Fréttablaðið - 05.10.2019, Page 100
Lífið í
vikunni
30.09.19-
05.10.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
VERÖLD HVÍLDAR
BETRA BAK – LEGGUR GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI
BETRA BAK HEFUR LAGT GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI Í
Í tilefni 25 ára afmælis Betra Baks mun
Bergur Konráðsson, kírópraktor og einn
eiganda Kírópraktorstöðvarinnar, leið beina
viðskiptavinum okkar um svefn og val á
hentugu rúmi og koddum. Hann verður til
skrafs og ráðagerða í verslun okkar í Faxafeni
í dag, laugardag, frá kl. 13 til 15.
Kíktu við, skoðaðu afmælistilboðin
og nýttu þér góð ráð sérfræðings!
BERGUR
KONRÁÐSSON
Aukahlutur á
mynd: Höfuðgafl.
213.540 kr. AFM Æ LIS TILBOÐ
Fullt verð: 284.720 kr.
V E R Ð DÆ M I
2 5% A F S L ÁT T U R
Serta Royality heilsurúm,
160 x 200 cm dýna,
comforbotn og fætur
A F M Æ L I S A F S L ÁT T U R
25%
GILDIR TIL 12. OKTÓBER
S E R TA ROYA LIT Y
HE IL SU RÚM
19.350 kr. A FM Æ LI S TILB O Ð
Fullt verð: 25.800 kr.
C ALVIN KLE IN RÚMFÖT
Þú finnur ekki mýkri eða þægilegri
rúmföt. Koddaver + sængurver.
V E RÐ DÆ MI :
A F M Æ L I S A F S L ÁT T U R
25%
GILDIR TIL 12. OKTÓBER
ÖLL SÆNGURFÖT
Listmálarinn Þrándur Þór-arinsson og myndasögu-maðurinn Hugleikur Dags-son eru systkinabörn, af Eldjárns- og Hafstaðskyni,
og að sögn Þrándar svo nánir að tala
megi um þá sem uppeldisbræður og
að nú láti þeir loksins verða af því að
standa hvor andspænis öðrum á sam-
sýningu umkringdir fornum fjendum
sem skemmtu sér við að beita sínum
ólíku brögðum.
„Frumpælingin var að taka bara
Íslandssöguna fyrir og Hulli þá í
teiknimyndasögum og ég í mál-
verkum en síðan breyttist það bara í
einhverja sögu um Sæmund fróða og
Kölska og að gera bara teiknimynda-
sögu um þá félaga að lenda í ævin-
týrum,“ heldur Þrándur áfram.
„En lendingin var síðan að lokum
að sækja þessar forynjur, fordæður
og furðuskepnur úr hugarfylgsnum
okkar í þetta óguðlega samstarfs-
verkefni okkar frændanna.“ Hug-
leikur segir þá einfaldlega hafa sótt
„okkar uppáhalds skúrka og skrímsli
úr íslenskum þjóðsagnaarfi“ og att
þeim saman þannig að málverk og
myndasaga mynda 22 tvennur sem
hver um sig telst eitt verk og selst sem
slíkt. Þrándur hefur þróað sinn per-
sónulega stíl undir áhrifum gömlu
meistaranna með Goya fremstan í
flokki og hefur oft blandað gömlum
þjóðsagnaminnum saman við olíu-
málninguna þannig að hann fór
á kunnuglegar slóðir með frænda
sínum. „Hulli hefur reyndar verið
alveg jafn mikið í þessu þótt hann sé
mikið með nútíma hroðbjóðinn og
hefur verið með til dæmis jólaköttinn
og margs konar kvikindi.
Við erum heldur ekki að segja ein-
hverjar gamlar þjóðsögur heldur bara
vinna úr þessu og búa til eitthvað
nýtt og laga þetta að nútímanum.“
Málað á slóðum Sæmundar
Þrándur segir að ekki hafi vafist fyrir
þeim frændum hvaða óféti þeir ættu
að taka fyrir. „Það small bara einhvern
veginn saman hverjum ætti að etja
saman en við erum reyndar búnir að
gera þetta svolítið hvor í sínu landi,“
segir Þrándur sem er nýkominn frá
tveggja mánaða dvöl í París þar sem
hann sótti það sem hann kallar ómet-
anlegan innblástur í Louvre-safninu.
