Vinnumarkaður - 01.10.1994, Page 16

Vinnumarkaður - 01.10.1994, Page 16
14 Y firlit yfir helstu niðurstöður Atvinnustétt. Töflur 4.7-4.8 Á árunum 1991-1993 jókst hlutfall launþega úr 80% í 82% af öllu starfandi fólki. Fleiri karlar en konur reka eigin starfsemi, einkum karlar eldri en 35 ára. Um 21-25% karla eru sjálfstætt starfandi en innan við 10% kvenna. Hlutfall sjálfstætt starfandi er hæst í fámennum sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins enda eru bændur þar fjölmennastir. Ef litið er á atvinnustétt eftir menntun kemur í ljós að sjálfstætt starfandi eru hlutfallslega flestir meðal karla með starfs- og framhaldsmenntun. Starfshlutfall. Töflur 4.10-4.12. Mynd 2.10 Verulegur munur er á starfshlutfalli karla og kvenna. Yfir 90% karla eru í fullu starfi en einungis um helmingur kvenna. Menntun virðist þó skipta þarna nokkru máli þar sem háskólamenntaðar konur gegna frekar fullu starfí en konur með minni menntun. Þá eru karlar líklegri en konur til að stunda fleiri en eitt starf. Vinnustundir. Töflur 4.19-4.39. Mynd 2.9 Karlar vinna að jafnaði fleiri stundir á vinnumarkaði en konur. Yfir 70% kvenna í fullu starfi vinna að jafnaði 35-45 stundir á viku en einungis 30-40% karla. Tæp 20% karla vinna meira en 61 tíma á viku en innan við 4% kvenna. Launþegar vinna að jafnaði færri vinnustundir en þeir sem vinna sjálfstætt. Fólk í dreifbýli vinnur að jafnaði lengri vinnuviku en fólk á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er teljandi munur á lengd vinnuviku eftir menntun. Meðalvinnutími kvenna í fullu starfi er um 44 klst á viku en karla um 53 klst. Lengsti vinnutíminn virðist vera hjá bændum og sjómönnum. Atvinnugremar. Töflur 4.13-4.15 Hlutfallslega flestir starfa í iðnaði eða 16-17% starfandi fólks. Þar vegur fiskiðnaðurinn þyngst eða 6-7%. Samtals vinnur 10-11% starfandi fólks við fískveiðar og fiskvinnslu. Um 15-16% starfa við verslun og viðgerðarþjónustu og 13- 14% starfa við heilbrigðis- og félagsþjónustu. Nokkur munur er á atvinnugreinaskiptingu karla og kvenna. Þeir sem stunda fiskveiðar, vinna við veitustarfsemi eða mannvirkja- gerð eru nær eingöngu karlar en konur eru íjölmennari en karlar í heilbrigðis- og félagsþjónustu svo og í fræðslu- starfsemi og annarri samfélagslegri þjónustu. Á höfuðborgar- svæðinu eru störf í þjónustugreinum hlutfallslega fleiri en annars staðar á landinu en störf í framleiðslugreinum hlutfallslega fleiri utan þess. Háskólamenntað fólk vinnur flest í þjónustugreinum s.s. fræðslu- og heilbrigðisgreinum, viðskiptum og opinberri þjónustu. Fólk með grunnmenntun starfar einkum í iðnaði, verslun og viðgerðarþjónustu. Starfsgreinar. Töflur 4.16-4.18 Ákveðinn munur virðist vera á því í hvaða starfsgreinar karlar og konur raðast. Konur vinna helst við þjónustu, verslunar- og skrifstofustörf en karlar eru meira í sérhæfðum störfum í iðnaði og véla-/vélgæslustörfum. Bændur og fiskimenn eru að miklum meirihluta karlar. Fleiri karlar en konur eru í störfum stjómenda og embættismanna. Nokkuð jöfn skipting er milli kynja í störfum