Fréttablaðið - 05.10.2019, Síða 24

Fréttablaðið - 05.10.2019, Síða 24
Ný bók Andra Snæs Magnasonar er Um tímann og vatnið og hann fléttar inn í hana sögum af for­feðrum sínum og fjölskyldu og kemur víða við, Dalai Lama er til dæmis meðal persóna. Það er greinilegt að Andri Snær hefur lagt gríðarlega vinnu, orku og hugsun í þessa bók og útkoman er sannarlega áhrifamikil. Bókin hefur þegar verið seld til nokkurra landa og þeim á örugglega eftir að fjölga. Andri Snær segir að bókin hafi verið afar lengi í vinnslu. „Þetta eru hlutir sem ég hef verið með athyglina á í næstum 20 ár. Það eru tíu ár síðan fyrstu drögin urðu til og bókin hefur þróast í fyrirlestrum sem ég hef haldið í háskólum víða um heim og samtölum við vísinda­ menn. Hér er um að ræða stærsta mál sem jarðarbúar standa frammi fyrir og mér fannst óþægilegt að hafa ekki grundvallaratriðin á hreinu, ég vildi skilja stærðirnar og hugtökin. Ég þurfti að læra grunn­ atriðin sem varða hafið, loftslagið og jöklana áður en ég gat skrifað um þessi málefni á skiljanlegu máli og lagt inn í aðrar sögur.“ Í bókinni fangar Andri Snær tímann, leiðir saman kynslóðir og tengir ungar og komandi kynslóðir við þær eldri. Bókinni lýkur á árinu 2102. „Mig langaði til að skapa djúpa tilfinningu fyrir framtíðinni sem er byggð á sterkri tilfinningu fyrir minni eigin fortíð og samskiptum við afa og ömmur og forfeður mína. Það var mikill galdur að reyna að ná þessu öllu saman.“ Mannkynið skilur sögur Andri Snær segir að hann hafi alls ekki verið fullviss um að hann ætti að skrifa bók um loftslagsbreyting­ ar. „Á tímabili fannst mér að ég væri ekki rétti maðurinn til að skrifa um þessa vá. Það sem fyllti mig full­ vissu var að fræðimenn, innlendir og erlendir, sögðu mér að þeir hefðu ekki endilega hæfileika til að flétta þetta efni inn í stærra samhengi. Þeir sögðust vera sérfræðingar á sínu sviði og vandinn væri sá að vísindi þeirra kæmust ekki til skila nema þeim væri f léttað inn í sögur. Mannkynið skilur sögur. Þess vegna er Greta Thunberg svo mikilvæg núna, heimurinn tengir við hana í gegnum sögu hennar. Hún er að segja það sama og vísindamenn en við hlustum á hana.“ Það er gnægð af sögum í þessari haganlega fléttuðu bók Andra Snæs, ásamt greiningu á vandanum sem mannkyn stendur frammi fyrir og hugmyndum að lausnum. „Það hefði ekki verið neitt vandamál að plægja á einni helgi heimsenda­ greinar í fréttum, raða þeim í rétta tímaröð og búa til bók. Mitt vanda­ mál var að finna framtíðarsýn þar sem væru lausnir sem ég tryði sjálf­ ur á,“ segir hann. „Allt sem ég segi byggi ég síðan á vísindum. Færustu vísindamenn á hverju sviði hafa ráðlagt mér og lesið yfir hjá mér. Ef einhverjar villur slæðast inn þá ber ég ábyrgð á þeim en ég naut meðal annars liðsinnis jöklafræðinga, loftslagsfræðinga, sjávarlíffræðinga og haffræðinga. Súrnun sjávar er stærsta breyt­ ing á efnafræði jarðar í 50 milljón ár ásamt því sem er gerast í and­ rúmsloftinu. Það hlýtur að koma mér við. En hvernig á ég að segja frá þessu í bók? Orðið „súrnun“ er ekki þrungið merkingu eins og kjarnorkusprengja. Ég þarf að gera lesandanum ljóst að orðið sé risa­ vaxið en hafi allt of litla merkingu. Það er meðal þess sem ég reyni í þessari bók.