„Það er eiginlega bara það skemmti-
legasta sem ég geri að fara á þessi söfn
og skoða málverk fyrri alda og ég
gíraðist alveg gríðarlega í Louvre og
dreif mig svo bara á vinnustofuna að
mála. Það var alger himnasending að
geta gert þetta svona í tvo mánuði og
ég held að ég hafi sjaldan fundið fyrir
svona mikilli vinnugleði þótt ég sé nú
alltaf voðalega kátur í vinnustofu.“
Þrándur segir sýninguna þann-
ig innblásna af París og að þess
sjáist merki á sýningunni þar sem
hann kinki kolli í virðingarskyni til
borgarinnar sem einmitt Sæmundur
fróði sótti sér fróðleik til fyrir lifandis
löngu.
Hann á afmæli hann Hulli
Hulli og Þrándur segja Andspænis
vera afmælissýningu þar sem Hulli á
afmæli í dag, fæddur 5. október 1977.
„Opnunin er á afmælinu hans og svo
á ég afmæli tveimur dögum seinna.
Það hittir bara svo heppilega á að
hann á afmæli á laugardag,“ segir
Þrándur sem verður 41 árs á mánu-
daginn. Sléttu ári eftir að hann hélt
afmælissýningu á verkum sínum.
toti@frettabladid.is
Frændur andspænis
í óguðlegu samstarfi
Andspænis etja náfrændurnir Þrándur Þórarinsson
og Hugleikur Dagsson saman skoffínum og skrímslum
í málverkum og myndasögum.
Þrándur Þórarinsson og Þórarinn Hugleikur Dagsson opna Andspænis í Gallery Porti í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hugleikur fróði andspænis Kölska
frænda í einu verka Þrándar.
JURTIN FORBOÐNA
Þórunn Þórs Jónsdóttir er einn af
stofnendum Hampfélagsins sem
stóð fyrir ráðstefnu á Grand Hót-
eli um kosti hampsins og CBD-olí-
unnar sem er unnin úr plöntunni
og þykir virka vel sem verkjalyf og
jafnvel búa yfir lækningamætti
þótt hún sé víða bönnuð sem
fíkniefni. Erlendir og íslenskir
sérfræðingar
mættu til leiks
og miðluðu
þekkingu sinni
og reynslu af
plöntunni og
nýtingu hennar.
HEFURÐU SENT
TYPPAMYND?
Kynfræðingurinn Sigga Dögg fór
af stað með fróðleikskönnun
um typpi og vonast til þess að fá
svör frá sem flestum við ýmsum
spurningum sem einhverjum
körlum þykja fullágengar. Niður-
stöðuna ætlar hún að kynna á
samkomu í næsta mánuði í von
um að hægt sé
að kveða niður
ranghugmyndir
sem valda
mörgum karl-
inum miklum
sársauka.
PABBAHELGAFJÖR
Góð stemning var í Bíói Paradís
þegar tveir fyrstu þættir sjón-
varpsþáttanna Pabbahelgar voru
forsýndir á RIFF. Nanna Kristín
Magnúsdóttir skrifar handritið,
leikur aðalhlutverkið og er einn
framleiðenda þáttanna sem hefja
göngu sína á RÚV annað kvöld.
FLJÓTT, FLJÓTT
SAGÐI FUGLINN
„Á sunnudaginn tekur Fuglinn
flugið,“ segir Dóri DNA um Fugl,
viðburð sem hann og Ben Boor-
man félagi hans standa fyrir og
lýsa sem
einstakri
matarupp-
lifun sem
þeir ætla
að bjóða
upp á í vín-
stúkunni Tíu
sopar við
Laugaveg.
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R60 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
F
3
-4
E
A
0
2
3
F
3
-4
D
6
4
2
3
F
3
-4
C
2
8
2
3
F
3
-4
A
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
4
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K