Fréttablaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 68
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Það er hægt að gera heilsu-skot úr margvíslegu hollu hráefni. Um að gera að láta
hugmyndaflugið ráða og prófa sig
áfram. Þessir hér fyrir neðan eiga
að vera virkilega skotheldir þegar
kvef, hálsbólga eða aðrar pestir
sækja að.
Rauðrófuskot
Rauðrófur eru mjög hollar. Þetta
skot er sagt mjög gott gegn kvefi,
það eykur orku og er bara ágætt á
bragðið. Það tekur stutta stund að
útbúa það.
1 dl rauðrófusafi
4 msk. ferskur appelsínusafi
1 msk. ferskur sítrónusafi
1 biti ferskt engifer, rifið mjög
smátt
Blandið öllu saman í lítið glas og úr
verður heilsuskot.
Engiferskot
Eitt staup af engiferskoti daglega
getur styrkt ónæmiskerfið. Engifer
inniheldur mikið af andoxunar-
efnum og er bólgueyðandi. Úr
þessari blöndu fæst einn lítri sem
geyma má inni í ísskáp.
1 lítri vatn
2-300 g fersk engiferrót
½ dl hunang
2 sítrónur
Gott við
haustsleninu
Alls kyns pestir gera vart við sig þegar
kólnar í veðri. Þá er mjög gott ráð að
fá sér hollustuskot sem er stútfullt
af vítamínum. Hér eru nokkrar uppá-
stungur að góðum skotum.
Skotin eru ekki bara falleg heldur afskaplega holl og góð. Þau eru full af
vítamínum og gefa aukna orku. Þau geta alveg verið í boði í veislum.
Rauðrófur eru hollar og vítamínríkar. Þær eru líka fallegar á litinn.
Setjið vatnið í pott. Hakkið engi-
ferrótina gróft og leggið í vatnið.
Hitið upp í 60°C og reynið að halda
þeim hita í um það bil 20 mínútur.
Ekki láta vatnið sjóða. Sigtið og
setjið hunangið út í meðan vatnið
er heitt. Þegar það kólnar aðeins er
sítrónusafa úr tveimur sítrónum
bætt við. Sigtið aftur og hellið í
f löskur. Getur geymst í ísskáp í
heilan mánuð.
Ef þú vilt breyta til er hægt að
bæta í drykkinn 75 grömmum af
túrmerikrót. Hún er þá sett með
engiferrótinni í vatnið. Einnig má
setja einn til tvo tepoka eða einn
til tvo chili-piparbelgi sem eru þá
fræhreinsaðir. Sjóðið með rótinni.
Fersk minta getur breytt bragðinu
til hins betra. Þá má líka setja tvö
epli sem hafa verið hreinsuð. Þau
eru soðin með. Vökvinn er alltaf
sigtaður áður en hann er settur á
f lösku.
Túrmerikskot
Túrmerikskot í upphafi dags gefur
mikla orku í kroppinn. Túrm-
erik er bæði krydd og gefur mat
skemmtilegan lit. Rannsóknir sýna
að túrmerik hefur bólgueyðandi
eiginleika.
1 dl vatn
1 msk. túrmerik-krydd
⅓ tsk. svartur pipar
1 hnífsoddur negull
1 msk. eplacider edik
1 msk. sítrónusafi
Hrærið saman, drekkið og njótið.
Grænt skot
Uppskriftin miðast við átta lítil
glös.
80 g grænkál
80 g spínat
1½ epli
1 límóna
Allt sett í blandara.
Þetta skot er mjög gott fyrir
heilsuna. Mikið af andoxunar-
efnum og byggir upp ónæmis-
kerfið. Drykkurinn er meira að
segja sagður getað komið í veg fyrir
hrukkur, en við seljum það ekki
dýrara en við keyptum.
Opið alla daga
vikunnar frá
kl. 11:00 - 22:00
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l Sími 554 5022
TILBOÐ
SÚPA OG FJÓRIR RÉTTIR
Kjúklingur í karrýsósu
Núðlur með grænmeti
Djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu
Lambakjöt í piparsósu
Tekið með heim
1.890 kr. (á mann)
Borðað á staðnum
2.200 kr. (á mann)
Frábær hóptilboð
Sjáðu öll tilboðin okkar á
www.kinahofid.is
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
F
3
-9
D
A
0
2
3
F
3
-9
C
6
4
2
3
F
3
-9
B
2
8
2
3
F
3
-9
9
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
4
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K