Gistiskýrslur - 01.08.1995, Side 22

Gistiskýrslur - 01.08.1995, Side 22
20 Gistiskýrslur Skýringar við töfluhluta Töflur 1-5 sýna tölur um gistirými, gistinætur og nýtingu gistirýmis á hótelum og gistiheimilum. I fyrstu tveimur töflunum eru annars vegar tölur fyrir gististaði sem opnir eru allt árið og hins vegar sumargististaði. Gistirými gististaða sem opnir eru allt árið, sem birt er í töflu 1, er gistirými sumarmánaðanna, en þá er gistirýmið nokkru meira en á vetuma. I töflu 3 em tölur um gistirými eftir ársþriðjungum. Tölur um fjölda gistinátta og nýtingu gistirýmis er að finna í töflum 4 og 5. Gististöðum er skipt í tvo flokka eftir stærð. Fyrri flokkurinn nær til hótela og gistiheimila með 1 -59 rúm, sá síðari til þeirra sem hafa 60 rúm eða fleiri. Ekki þótti ráðlegt að hafa flokkana fleiri þar sem víða hefði einungis verið eitt gistihús í flokki og þá ekki hægt að birta nýtingartölur fyrir þann flokk. Yfir vetrar-mánuðina eru gististaðir í nokkrum landshlutum þó of fáir í öðmm hvorum flokknum til að hægt sé að birta sundurliðaðar nýtingartölur. Þeir landshlutar eru merktir með stjörnu (*) fyrir viðkomandi mánuð. Hjá Hagstofunni er hægt að fá ítarlegri sundurliðun eftir stærð fyrir einstaka landshluta, sé skilyrðum fullnægt um fjölda í hverjum flokki. Töflur 6 og 7 hafa að geyma upplýsingar um gistirými og gistinætur á bændagististöðum. Arið 1994 voru heimtur skýrslna frá bændagististöðum mun betri en áður og því gafst möguleiki á að áætla á þá staði sem ekki skiluðu skýrslum. A Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra er aðeins einn bændagististaður starfandi tímabilið janúar-apríl á hvoru landsvæði um sig og því eru þeir taldir saman. Svipaða sögu má segja um Vestfirði tímabilið september- desember, en Vestfirðir eru í töflunni taldir með Vesturlandi. I töflu 8 er sýndur fjöldi farfuglaheimila, svefnpoka- gististaða, tjaldsvæða, skála og heimagististaða. Ekki em til upplýsingar um starfandi heimagististaði tímabilin janúar- apríl og september-desember árin 1992 og 1993. Töflur 9 og 10 sýna upplýsingar um fjölda gistinátta á farfuglaheimilum. I fyrri töflunni er gistinóttum skipt eftir mánuðum og þjóðerni gesta og í seinni töflunni er gisti- nóttum skipt eftir landshlutum. Tölur þessar eru tæmandi. Töflur 11-15 sýna skráðar gistinætur og hlutfallslega skiptingu þeirra á tjaldsvæðum, í skálum á hálendi og á svefnpokagististöðum. Tölur eru ekki tæmandi í þessum töflum vegna slakra skýrsluskila. Ekki er talið ráðlegt að reyna að áætla vantaldar gistinætur fyrir þá staði, sem ekki hafa skilað skýrslum, í svo mikilli sundurliðun sem hér er birt. Því er hér einnig birt hlutfallsleg skipting skráðra gistinátta eftir þjóðerni gesta. I töflum um skála og tjaldsvæði á hálendi ásamt svefnpokagististöðum er gistinóttum einnig skipt hlutfallslega eftir mánuðum. I töflu 16 eru teknar saman heildargistinætur og þeim skipt niður eftir landshlutum og þjóðerni gesta. Þessa töflu ber að taka með ákveðnum fyrirvara þar sem ekki em til tæmandi tölur fyrir allar tegundir gistingar. I þessari töflu eru ekki tæmandi tölur frá tjaldsvæðum, skálum á hálendi, svefnpokagististöðum og heimagististöðum. Því er heildar- fjöldi gistinátta hér nokkuð lægri en kemur fram í 13. yfirliti hér að framan. f töflum 17 og 18 er að finna upplýsingar frá Útlendinga- eftirlitinu um fjölda ferðamanna til landsins.

x

Gistiskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.