Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1995, Blaðsíða 39
Sveitarsjóðareikningar 1994
37
3. Bókhaldslykill sveitarfélaga, úrvinnsla gagna og skýringar við töflur
Local govemment chart of accounts, processing ofdata and explanatory notes to the tables
Bókhaldslykill Samhands íslenskra sveitarfélaga
Grundvallarlykill hins samræmda bókhalds hefur 8 sæti.
Fyrstu tvö sætin sýna málaflokka og bókhaldseiningar
sveitarsjóðs. Þau eru bundin fyrir öll sveitarfélög. Næstu tvö
sæti eru notuð til sundurliðunar í deildir og starfsemisþætti.
Næstu þrjú sæti lykilsins (5.-7.) skipta útgjöldum og tekjum
eftir tegundum. Loks er síðasta sæti ly kilsins notað til flokkunar
á tekjum og gjöldum á rekstur, gjaldfærða fjárfestingu eða
eignfærða fjárfestingu.
Arsreikningsform Hagstofu fylgir bókhaldsly klinum en er
ekki jafn sundurliðað. Það sýnir fyllstu sundurgreiningu á
fyrstu tvö sæti lykilsins og það síðasta. Hins vegar er ekki
beitt fyllstu sundurliðun á 3. og 4. sæti og formið gerir ekki
ráð fyrir greiningu á tegundir samkvæmt 5.-7. sæti lykilsins.
Eftirtöldum meginreglum er beitt í uppgjöri Hagstofunnar
um færslu bókhalds og reikningsskil sveitarfélaga:
Allar tekjur og gjöld sem tilheyra hverju uppgjörstímabili,
þ.e. almanaksárinu, eru færð á því tímabili án tillits til hvenær
greiðsla fer fram. Með öðrum orðum þá er um svonefndan
rekstrargrunn að ræða. Óinnheimtar tekjur færast til tekna á
rekstrarreikningi og til eignar í efnahagsreikningi. A sama
hátt færast ógreidd gjöld til gjalda í rekstrarreikningi og til
skuldar í efnahagsreikningi.
I einu heildaryfirliti, rekstrar- og framkvæmdayfirliti, er
greintámillirekstrarsveitarfélaga.gjaldfærðrarfjárfestingar
og eignfærðrar fjárfestingar þeirra. A rekstur færast allar
tekjur og gjöld sem varða rekstur sveitarsjóðs. A gjaldfœrða
fjárfestingu færast útgjöld vegna allra framkvæmda og
eignabreytinga sem ekki eru eignfærð í efnahagsreikningi.
Liðir eins og götur, holræsi, leikvellir, skrúðgarðar, innan-
stokksmunir og áhöld teljast því til gjaldfærðrar fjárfestingar.
I tekjuhlið er færð bein þátttaka annarra aðila í viðkomandi
gjaldfærðri fjárfestingu svo sem gatnagerðargjöld og þétt-
býlisvegafé. Til eignfœrðrarfjárfestingar teljast útgjöld til
kaupa á fasteignum, vinnuvélum, bílum og vélasamstæðum.
Þessar eignir eru færðar í eignahlið efnahagsreiknings. Bein
þátttaka annarra í eignfærðri fjárfestingu, t.d. framlög úr
ríkis-sjóði, eru færð í tekjuhlið eignfærðrar fjárfestingar.
Ekki er reiknað með árlegri afskrift húseigna eða annarra
varanlegra rekstrarfjármuna sveitarsjóðs heldur er verðmæti
eigna fært í samræmi við mat eins og það er á hverjum tíma.
Gert er ráð fyrir að breyting á matsverði sé fœrð á
endurmatsreikning undir liðnum eigið fé í efnahagsreikningi.
