Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1995, Blaðsíða 32
30
Sveitarsjóðareikningar 1994
24. yfirlit. Útgjöld sveitarfélaga til leikskóla 1993-1994
Summary 24. Local government expenditure on daycare institutions 1993 -1994
Millj. kr. Mill. ISK Rekstur dagvista sveitarfélaga á verðlagi hvers árs Operational outlays and revenues of municipal daycare at current prices Tekjur sem hlutfall af gjöldum, % Revenues as percent Framlög til rekstrar dagvista annarra Transfers to other Framlög sem hlutfall heildarútgjalda, % Transfers as percent of total Vísitala rekstrarútgjalda Index of
Gjöld Tekjur
Expenditure Revenue of expenditure daycare expenditure operational outlays
1993 2.933,9 1.047,9 35,7 70,1 2,3 100,0
1994 3.246,8 1.199,5 36,9 118,1 3,5 108,8
Samkvæmt 24. yfirliti jukust tekjur sveitarfélaga af
leikskólum úr tæplega 36% af útgjöldum til þeirra árið 1993
í tæplega 37% árið 1994. Þessar tekjur eru fyrst og fremst
greiðslur foreldra fyrir vist barna sinna en til viðbótar er
rúmlega 80 millj. kr. greiðsla rfkissjóðs vegna svonefndra
stuðningsbarna; barna sem vegna fötlunar þurfa eftirlit og
aðstoð umfram önnur börn. Rekstrarútgjöld sveitarfélaga
vegna þessa málaflokks jukust um 9% á föstu verðlagi frá
1993 til 1994. Á sama tíma fjölgaði „heilsdagsbörnum“ í vist
á vegum sveitarfélaga um 6,4% eða úr 7.602 börnum árið
1993 í 8.091 barn árið 1994. f yfirlitinu sést að rekstrar- og
styrktarframlög sveitarfélaga til leikskóla sem reknir eru af
öðrum námu um 3,5% af heildarútgjöldum sveitarfélaganna.
25. yfirlit. Dagvist barna á einkaheimilum 1993-1994
Summary 25. Childcare in private homes 1993 -1994
Fjöldií 0-2 ára years 3-5 ára years Fjöldi barna í hlutfalli af aldursflokki Fjöldi dagmæðra Child
árslok 6-10 ára Children Percentage ofage groups
End-of-year data Alls Heilsdagsvist Alls Heilsdagsvist 0-2 ára 3-5 ára 6-10 ára
Total 7-8 hours Total 7—8 hours 6-10 years years years years minders
1993 1.495 547 476 90 147 10,8 3,4 0,7 596
1994 1.521 490 423 88 127 11,4 3,1 0,6 526
í 25. yfirliti sést fjöldi barna í dagvist á einkaheimilum hjá
skráðum dagmæðrum í sveitarfélögum með 400 eða fleiri
íbúa árin 1993 og 1994. Fyrra árið voru 2.118 börn í slíkri
dagvist, þar af 637 í heilsdagsvist. Árið 1994 voru börn í
dagvist á einkaheimilum 2.071, þar af voru börn í heilsdagsvist
578. Þannig fækkaði börnum í heilsdagsvist á einkaheimilum
heldur meira en nam heildarfækkun bama sem vistuðust á
einkaheimilum. Um 73% bama í vist af þessu tagi eru 2 ára
og yngri. Dagmæðrum fækkaði um 70 milli áranna 1993 og
1994, tæplega 12%. Reiknaður fjöldi „heilsdagsbarna" jókst
þó ekki meira en úr 2,3 börnum á hvert heimili árið 1993 í 2,5
árið 1994 þrátt fyrir fækkun dagmæðra og er það í samræmi
við heildarfækkun barna í heilsdagsvist.
Samkvæmt þessum niðurstöðum um dagvist barna á
leikskólum og í heimahúsum voru 10,9% allra barna 2 ára og
yngri í heilsdagsvist á árinu 1994 og 21,5% barna 3-5 ára.
Þegar fj öldi bama í skemmri vist á leikskólum og í heimahúsum
er lagður saman verður niðurstaðan sú að 21,5% barna 2 ára
og yngri og 62,6% barna 3-5 ára hafa verið í dagvist hluta úr
degi árið 1994. Hér kann að gæta tvítalningar í þeim tilvikum
þar sem barn er í leikskóla hluta úr degi og hjá dagmóður hinn
hlutann. Með fyrirvara um tvítalningu er niðurstaðan sú að
32% af öllum börnum 2 ára og yngri og 82% af öllum börnum
3-5 ára hafa verið í dagvist á árinu 1994.