Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1995, Qupperneq 24
22
Sveitarsjóðareikningar 1994
Efnahagur sveitarfélaga 1994
Endurskoðaðurbókhaldslykillogreikningsskilsveitarfélaga
sem tekin voru upp í ársbyrjun 1990 fólu í sér gagngerar
breytingar á efnahags- og rekstrarreikningi þeirra. í árs-
reikningum sveitarfélaga er nú ekki lögð áhersla á að draga
fram hagnað eða tap, heldur er sýnd ráðstöfun á tekjum
sveitarsjóða til hinna ýmsu verkefna og þá gjarnan með
samanburði við fjárhagsáætlun. Efnahagsreikningur sveitar-
félaga tók miklum breytingum, bæði hvað snertir uppbyggingu
og niðurstöður. Lögð er áhersla á að draga fram peningalega
stöðu sveitarfélaga fremur en eiginfjárstöðu þeirra eins og
tíðkastíalmennumreikningsskilumfyrirtækjaíatvinnurekstri.
Peningaleg staða kemur fram sem mismunurinn á peninga-
legum eignum og heildarskuldum. Peningalegar eignir sveitar-
félags samanstanda af veltufjármunum og langtímakröfum
þess. Hugtakið nær því til þeirra eigna sveitarfélags sem
annað hvort eru í reiðufé eða sem unnt er að breyta í handbært
fé með tiltölulega skömmum fyrirvara án þess að raska
starfsemisveitarfélagsins. 115.yfirlitiersýndursamandreginn
efnahagsreikningur sveitarfélaganna í árslok 1993 og 1994.
15. yfírlit. Efnahagur sveitarfélaga 1993-1994
Summary 15. Local government assets and liabilities 1993-1994
Stöðutölur í árslok Milljónir króna á verðlagi í árslok Million ISK at current prices Hlutfall af vlf» Percent of GDP Balance figures at year end
1993 1994 1993 1994
I. Peningalegar eignir 13.960 12.899 3,3 3,0 Monetary assets (1. + 2.)
1. Veltufjármunir 10.676 10.525 2,6 2,4 Current assets
Sjóðir, bankareikningar o.fl. 1.637 1.272 0,4 0,3 Cash hold., bank dep. etc.
Skammtímakröfur 8.829 8.925 2,1 2,0 Short-term claims
Aðrar eignir 210 329 0,1 0,1 Other current assets
2. Langtímakröfur 3.284 2.374 0,8 0,5 Long-term claims
Óinnheimt opinber gjöld 642 150 0,2 0,0 Tax claims
Verðbréf 2.642 2.224 0,6 0,5 Loans granted
II. Skuldir 27.570 34.795 6,6 8,0 Liabilities
Skammtímaskuldir 9.911 12.532 2,4 2,9 Short-term debt
Langtímaskuldir 17.659 22.262 4,2 5,1 Long-term debt
III. Peningaleg staða (I. II.) -13.610 -21.895 -3,3 -5,0 Monetary status (I. - II.)
IV. Aðrir liðir 13.610 21.894 3,3 5,0 Other assets
Fastafjármunir 97.713 101.060 23,4 23,2 Fixed assets
Eigið fé -84.103 -79.165 -20,2 -18,1 Equity
V. Utan efnahags Outside balance sheet
Eignir 35.095 38.105 8,4 8,7 Assets
Skuldbindingar 18.576 15.100 4,5 3,5 Commitments
u Verg landsframleiðsla. Stöðutölur í árslok eru færðar til meðalverðlags hvers árs með lánskjaravísitölu. Based on average price level each year.
Mikilvæg breyting var gerð á bókhaldi sveitarfélaga í
ársbyrjun 1990 við færslu eigna sveitarfélaga í fyrirtækjum.
Gerður var greinarmunur á því hvort fyrirtækið væri alfarið
í eigu sveitarsjóðs eða um væri að ræða eign í hlutafélagi eða
sameignarfyrirtæki. Þannig er fyrirtæki, þótt það sé að öllu
leyti eign sveitarfélags, ekki lengur talið meðal eigna sveitar-
sjóðs í efnahagsreikningi. Hins vegar koma eignarhlutir í
fyrirtækjum og hlutabréf til eignfærslu. Eignarhlutir og
hlutabréf teljast annað hvort meðal peningalegra eigna eða
fastafjármuna. Sé ákveðið að selja þessar eignir færast
viðkomandi eignarhlutir og hlutabréf meðal peningalegra
eigna, að öðrum kosti teljast þær meðal fastafjármuna.
Peningaleg staða sveitarfélaga versnaði um 8,3 milljarða
króna á árinu 1994 eða um 1,7% af landsframleiðslu og eigið
fé þeirra sem hlutfall af landsframleiðslu lækkaði um 2,1%.
116. yfirliti er sýndur efnahagur hinna ýmsu flokka sveitar-
félaga á íbúa.