Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 16
Við höfum fengið sterk og jákvæð viðbrögð frá samfélag- inu og margir hafa stutt við starfið. Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is ENDURHÆFING Sérblað um endurhæfingu, líkamlega og andlega, og sjúkraþjálfun og hvað slíkt felur í sér. Einnig er fjallað um stoðtæki og hjálpartæki fyrir þá sem hafa lent í veikindum og áföllum. Tryggðu þé gott auglýsin apláss í langmest le na dagblaði landsins. Vinsamlegast hafið samband við sölumann sérblaða Jóhann Waage í síma 550 5656 eða á tölvupóstfang johannwaage@frettabladid.is Frá því við stofnuðum Grófina höfum við vakið fólk til umhugsunar um mikilvægi forvarna fyrir samfélagið. Það er nefnilega þannig að á minni stöðum þarf stundum að hafa meira fyrir því að opna á það sem hefur verið falið svo lengi eins og geðsjúkdómar. Sem betur fer hefur Grófin geðverndarmiðstöð haft mikil áhrif fyrir samfélagið þar sem margir hafa stutt vel við okkar starf á einn eða annan hátt,“ segir Eymundur Eymundsson, einn stofnenda Grófarinnar. Á afmælisdaginn 10. október verður opið hús í Grófinni frá klukkan 14.00 til 16.00 og um kvöldið verða haldnir tónleikar á Græna hattinum þar sem fram koma fjölmargar hljómsveitir og tónlistarfólk auk tæknifólks sem allt ætlar að gefa vinnuna sína. Á tónleikunum koma fram Helgi og hljóðfæraleikararnir, Lost, Bootlegs, Hvanndalsbræður, Magni Ásgeirsson, pönkhljóm- sveitin Kaktus hvítlaukur, DDT skordýraeitur, Rúnar Eff, Ívan og Garðar og Ingvi og félagar. Þetta verður því sannkölluð rokkhátíð. „Allur ágóði af miðasölu rennur beint til styrktar því góða starfi sem fram fer í Grófinni, við erum mjög þakklát listamönnunum og tæknifólkinu sem kemur meðal annars alla leið frá Reykjavík og Norðfirði og gefur vinnuna sína í þágu málstaðarins,“ segir Eymundur. Grófin gegnir mikilvægu hlutverki Grófin er virknimiðstöð fyrir fólk sem glímir við geðrænan vanda eða félagslega einangrun og vill valdeflast og vinna í sínum bata. Grófin stendur fyrir ýmiss konar hópastarfi, félagsstarfi og fræðslu- viðburðum fyrir almenning auk þess að bjóða upp á fræðslu í skólum fyrir ungmenni. „Við höfum fengið sterk og jákvæð viðbrögð frá samfélaginu og margir hafa stutt við starfið á einn eða annan hátt. Við höfum sinnt ýmiss konar samfélagslegri fræðslu um allt það sem viðkemur geðröskun. Fengið fagaðila og fólk með reynslu af geðröskun í Geggjað stuð á Akureyri Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn er á fimmtudaginn en sama dag er sex ára afmæli Grófarinnar gerðverndarmiðstöðvar á Akureyri. Grófin heldur tónleika á Græna hattinum af þessu tilefni. Stjórn Grófarinnar 2019-2020. Grófin fagnar sex ára afmæli á alþjóðlega geðverndardeginum og verður með opið hús fyrir þá sem vilja kynnast starfinu. Í Grófinni eru ýmsir hópar starfræktir eins og líkamsræktarhópur. bata til að deila reynslu sinni og eins höfum við átt góða samvinnu við Háskólann á Akureyri,“ segir Eymundur sem sjálfur hefur farið í alla grunnskóla og framhaldsskóla á Norðurlandi og sagt frá reynslu sinni af félagsfælni sem hann hefur glímt við frá barnæsku og bata- ferlinu. Vonast eftir meira fjármagni „Það mætti segja að Grófin sé Geð- hjálp, Hlutverkasetur og Hugarafl hér norðan heiða. Við höfum bara því miður ekki úr jafn miklum peningum að moða frá ríki eins og félagasamtök sunnan heiða miðað við þá starfsemi sem fer fram og við vonumst til að ríkið muni bæta úr því.“ Eymundur segir að Grófin sé mjög mikilvæg fyrir samfélagið fyrir norðan og allir eru velkomnir þangað hvort sem þeir glíma við geðræn vandamál eða langar bara að koma og kynna sér starfsemina. „Það hefur sýnt sig með öllum þeim stuðningi og jákvæðni sem við fáum. Tónleikarnir eru eitt af mörgum stórum púslum í því að vekja athygli á geðheilsu og öllu því góða sem hér er gert. Lífið er ekki sjálfgefið og geðheilsa skiptir alla máli. Með opnara samfélagi gefum við öðrum tækifæri til að koma út úr skápnum og byggja upp sitt líf.“ 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R 0 8 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 3 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 6 -3 B E 4 2 3 F 6 -3 A A 8 2 3 F 6 -3 9 6 C 2 3 F 6 -3 8 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 3 2 s _ 7 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.