Útvegur - 01.08.2001, Síða 192
190
Útflutningur sjávarafurða
7. Útflutningur sjávarafurða
7. Export ofmarine products
7.1 Magn
7.1. Export quantity
A árinu 2000 voru flutt út tæplega 730 þús. tonn af
sjávarafurðum, samanborið við 690 þús. tonn árið á undan og
lætur þetta nærri að vera aukning um 42 þús. tonn eða um 6%.
Frá árinu 1997 hefur magn útfluttra sjávarafurða verið að
dragast saman þar til nú en það ár var reyndar metár þegar
795 þús. tonn voru flutt út. Þróun útflutnings sjávarafurða
undanfarin ár sést glöggt á mynd 7.1 þar sem magn útflutnings
er sýnt fyrir tímabil áranna 1990-2000.
Mynd 7.1 Magn útfluttra sjávarafurða 1990-2000
Figure 7.1 Quantity of exported marine products 1990—2000
-3
A
900
800
1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000
Á árinu 1991 dróst magn útfluttra sjávarafurða mikið
saman frá árinu 1990 og náði útflutningurinn á því ári
lágmarki, um 472 þús. tonn. Ástæðuna var aðallega að finna
í mun minni loðnuafla. Árið 1992 tóku loðnuveiðarnar aftur
við sér en aukningin varð ekki eins mikil í heildarmagni
útfluttra sjávarafurða eins og búast hefði mátt við, þar sem
töluverð minnkun varð í útflutningi ísfisks. Árið 1993 nam
útflutningurinn rúmum 635 þús. tonnum og munaði þar mest
um ágætan loðnuafla enda vega lýsi og mjöl þungt í magni
útflutnings. Ekki varð mikil breyting milli áranna 1993 og
1994 er flutt voru út um 633 þús. tonn. Árið 1995 kom síðan
afturkippur í útflutning sjávarafurða, út voru flutt 607 þús.
tonn. Það ár drógust þorskveiðar saman, þó minna en efni
stóðu til vegna aukinna úthafsveiða. Loðnuveiðin minnkaði
en á móti kom aukinn sfldarafli og góð rækjuveiði.
Árin 1996-1997 tók útflutningurinn síðan stórt stökk upp
á við og var kominn í tæp 800 þús. tonn árið 1997. Þessi tvö
ár var það fyrst og fremst góður Ioðnuafli sem bar uppi þessa
miklu aukningu, hann fór yftr milljón tonn bæði árin. Árið
1998 varð síðan 10% samdráttur í magni útflutnings en það
ár minnkaði loðnuveiðin um helming frá 1997. Botnfiskafli,
aðallega þorskafli, jókst hins vegar mjög mikið árið 1998
sem leiddi til þess að þrátt fyrir nokkurn magnsamdrátt jókst
verðmæti útfluttra sjávarafurða umtalsvert.
Samdráttinn milli áranna 1998 og 1999 má best skýra með
minni loðnuafla ásamt því sem rækjuaflinn dróst verulega
saman á árinu 1999. Á sama hátt skýrist aukning í útflutningi
afurða milli 1999 og 2000 best af rúmlega 276 þús. tonna
aukningu í uppsjávarafla, því afli í öðrum tegundum dregst
nokkuð saman á sama tíma.
7.1 Verðmæti útflutnings
7.1 Export value
Verðmæti útflutnings sjávarafurða fyrir árið 2000 nam 96
milljörðum króna og dregst það því saman um 3,3 milljarða
frá árinu 1999 og er samdrátturinn rétt rúm 3% (sjá töflur
7.2-7.4). Þrátt fyrir aukningu í heildarafla, sem skýrist af
auknum afla uppsjávartegunda eins og fyrr segir, þá eru þær
ekki meðal verðmestu afurða og nær aukningin ekki að vega
upp á móti samdrætti í magni annarra tegunda sem eru
verðmætari, s.s. þorsks og rækju.
Hlutdeild sjávarafurða af heildarvöruútflutningi lands-