Gistiskýrslur - 01.08.1995, Blaðsíða 22
20
Gistiskýrslur
Skýringar við töfluhluta
Töflur 1-5 sýna tölur um gistirými, gistinætur og nýtingu
gistirýmis á hótelum og gistiheimilum. I fyrstu tveimur
töflunum eru annars vegar tölur fyrir gististaði sem opnir
eru allt árið og hins vegar sumargististaði. Gistirými gististaða
sem opnir eru allt árið, sem birt er í töflu 1, er gistirými
sumarmánaðanna, en þá er gistirýmið nokkru meira en á
vetuma. I töflu 3 em tölur um gistirými eftir ársþriðjungum.
Tölur um fjölda gistinátta og nýtingu gistirýmis er að finna í
töflum 4 og 5. Gististöðum er skipt í tvo flokka eftir stærð.
Fyrri flokkurinn nær til hótela og gistiheimila með 1 -59 rúm,
sá síðari til þeirra sem hafa 60 rúm eða fleiri. Ekki þótti ráðlegt
að hafa flokkana fleiri þar sem víða hefði einungis verið eitt
gistihús í flokki og þá ekki hægt að birta nýtingartölur fyrir
þann flokk. Yfir vetrar-mánuðina eru gististaðir í nokkrum
landshlutum þó of fáir í öðmm hvorum flokknum til að hægt
sé að birta sundurliðaðar nýtingartölur. Þeir landshlutar eru
merktir með stjörnu (*) fyrir viðkomandi mánuð. Hjá
Hagstofunni er hægt að fá ítarlegri sundurliðun eftir stærð
fyrir einstaka landshluta, sé skilyrðum fullnægt um fjölda í
hverjum flokki.
Töflur 6 og 7 hafa að geyma upplýsingar um gistirými
og gistinætur á bændagististöðum. Arið 1994 voru heimtur
skýrslna frá bændagististöðum mun betri en áður og því
gafst möguleiki á að áætla á þá staði sem ekki skiluðu
skýrslum. A Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra er
aðeins einn bændagististaður starfandi tímabilið janúar-apríl
á hvoru landsvæði um sig og því eru þeir taldir saman.
Svipaða sögu má segja um Vestfirði tímabilið september-
desember, en Vestfirðir eru í töflunni taldir með Vesturlandi.
I töflu 8 er sýndur fjöldi farfuglaheimila, svefnpoka-
gististaða, tjaldsvæða, skála og heimagististaða. Ekki em til
upplýsingar um starfandi heimagististaði tímabilin janúar-
apríl og september-desember árin 1992 og 1993.
Töflur 9 og 10 sýna upplýsingar um fjölda gistinátta á
farfuglaheimilum. I fyrri töflunni er gistinóttum skipt eftir
mánuðum og þjóðerni gesta og í seinni töflunni er gisti-
nóttum skipt eftir landshlutum. Tölur þessar eru tæmandi.
Töflur 11-15 sýna skráðar gistinætur og hlutfallslega
skiptingu þeirra á tjaldsvæðum, í skálum á hálendi og á
svefnpokagististöðum. Tölur eru ekki tæmandi í þessum
töflum vegna slakra skýrsluskila. Ekki er talið ráðlegt að
reyna að áætla vantaldar gistinætur fyrir þá staði, sem ekki
hafa skilað skýrslum, í svo mikilli sundurliðun sem hér er
birt. Því er hér einnig birt hlutfallsleg skipting skráðra
gistinátta eftir þjóðerni gesta. I töflum um skála og tjaldsvæði
á hálendi ásamt svefnpokagististöðum er gistinóttum einnig
skipt hlutfallslega eftir mánuðum.
I töflu 16 eru teknar saman heildargistinætur og þeim
skipt niður eftir landshlutum og þjóðerni gesta. Þessa töflu
ber að taka með ákveðnum fyrirvara þar sem ekki em til
tæmandi tölur fyrir allar tegundir gistingar. I þessari töflu
eru ekki tæmandi tölur frá tjaldsvæðum, skálum á hálendi,
svefnpokagististöðum og heimagististöðum. Því er heildar-
fjöldi gistinátta hér nokkuð lægri en kemur fram í 13. yfirliti
hér að framan.
f töflum 17 og 18 er að finna upplýsingar frá Útlendinga-
eftirlitinu um fjölda ferðamanna til landsins.