Fréttablaðið - 05.10.2019, Side 36

Fréttablaðið - 05.10.2019, Side 36
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Hin sextán ára sænska Greta Thunberg hikar ekki við að ávíta helstu leiðtoga heimsins og krefst tafarlausra aðgerða í loftslagsmálum. Þessi unga stúlka hefur sannarlega tekið málin í sínar hendur og er hvergi bangin. Greta er fædd 3. janúar 2003 og er höfundur skólaverk- falls á föstudögum. Hún vakti fyrst athygli árið 2018 þegar hún settist ein fyrir framan þinghúsið í Stokkhólmi með skilti sem á stóð „Skólaverkfall fyrir loftslagið“. Hún varð síðan fyrirmynd annarra nemenda um allan heim sem fóru í sams konar verkföll á föstudögum undir nafninu „Föstudagar fyrir framtíðina“. Hafði áhrif á foreldrana Greta þvingaði foreldra sína til að breyta um lífsstíl fyrir lofts- lagið. Hún var gestur í spjallþætti Skavlan í sænska sjónvarpinu þar sem hún sagði frá því að hún væri greind með Aspergerheilkenni og það hefði hjálpað henni. „Ef ég hefði ekki verið með Asperger og væri svona skrítin hefði ég líklega fest í þessu venjulega félagslega hlutverki sem allir eru svo hrifnir af,“ sagði hún. „Ég fékk foreldra mína til að hætta að ferðast í f lugvélum jafnvel þótt mamma hafi þurft að vera mikið á ferðinni vegna starfs síns. Nú syngur hún bara í Stokkhólmi,“ sagði Greta en móðir hennar er fræg óperusöng- kona, Malena Emman. Malena tók þátt í Eurovision fyrir hönd Svía árið 2009. Hún og maður hennar, Svante Thun- berg leikari, hafa skrifað bók um dóttur sína sem vakið hefur mikla athygli og nefnist á sænsku Scener ur hjartet. „Bókin fjallar um krísuna sem skall á fjölskyld- una. Um það hvernig leiðin lá að skólaverkfalli Gretu. Umfram allt er þetta þó sagan um þá vá sem umlykur okkur og hefur áhrif á allt mannkyn. Þá vá sem við höfum búið til með lífsstíl okkar,“ segir Malena þegar hún er beðin að segja frá bókinni. Einnig er sagt frá því þegar Greta veiktist og var síðar greind með Aspergerheil- kennið. Yngri systir hennar, Beata, hefur verið greind með ADHD. Greta segir að bókin geti hjálpað krökkum sem glíma við sams konar sjúkdóma og þær systur. Ferðast ekki í flugvél Hún segist sjá heiminn á annan hátt og frá öðru sjónarhorni en flestir vegna Aspergerheilkenni- síns. Þeir sem eru með Asperger fókusera oft á einn hlut. Greta fékk gríðarlegan áhuga á loftslagsbreyt- ingum og las allt sem hún komst yfir til að kynna sér málið betur. Þetta olli henni miklu hugarangri og á tímabili fékk hún þá flugu í höfuðið að mæta ekki í skólann en fara í staðinn í verkfall til að krefjast aðgerða. Þingkosningar voru nálægar og þann tíma notaði Greta til að vekja athygli á mál- efni sínu. Hún sagðist ekki mæta í skólann aftur fyrr en stjórn- málamenn gerðu eitthvað vegna loftslagsbreytinga. Verkfallið stóð í 21 dag. Greta vakti áhuga hjá sænskum fjölmiðlum og fljótlega varð hún fræg fyrir að vera stúlkan sem mætti ekki í skólann. Núna ári síðar er Greta tilnefnd til friðar- verðlauna Nóbels og ferðast um heiminn í lestum eða skipum til að halda fyrirlestra á alþjóðlegum ráðstefnum. Greta fór með lest til Katowice í Póllandi í desember á síðasta ári til að ávarpa loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Í janúar fór hún til Davos í Sviss til að ávarpa fund Alþjóðaviðskiptaráðsins um loftslagsmál. Ferðin tók 32 klukku- stundir