Breytingar ársreikninga sveitarfélaga 1990
I VIII. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 er fjallað um
fjármál sveitar-félaga. Reglugerð samkvæmt 81. gr. laganna,
um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, var sett á árinu
1989. f I. kafla reglugerðarinnar eru ákvæði um bókhald
sveitarfélaga. Þar segir m.a. að gefin skuli út handbók um
reikningshald sveitarfélaga og fy rirtækja þeirra þar sem fram
komi leiðbeinandi reglur um flokkun og greiningu á tekjum
og gjöldum, eignum og skuldum sveitarfélaga á hverjum
tíma. Slíkurbókhaldslykill fyrirreikningasveitarfélagahefur
eins og áður sagði verið í notkun frá reikningsárinu 1979.
Setning reglugerðarinnar breytti litlu hvað þetta varðar og
breytingar á málaflokkum rekstrar- og framkvæmdayfirlits
voru óverulegar.
f II. kafla reglugerðarinnar eru ákvæði um ársreikninga
sveitarfélaga. í 9. gr. hennar segir að sveitarfélög, stofnanir
þeirra og fyrirtæki skuli beita eftirtöldum reikningsskila-
aðferðum:
a) Sértækum reikningsskilum fyrir sveitarsjóði og stofnanir
sveitarfélaga sem reknar eru á sambærilegum grundvelli.
b) Almennri reikningsskilaaðferð hjá fyrirtækjum í atvinnu-
rekstri.
Með þessu er kveðið á um að reikningar sveitarsjóða eigi
að fylgja sértækri reikningsskilaaðferð en ekki almennri.
Þróuníþááttvarhafináðurogmeðupptökubókhaldslykilsins
1979 var stigið stórt skref í þá átt, sérstaklega hvað varðar
færslu bókhaldsins (rekstrar- og framkvæmdayfirlit í stað
hreins rekstrarreiknings) en í uppgjöri var í efnahags-
reikningnum áfram stillt upp samkvæmt almennri reiknings-
skilaaðferð (áhersla á eiginfjárstöðu fremur en peningalega
stöðu) og einföldu sjóðsstreymi.
I handbók bókhaldsnefndar Sambands íslenskra sveitar-
félaga, sem gefin var út samkvæmt reglugerðinni (Handbók
um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga, nóvember 1991),
eru sveitarfélög hvött til að endurskoða þær reikningskila-
aðferðir sem beitt hafði verið hjásveitarsjóðum og fyrirtækjum
þeirra fram til ársins 1990. Til leiðbeiningar við ákvörðun um
val á reikningsskilaaðferð er meðal annars bent á að rétt sé að
hafa í huga h vort rekstrary firliti sé ætlað að gefa glögga mynd
af hagnaði eða tapi á viðkomandi tímabili og einnig hvort
eiginfjárstaða í efnahagsreikningi eigi að vera í samræmi við
almennt viðurkenndar reikningsskilaaðferðir fyrirtækja í
atvinnurekstri.
Bókhaldsnefndin gefur út eftirfarandi aðalreglur varðandi
reikningsskilaaðferðir hjá sveitarsjóði og algengustu fyrir-
tækjum sveitarfélaga (Handbók, kafli 5.1 bls. 1):
Sveitarsjóður og fyrirtæki Reikningsskila-
aðferð sbr. 9. gr.
S veitarsj óður.................. sértæk
Hafnarsjóður..................... sértæk
Vatnsveita....................... sértæk
Rafveita......................... almenn
Hitaveita........................ almenn
Félagslegar íbúðir............... sértæk
Strætisvagnar.................... almenn
Félagsheimili.................... sértæk
Framkvæmdasjóður................. almenn
Lífeyrissjóður - eftirlaunasjóður ... almenn
Ljósteraðíársreikningisveitarsjóðserrekstraryfirlitiekki
ætlað að gefa glögga mynd af hagnaði eða tapi á viðkomandi
tímabili heldur ráðstöfun tekna hans til hinna ýmsu verkefna
samanborið við fjárhagsáætlun. I efnahagsreikningi sveitar-
sjóða er dregin fram peningaleg staða sem niðurstöðutala en
ekki er lagt upp úr að sýna eiginfjárstöðu í samræmi við