Vinnumarkaður - 01.10.1994, Page 17
Y firlit y fir helstu niðurstöður
15
atvinnuleysis eins og það er skilgreint í vinnumarkaðs-
könnunum og opinberrar skráningar. Arið 1991 voru aðeins
37% þeirra sem töldust atvinnulausir skv. vinnumarkaðs-
könnunum ársins á opinberri atvinnuleysisskrá. Þetta hlutfall
var komið yfir 60% 1993. Áriðl 991 uppfylltu 39% þeirra
sem voru á atvinnuleysisskrá ekki skilyrði vinnumarkaðs-
kannananna um að teljast atvinnulausir. Þeir voru t.d. ekki
tiltækir til vinnu innan tveggja vikna. Tveimur árum síðar
var þetta hlutfall komið niður í 14%. Hér verður þó að hafa
fyrirvara á um marktækni vegna smæðar hópanna.
Astæður brotthvarfs úr fyrri vinnu. Töflur 4.50-4.51
Helsta ástæða atvinnuleysis er uppsögn úr fyrri vinnu. Oft
hefur fyrra starf verið tímabundið. Hvorki er teljandi munur
á milli karla og kvenna hvað þetta varðar né á milli
höfuðborgarsvæðis og annarra landshluta.
Atvinnuleysi eftir atvinnu- og starfsgreinum. Tafla 4.52
Séu atvinnulausir flokkaðir eftir þeirri atvinnugrein sem
þeir tilheyrðu í síðasta starfi sínu og tala þeirra lögð við
starfandi fólk í sömu atvinnugreinum kemur í ljós að
atvinnuleysi hefur verið einna mest í iðnaði, veitustarfsemi
og mannvirkjagerð. Einnig hefur atvinnuleysi verið töluvert
í fiskveiðum, en þar eru óvissumörk tiltölulega há.
Atvinnuleysi hefur verið töluvert í verslun og þjónustu-
starfsemi. Sé litið á starfsgreinar hefúr atvinnuleysi verið
mikið í öllum starfsgreinum öðrum en starfsgreinum
stjómenda og sérfræðinga. Einna mest hefur það verið
meðal vélafólks og ósérhæfðs starfsfólks.
1.4 Önnur gögn
Skráð atvinnuleysi. Töflur 5.5-5.6. Myndir 5.1-5.2.
Hlutfall fólks á aidrinum 15-24 ára af öllum atvinnulausum
sveiflast eftir árstíðum. Það er að jafnaði lægst í lok ágúst en
hæst á fyrsta og öðrum ársfjórðungi. Þetta hlutfall hefur þó
farið hækkandi, einkum eftir 1988. Þá var það undir 15% en
fór á árinu 1992 upp undir 30%.
Vinnuaflsspá. Tafla 6.1
Hagstofan áætlar að fram til aldamóta muni um 12.700
einstaklingar bætast við vinnuaflið en um 36.300 sé litið
fram til ársins 2020. A því ári gerir spáin ráð fyrir að fjöldi
fólks á vinnumarkaði nái hámarki. í samræmi við hækkandi
aldur þjóðarinnar mun fólki á vinnumarkaði Qölga í
aldurshópum eftir 45 ára en fækka á yngri aldursskeiðum.
Fjöldi í stéttarfélögum. Tafla 7.1
Samkvæmt upplýsingum frá stéttarfélögum og samböndum
stéttarfélaga voru virkir félagsmenn um 97.000 í lok árs
1993 og haföi þá fjölgað lítilsháttar frá árslokum 1991. Sé
miðað við áætlaðan fjölda launþega á árinu 1993, auk
atvinnulausra, jafngildir það að um það bil 81% launþega
hafi verið aðilar að verkalýðsfélögum á því ári en 84% á
árinu 1991. Aðild karla að stéttarfélögum virðist vera
hlutfallslega meiri en kvenna. Þessum útreikningum verður
þó að taka með fyrirvara, þar sem ekki er um sambærileg
gögn að ræða hvað varðar gagnasöfnun og tímaviðmiðun.