Fréttablaðið - 05.10.2019, Page 77

Fréttablaðið - 05.10.2019, Page 77
hins vegar á að í bók sem Løvland skrifaði sjálfur og ber titilinn You Raise Me Up komi fram að hann hafi verið við störf á Íslandi í tvær ískaldar vikur í janúar 1995. Og það hafi ekki verið fyrsta heimsóknin til Íslands. „Árið áður hafði ég fram- leitt tvær plötur á Íslandi,“ rifjar Løvland upp í bókinni sem kom út árið 2015. Að sögn Jons Kjell voru útvarps- stöðvar RÚV og Bylgjan iðulega hafðar á í Stúdíó Sýrlandi. „Að teknu tilliti til stöðugrar og reglu- legrar spilunar á Söknuði, sem íslenskt útvarpsfólk getur staðfest, tel ég það mjög líklegt að Løvland hafi heyrt Söknuð á meðan hann var í Stúdíó Sýrlandi,“ segir í yfir- lýsingu Jons Kjell. Tókst loks að stefna Løvland Með skjölunum sem lögð hafa verið fyrir dóminn í LA er einmitt yfir- lýsing frá útvarpskonunni Andreu Jónsdóttur. Staðfestir hún að Sökn- uður hafi fengið gríðarlega útvarps- spilun allt frá því lagið kom fyrst út. „Í ljósi þessarar stöðugu spilunar í útvarpi í meira en fjóra áratugi getur Söknuður talist mest leikna lag allra tíma í íslensku útvarpi,“ fullyrðir Andrea. Einnig er meðal skjalanna yfir- lýsing frá Jónasi R. Jónssyni og upptökumanninum Tony Cook varðandi tímasetningu á upptöku plötunnar Hananú með Vilhjálmi Vilhjálmssyni þar sem lagið Söknuð er að finna. Segja þeir svokallaðar demóupptökur hafa verið gerðar í maí 1976 og að eiginlegar upp- tökur hafi byrjað 7. desember það ár. Platan kom svo út 1977. Steinar Berg Ísleifsson, sem gaf út fjölda hljómplatna í gegnum fyrir- tækin Steina og Skífuna, vitnar í yfirlýsingu um hversu gríðarvel Söknuður hafi selst. Það hafi í raun gert plötuna Hananú að því sem hún varð. Lagið hafi komið út í fjölda útgáfa. Fyrir dóminum liggur skjal þar sem listaðar eru 47 útgáfur af laginu. Þá vitnar Jófríður Björnsdóttir um það að lagið Söknuður í instrú- mental útgáfu hafi verið á lagalista sem leikinn hafi verið um borð í f lugvélum Icelandair fyrir f lug- tak og eftir lendingu á tíunda ára- tugnum, eða á því tímabili sem Rolf Løvland heimsótti Ísland. Jófríður var þá f lugfreyja hjá Icelandair. Segir lögmaður Jóhanns líklegast að Løvland hafi f logið með Icelandair og þannig heyrt Söknuð. Ellert Ingason, hjá Útfararstofu Kirkjugarðanna, staðfestir að allt frá því Söknuður kom út árið 1977 til dagsins í dag sé það mest leikna lagið við útfarir að frátöldum lögum sem finna megi í íslensku sálmabókinni. Vitnað er í Fréttablaðið frá 8. júlí 2007 þar sem 25 álitsgjafar völdu Söknuð sem besta íslenska dægur- lag 20. aldarinnar. Greining Ríkarðs Pálssonar og Arnar Óskarssonar frá árinu 2004 sem unnin var fyrir STEF þar sem líkindi milli Söknuðar og You Raise Me Up eru sögð vera 97 prósent er einnig lögð fram. Þetta hefur áður komið fram í Fréttablaðinu. Í skjölunum er einnig að finna yfirlýsingu frá Hjalta Árnasyni sem kveðst ásamt félögum sínum hafa rekið útvarpsstöð í Ósló fyrir Íslendingafélagið árin 1995 til 2002. Útsendingar hafi verið í sex klukkustundir á þriðjudags- kvöldum á rás sem þeir deildu með öðrum útvarpsstöðvum og útsend- ingin náð til Óslóar og Akershus. „Þar sem ákveðið var strax í byrjun að spila aðeins íslenska tónlist var Söknuður oft leikinn,“ segir í yfirlýsingu Hjalta sem kveðst glaður munu mæta ásamt sam- starfsmanni sínum og vitna. Stefna Jóhanns Helgasonar á hendur Rolf Løvland sjálfum var loks birt Norðmanninum með atbeina norskra yfirvalda og samkvæmt Haag-sáttmálunum um stefnu- birtingar 16. ágúst síðastliðinn. Áður hafði Norðmaðurinn í tvígang endursent stefnuna til lögmanns Jóhanns. Løvland mun ekki enn hafa tilnefnt lögmann fyrir sína hönd fyrir dómstólnum í Los Angeles. SEINNA KOMST ÉG AÐ ÞVÍ AÐ STUTTU EFTIR ÚT- GÁFU PLÖTUNNAR HEFÐU EIGENDUR RÉTTARINS AÐ AUTUMN LEAVES SAKAÐ LØVLAND UM LAGASTULD. Jon Kjell Seljeseth Bók Rolfs Løvland frá árinu 2015 er nú notuð gegn honum fyrir dómi. Rolf Løvland við störf í Stúdíó Sýrlandi á Íslandi. Góður undirbúningur skiptir öllu máli Félagsmenn VR og atvinnurekendur þurfa að komast að samkomulagi um útfærslu styttingarinnar fyrir 1. desember. Ef ekkert samkomulag er gert styttist vinnudagurinn sjálfkrafa um 9 mínútur. Kynntu þér mögulegar útfærslur á vr.is/9min Á DAG Á VIKU Á MÁNUÐI3 51 54 9 Er vinnustaðurinn þinn tilbúinn? Vinnudagur félagsmanna VR styttist um 9 mínútur 1. janúar 2020 Er vinnustaðurinn þinn tilbúinn? H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 37L A U G A R D A G U R 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 0 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 3 -5 8 8 0 2 3 F 3 -5 7 4 4 2 3 F 3 -5 6 0 8 2 3 F 3 -5 4 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 4 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.