Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.05.1998, Blaðsíða 11
Inngangur
Gagnasöfnun
Upplýsingar um utanríkisverslun byggjast að mestu leyti á að-
flutningsskýrslum innflytjenda og útflutningsskýrslum út-
flytj enda. Aðflutningsskýrslur eru tölvuskráðar hj á tollstj órum
og hefúr Hagstofan aðgang að gagnaskrám Rikistollstjóra og
sækir þangað upplýsingar með vélrænum hætti. Þessar upp-
lýsingar eru yfirfamar og leiðréttar eins og kostur er. Oft er
haft samband við viðkomandi innflytjendur eða útflytjendur
til nánari útskýringa eða leiðréttingar. Á árinu 1997 höfðu toll-
yfirvöld ekki hafið tölvuskráningu útflutningsskýrslna og því
fór skráning þeirra enn fram á Hagstofimni eins og verið hefúr.
Hagstofan skráir einnig aðflutningsskýrslur frá Tollpóststofú.
Víðar er leitað upplýsinga um utanríkisverslun en af toll-
skýrslum. Siglingastofiiun Islands (Skipaskrá) og Flugmála-
stjóm, Loftferðaeftirlit, gefa upplýsingar um kaup og sölu á
flugvélum og skipum og er haft samband við hlutaðeigandi
kaupendur og seljendur til nánari upplýsinga. Siglingastofnun
gefur upplýsingar um hvaða skip fara utan til breytinga. I
framhaldi af því er haft samband við fyrirtæki sem hlut eiga
að máli til nánari upplýsinga. Sendar eru fyrirspumir til
fyrirtækja í viðkomandi atvinnugrein um endurbætur á
erlendum skipum ffamkvæmdar af íslenskum fyrirtækjum.
Fiskifélag íslands gefúr upplýsingar um landanir íslenskra
fiskiskipa í erlendum höfhum og fiskiskipa í eigu íslenskra
aðila sem em skráð erlendis (þ.e. sigla undir hentifána).
Umfang
Hagstofan fylgir að mestu leiðbeiningum Sameinuðu þjóðanna
um skilgreiningu og meðferð talnaefnis um utanríkisverslun
(United Nations: Intemational Trade Statistics, Concepts and
Defmitions), þ.e. hvað er tekið með, hvemig og hvenær. Um
er að ræða vöruviðskipti og er almenna skilgreiningin sú að
allur innflutningur og útflutningur sem eykur eða skerðir
efnislegar auðlindir lands á að teljast með í utanríkisverslunar-
tölum. Venja er að greina á milli tvenns konar grundvallarreglna
um skýrslur varðandi utanríkisverslun, almennra verslunar-
reglna (general trade system) og sértækra verslunarreglna (spe-
cial trade system). Munur á þessum reglum felst aðallega í
skráningu á vöm sem flutt er í tollvömgeymslu og á ffísvæði.
Samkvæmt almennu verslunarreglunum er vara skráð sem
innflutt þegar hún kemur inn í tollvömgeymslu/frisvæði en
samkvæmt sértæku verslunarreglunum er varan skráð þegar
hún fer úr tollvörugeymslu/frísvæði inn í landið. Hérlendis
hefúr almennu verslunarreglunum verið fylgt en ffá og með
árinu 1998 verða sértæku reglumar teknar upp.
Dæmi um liði sem em meðtaldir í íslenskum skýrslum
um utanríkisverslun:
- Gull sem söluvara
- Vörur sendar í pósti, að verðmæti meira en 25.000
krónur
- Vömr sem fluttar em inn í landið eða út úr því til ffekari
vinnslu
- Ýmsar vörur með hátt hlutfall þjónustu (t.d. skipulags-
teikningar, spólur, hugbúnaður o.s.frv.)
- Skip og flugvélar í forum milli landa
- Landanir erlendra fiskiskipa í innlendum höfnum
- Landanir íslenskra fískiskipa erlendis og einnig landanir
hentifánaskipa erlendis, skipa í eigu Islendinga
- Vömr í eignarleigu (eitt ár eða lengur)
- Endursendar vömr
- Meiri háttar viðgerðir og endurbætur
Dæmi um liði sem ekki em meðtaldir í íslenskum skýrslum
um utanríkisverslun:
- Vömr sem koma til landsins en flytja á áfram (transit)
- Tímabundinn innflutningur og útflutningur (t.d. vegna
ýmiss konar sýninga)
- Eldsneyti, vistir og önnur aðföng seld erlendum skipum
eða flugvélum innanlands
- Eldsneyti, vistir og önnur aðföng keypt erlendis fyrir
íslensk skip eða flugvélar
- Ólögleg verslun
- Vömr ffá ríkisstjóm til sendiráða og fulltrúa ríkisins
erlendis og aðsendar vömr til sendiráða og fulltrúa
erlendra ríkja innanlands
- Gull til myntsláttu
- Vömr í afnotaleigu (innan við eitt ár)
- Verðlítil sýnishom
- Keypt eða seld hentifánaskip
- Afli sem hentifánaskip í eigu íslendinga landar í íslenskri
höfn
- Vömviðskipti vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli
- Vömsala á Keflavíkurflugvelli
Flokkun
Tollskrárnúmer
Flokkun vömtegunda í utanríkisverslun byggist á tollskrá.
Núgildanditollskrá tókgildihinn l.janúar 1988 skv. lögum
nr. 96/1987 um breyting átollalögum nr. 55/1987. Tollskráin
by ggist á hinni alþj óðlegu vömflokkunarskrá Tollasam vinnu-
ráðsins í Bmssel. Alþjóðlega skráin er nefhd Hið samrœmda
flokkunarkerfi og er þekkt undir skammstöfúninni HS eftir
hinu enska heiti sinu (the Harmonized Commodity Descrip-
tion and Coding System). HS-skráin var viðtekin með
samningi Tollasamvinnuráðsins í Bmssel í júní 1983 og gefm
út árið 1985. íslendingar vom aðilar að þessum samningi og
var hann fúllgiltur af íslands hálfú í júní 1986. HS-skráin
tók gildi í flestum aðildarríkjum Tollasamvinnuráðsins ffá
og með 1. janúar 1988. Samkvæmt gildandi tollalögum er
heimilt að breyta einstökum tollskrámúmerum með auglýsingu
um breytingu á viðauka I við lögin. Slíkar breytingar, misjafh-
lega umfangsmiklar, hafa verið gerðar á hverju ári, m.a. til
samræmis við breytingar á HS-skránni.
HS-skráin er sex stafa flokkunarkerfi þar sem tveir fyrstu
stafimir mynda kafla ff á 01 -97 og em vömr flokkaðar innan