“ Allt er tengt í heiminum Þú segir á einum stað í bókinni að skáldskapurinn hafi verið þinn f lótti og þú hafir látið aðra um aktívismann. Það er greinilegt að þú hefur lagt mikla ástríðu og orku í þetta verk, geturðu snúið aftur í skáldskapinn? „Þegar ég hafði lokið við bókina hugsaði ég um það hvort ég ætti afturkvæmt í skáldskapinn. Ég vona að ég eigi það en það fór gríðarlega mikil orka í þetta verk. Stundum var efnið það yfirþyrmandi að ég varð að leggja það frá mér og skrif­ aði Tímakistuna og smásagnasafn. Fyrir tveimur árum hugsaði ég: Hvernig í ósköpunum ætlarðu að tengja saman brúðkaupsferð afa og ömmu upp á Vatnajökul, Dalai Lama og frænda sem endurholdg­ aðist sem krókódíll? Lausnin var að flæða úr einni sögu í aðra og skapa samt heildstæða sögu. Mig langaði að búa til heim þar sem einhvers konar tilviljanir og töfrar tengdu þetta allt saman. Ég vissi líka að þetta ætti allt heima í einni bók og yrði ein heild, ég vildi sýna fram á að allt er tengt í heiminum og allir tengjast öllu.“ Allsherjar endurhugsun Í þessari bók ertu að lýsa kynslóð afa þíns og ömmu sem byggði allt frá grunni og endurnýtti allt, bar virðingu fyrir verðmætum og henti engu. Er þetta ein af lausnunum fyrir okkur? „Já, það er þannig. Ein af lausn­ unum er það sem amma sagði: Kláraðu matinn þinn og vertu í peysunni af stóru systur þinni! Þessi kynslóð byggði upp 20. öldina. Hún byggði hitaveitur og íþróttahallir, vegina, brýrnar og sjúkrahúsin. Þessi kynslóð fór í gegnum ýmis­ legt, margir ólust upp við skort, en maður upplifir ekki að það hafi verið óhamingja í því að þurfa að stofna íþróttafélög eða jöklarann­ sóknarfélag og búa til þá hluti sem við erfum. Þvert á móti, það er ákveðinn kraftur í frumkvöðla­ and an um og því að stofna lýðveldi. Við héldum að við gætum tekið við þessu og byggt lúxus ofan á það og sýndarveruleika. Það er ekki þann­ ig. Stóra verkefnið fram undan er allsherjar endurhugsun. Ef við höld­ um línulega áfram eins og ekkert sé þá fer ekki vel, það er vísindalega sannað. Það er samt ekki endilega neikvætt að vera hluti af kynslóð sem þarf að breyta hlutum. Það er mikil sköpun og hugsun í því. Það er heldur ekki endilega neikvætt að vera kynslóð sem hefur æðra hlut­ verk, og í þessu tilfelli felst hlut­ verkið í því að tryggja lífvænlega jörð fram á næstu öld. Það þarf að endurhanna nánast allt, það þarf að breyta allri orkuframleiðslu, mat­ vælaframleiðslu, samgöngum og neysluvenjum á næstu 30 árum og helst fyrr.“ Er í alvöru einhver von um að það takist? Kína, Rússland og Banda- ríkin virðast til dæmis ekki ætla að leggja mikið af mörkum og skortur á áhuga þeirra hlýtur að skipta máli. „Ég er ekki gott viðmið á bjart­ sýni. Ef það væru 0,1 prósent líkur á að þetta takist myndi ég halda í þetta 0,1 prósent. Og fræðimenn hafa sýnt fram á að það sé vel hægt að ná þessum markmiðum þótt það geti verið pólitískt erfitt og það er Þarf að endurhanna allt Um tímann og vatnið er titill á nýrri bók eftir Andra Snæ Magnason. Þar fjallar hann á afar áhrifaríkan hátt um þá skelfilegu vá sem steðjar að mannkyni vegna loftslags- breytinga og boðar róttækar lausnir. „Mitt vandamál var að finna framtíðarsýn þar sem væru lausnir sem ég tryði sjálfur á.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK VIÐ BÚUM VIÐ SIÐFERÐI- LEGA KREPPU OG ERUM FÖST Í KERFI SEM ERFITT ER AÐ SLÍTA SIG ÚT ÚR EN ER EKKI AÐ FARA NÓGU HRATT Í RÉTTA ÁTT. NÆSTU 30 ÁR SNÚAST UM MIKLAR KERFISBREYT- INGAR. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 3 -7 1 3 0 2 3 F 3 -6 F F 4 2 3 F 3 -6 E B 8 2 3 F 3 -6 D 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 4 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.