Sjálfboðaliðar á biðlista
Samtökin Frú Ragnheiður fagna tíu ára afmæli sínu á morgun. Þau sinna jaðarsettu
fólki sem notar vímuefni í æð að staðaldri og veita því skaðaminnkandi þjónustu.
„Nærþjónusta á vettvangi skiptir sprautusjúklinga miklu máli, það sýna rannsóknir.“ segir Helga Sif. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ég er alltaf jafn auðmjúk yfir
því hvað við erum með góða
sjálfboðaliða. Þeir ganga í allt
mögulegt.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 41L A U G A R D A G U R 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
0
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
F
3
-7
1
3
0
2
3
F
3
-6
F
F
4
2
3
F
3
-6
E
B
8
2
3
F
3
-6
D
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
4
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K