Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.05.1995, Page 34
32
Sveitarsjóðareikningar 1993
Lj óst er að í ársreikningi sveitarsjóðs er rekstrary firliti ekki
ætlað að gefa glögga mynd af hagnaði eða tapi á viðkomandi
tímabili heldur ráðstöfun tekna hans til hinna ýmsu verkefna
samanborið við fjárhagsáætlun. I efnahagsreikningi sveitar-
sjóða er dregin fram peningaleg staða sem niðurstöðutala en
ekki er lagt upp úr að sýna eiginíjárstöðu í samræmi við
almennar reikningsskilaaðferðir atvinnuíýrirtækja. Sveitar-
sjóðum ber því að beita sértækri reikningsskilaaðferð sbr. a-
lið 9. gr. reglugerðar nr. 280/1989. Þar skipta eftirfarandi
atriði mestu máli:
a. Skatttekjur, ráðstöfun þeirra og ijármagnshreyfingar
með samanburði við flárhagsáætlun.
h. Peningaleg staða í upphafi og við lok tímabils.
c. Lykiltölur.
d. Skýringar.
Eftirfarandi yfirlit sýnir helstu frávik í reikningsyfirlitum
sem byggjast á almennum reikningsskilum annars vegar og
þar sem beitt er sértækri reikningsskilaaðferð hins vegar.
Sveitarfélögin hafa smám saman verið að þróa uppgjörsað-
ferðir sínar í átt til sértækra reikningsskila og kemur hér
einnig fram hvenær helstu breytingar áttu sér stað.
Almenn aðferð
Rekstrarreikningur
„Sjóðstreymi” (Hét einnig
fjármagnsyfirlit en var
sjóðstreymi)
Efnahagsreikn. (eiginQárstaða)
Sértœk aðferð
Rekstrar- og framkvæmdayfirlit
Fjármagnsyfirlit
Efnahagsreikn.(peningaleg staða)
Raunbreyting peningalegrar stöðu
Lykiltölur
Hvenœr breytt
Breyttist með ársreikningi 1979
Breyttist með ársreikningi 1990
(Nýtt fjármagnsyfirlit)
Breyttist með ársreikningi 1990
Yfirlit tekið upp í ársreikn. 1990
Yfirlit tekið upp í ársreikn. 1990
Uppsetning rekstrar- og framkvæmdayfirlits var svipuð
bæði árin 1989 og 1990. Þó er rétt að nefna tvær breytingar.
Árið 1990 voru allar skatttekjur færðar undir liðinn sam-
eiginlegar tekjur en ýmsar tekjur sem voru áður færðar á
þennan lið bókfærast nú á viðkomandi málaflokka. Fram til
ársins 1989 voru færslur vaxta í reikningsskilum sveitar-
félaga mismunandi og hefúr það gert samanburð áreikningum
þeirra erfiðan. Frá 1990 er sveitarfélögum gert að færa allar
vaxtatekjur, vaxtagjöld og verðbætur á málaflokk 28 og þar
er einnig gert ráð fyrir möguleika á færslum reiknaðra
fjármagnsliða.
Meginmarkmið efnahagsreiknings sveitarsjóðs og þeirra
fyrirtækja og stofnana sveitarfélaga sem beita sértækum
reikningsskilaaðferðum er að draga fram peningalega stöðu
þeirra í árslok. Peningaleg staða er í raun sú fjárhæð í
efnahagsreikningi sveitarsjóðs semmestumáli skiptir. Fasta-
ljármunir eru sýndir ósundurliðaðir í hinni nýju uppsetningu
efnahagsreikningsins. Sundurliðun þeirra kemur fram í
sérstöku yfirliti sem Hagstofan óskar eftir frá sveitar-
félögunum. Gert er ráð fyrir að gárfesting sveitarfélaga
verði í auknum mæli gjaldfærð á komandi árum. Hér kemur
einkum til að með nákvæmri skilgreiningu á peningalegri
stöðu skiptir færsla annarra eigna í efnahagsreikningi sveitar-
sjóðs minna máli en áður. Einnig er mikilvægt ákvæði í
reglugerðinni nr. 280/1989 þess efnis að sveitarfélög eigi að
halda nákvæma eignaskrá. Gert er ráð fyrir að í efnahags-
reikningi komi ffam tilvísun í skýringar vegna upplýsinga
um eignir og skuldhindingar utan efnahagsreiknings. Fram
til ársins 1989 miðaði úrvinnsla Hagstofú við að „hrein eign
eigin fyrirtækja með sjálfstæðan fjárhag” færðist sem sjálf-
stæður liður í eignahlið efnahagsreiknings sveitarsjóðs. Frá
ársbyrjun 1990 var þessi liður felldur úr efnahags-
reikningnum.
Frá árinu 1990 er reiknuð út raunbreyting á peningalegri
stöðu frá upphafi reikningsárs til ársloka miðað við vísitölu
byggingarkostnaðar á sérstöku yfirliti í reikningum sveitar-
sjóða. Breytingu á peningalegri stöðu má stemma af við
heildamiðurstöður á rekstrar- og framkvæmdayfirliti þegar
sú ijárhæð hefur verið færð til verðlags í árslok.
Hinu nýja fjármagnsyfirliti er fýrst og fremst ætlað að
sýna ráðstöfun á skatttekjum sveitarfélagsins og aðrar
peningalegar hreyfmgar á því tímabili sem það tekur til.
Úrvinnsla ársreikninga 1993. Bókhaldslykill sveitarfélaga
gerir meðal annars ráð fyrir að útgjöld til málaflokka séu
brúttófærð. Við það er einnig miðað á eyðublöðum Hag-
stofu. I þessari skýrslu em sýndar þrjár megintöflur fýrir
fjármál sveitarfélaga á árinu 1993, ein tafla er fyrir fjármál
fýrirtækja sveitarfélaga og loks eru níu töflur um félags-
þjónustu sveitarfélaga.
Tafla I sýnir úrvinnslu á reikningum sveitarfélaga efltir
kjördæmum, kaupstöðum, sýslum og hreppum með fleiri en
400 íbúa. Tafla I hefst á því að sýnd er heildarfjárhæð
sameiginlegra tekna og sundurliðun þeirra. Til sameigin-
legra tekna sveitarfélaga em taldar almennar skatttekjur,
þ.e. skattar sem ekki em markaðir til ákveðinna verkefna.
Þá sýnir taflan heildarfjárhæðir rekstrargjalda og
rekstrartekna og sundurliðun þeirra á 21 málaflokk með
nokkurri greiningu á deildir og starfsemisþætti innan
málaflokka. í þriðja hluta töflunnar kemur fram svipuð
skipting gjaldfœrðrar og eignfœrðrar fjárfestingar á
málaflokka. Fjórði hluti töflunnar sýnir raunbreytingu
peningalegrar stöðu milli ára. Fimmti hluti töflunnar sýnir
efnahagsreikning en framsetning hans dregur fram
peningalega stöðu. Loks sýnir taflan ljármagnsyfirlit þar
sem fram kemur ráðstöfun skatttekna sveitarfélaganna og
aðrar peningalegar hreyfingar á árinu.
Tafla II sýnir ijárhæðir meginstærða í töflu I í krónum á
hvem íbúa sveitarfélaga eftir sömu skiptingu á kjördæmi,
kaupstaði, sýslur og hreppa og í töflu I. Þessi tafla einfaldar
mjög innbyrðis samanburð milli sveitarfélaga.
Tafla III sýnir sundurliðun á gjöldum, tekjum, eignum og