sérfræðinga. Konur eru fjölmennastar í flokki ósérhæfðs starfsfólks. Flest störf í flokki stjómenda, sérfræðinga og sérmenntaðs starfsfólks eru á höfuðborgarsvæðinu. Utan þess eru vega störf í framleiðslugreinum þyngst. Onóg atvinna. Töflur 4.40-4.41 Hlutfall þeirra sem teljast vera í ónógri vinnu hefur hækkað úr 1,5% árið 1991 í 3,4% árið 1993. Bágt atvinnuástand kemur því ekki einungis í ljós með auknu atvinnuleysi heldur minnkar vinnan líka hjá þeim sem hafa vinnu. Af fólki í vinnu virðist 8-9% vera að leita sér að annarri vinnu. Ástæða þess að fólk vill skipta um vinnu er fremur ósk um betri vinnuskilyrði en ótti við að missa starfið sem það hefur. 1.3 Atvinnulausir Þróun atvinnuleysis. Töflur 3.1, 3.2, 4.1. Myndir 2.Ó-2.8 I þeim sex könnunum sem gerðar vom árin 1991-1993 mældist atvinnuleysi minnst 1,9% af vinnuafli í apríl 1991. Atvinnuleysi jókst síðan í 3,2% í nóvember 1991, 3,6% í apríl 1992, 5,0% í nóvember 1992 en mest mældist það 5,5% í apríl 1993. Að meðaltali var atvinnuleysi 2,5% árið 1991, 4,3% árið 1992 og 5,3% á árinu 1993. Þetta svarar til þess að fjöldi atvinnulausra hafi verið 3.600 árið 1991, 6.200 ári síðar og 7.600 árið 1993. Atvinnuleysi meðal kvenna jókst jafnt og þétt frá apríl 1991 til nóvember 1993. Sveiflur í hlutfallslegu atvinnuleysi karla og fólks í smærri sveitarfélögum vom meiri á tímabilinu. Á tímabilinu 1991- 1993 jóst atvinnuleysi mest hjá 16-24 ára aldurshópnum. Atvinnuleysi er jafnframt mest á því aldursskeiði. Lengd atvinnuleitar. Töflur 4.42-4.43 Versnandi atvinnuástand 1991-1993 kom ekki aðeins fram í auknu atvinnuleysi, heldur líka í lengingu þess. Atvinnu- leitendur sem höfðu verið 6 mánuði eða lengur að leita að vinnu voru um 12% allra atvinnulausra 1991 en um 27% atvinnulausra 1993. Þessi aukni tími sem fór í atvinnuleit virðist helst bitna á atvinnuleitendum á höfuðborgarsvæðinu. Aðferð við atvinnuleit. Töflur 4.44-4.45 Þegar athugað er hvemig atvinnuleitendur leituðu að vinnu síðustu ijórar vikur áður en spurt var, kemur í ljós að langflestir höfðu lesið blaðaauglýsingar, leitað beint til atvinnurekenda eða notið aðstoðar vina eða ættingja. Innan við ljórðungur lét skrá sig hjá opinberri vinnumiðlun. Hvorki er marktækur munur milli kynja hvað þetta varðar né eftir búsetu. Tegund vinnu sem leitað er að. Töflur 4.46-4.47 Langflestir atvinnuleitendur em að leita sér að starfi sem launþegar. Flestir karlar vilja helst fullt starf en fleiri konur leita sér að hlutastarfi en fullu starfi. Áhugi kvenna á fullu starfi virðist þó hafa aukist á tímabilinu 1991-1993. Ekki er teljandi munur á þessu eftir búsetu. Atvinnuleysi og opinber skráning. Töflur 4.48-4.49 Fólk sem ekki er í starfi er jafnan spurt að því í vinnu- markaðskönnunum Hagstofunnar hvort það sé á skrá hjá opinberri vinnumiðlun. Árin 1991-1993 vex samræmi milli
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Vinnumarkaður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnumarkaður
https://timarit.is/publication/1382

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.