í lest. Á þessu ári sigldi Thunberg á umhverfisvænni keppnisskútu yfir Atlantshafið frá Bretlandi til New York til að sækja tvær loftslagsráðstefnur, aðra í Banda- ríkjunum og hina í Chile. Í New York leiddi hún mótmælafund gegn aðgerðaleysi stjórnvalda í loftslagsmálum fyrir utan höfuð- stöðvar Sameinuðu þjóðanna þann 31. ágúst. Greta var gestur á loftslagsráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna 23. september og ávítaði þar þjóðar- leiðtoga heimsins harðlega fyrir að bregðast kynslóð hennar með aðgerðaleysi sínu. Stórkostlegur heiður Gretu finnst stórkostlegur heiður að vera tilnefnd til friðarverðlauna Nóbels og menn eru sammála um að valið sé frábært þar sem hún sé af þeirri kynslóð sem verður fyrir barðinu á loftslagsbreytingunum sjálfum. Bæði sænska Aftonbladet og Expressen kusu Gretu konu ársins 2019 fyrir baráttu sína á sviði lofts- lagsmála. Expressen skrifaði að þessi unga kona væri rödd heillar kynslóðar. Greta er með næstum þrjú hundruð þúsund fylgjendur á Twitter og hefur verið í viðtölum við fjölmiðla um allan heim. Í fyrra var hún kosin einn áhrifa- mesti unglingur í heimi af Time Magazine. Greta mótmælir enn á föstu- dögum eins og nemendur annars staðar í heiminum undir baráttu- orðunum „Fridays for future“. Slagorðið „Make the world Greta again“ skreytir nú mótmælaspjöld um víða veröld. Ungmenni með rödd Thunberg er ekki eini unglingur- inn sem hefur breytt heiminum. Fyrir nokkrum árum varð hin pakistanska Malala Yousafzai heimsfræg eftir að hún var skotin í höfuðið í október 2012 á leið heim úr skólanum. Það þótti kraftaverk að hún skyldi lifa af voðaskotið. Malala var aðeins 11 ára þegar hún hóf baráttu fyrir réttindum barna til að mennta sig undir ógnarstjórn Talibana. Malala hlaut friðarverð- laun Nóbels, yngst allra, árið 2014. Anna Frank skrifaði dagbók með augum tánings um hörm- ungar fjölskyldu sinnar í síðari heimsstyrjöldinni en þau voru ofsóttir gyðingar í Hollandi. Anna og fjölskylda hennar voru í felum í földu herbergi. Fjölskyldan fannst árið 1944 og var send til Auschwitz þar sem Anna lést. Dagbók hennar frá þessu myrka tímabili í heims- sögunni geymir sterka persónu- lega hlið sögunnar sem gerði Önnu Frank heimsfræga. Fleiri ungmenni hafa í gegnum söguna haft rödd og látið að sér kveða. Elsta dæmið er líklegast Jóhanna af Örk. Rödd heillar kynslóðar Greta Thunberg er ötull baráttumaður fyrir aðgerðum gegn loftslagsbreytingum. Hún krefst þess að þjóðir heims vinni að því að draga úr losun í takt við loftslagssáttmála sem gerður var í París. Greta Thunberg hefur ekki bara haft áhrif á ungmenni um allan heim heldur einnig heimsfræga þjóðhöfðingja. Það er ótrúlegt hversu áhrifarík Greta er um allan heim. Deegan 38 All Terrain Deegan 38 All Terrain – nett mynstrað heilsársdekk frá Mickey Thompson Fáanlegt í 3 stærðum: 265/70R17 verð kr. 33.400 285/70R17 verð kr. 46.490 275/65R18 verð kr. 39.800 Icetrack ehf 773-4334 mtdekk@mtdekk.is www.mtdekk.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 0 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 1 0 4 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 3 -8 E D 0 2 3 F 3 -8 D 9 4 2 3 F 3 -8 C 5 8 2 3 F 3 -8 B 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 0 4 s _ 4 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.