Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 15
Trefjaríkt fæði, gerjaðar afurðir og inntaka á öflugum góðgerlum geta örvað vöxt hagstæðra örvera í meltingarveginum og bætt þannig heilsufar okkar. Hrönn Hjálmarsdóttir Í meltingarveginum lifa trilljónir baktería og eru flestar þeirra í ristlinum. Í daglegu tali köllum við þessar bakteríur þarmaflóru því þær samanstanda af meira en 1.000 tegundum og í ristlinum sinna þær ýmsum afar mikil- vægum hlutverkum. Þær fram- leiða m.a. vítamín, amínósýrur, stuttar fitusýrur og ýmis boðefni og ensím. Við þurfum því að hugsa vel um þær og passa að jafnvægi sé til staðar svo þær hugsi vel um okkur. Þarmaflóran ver okkur líka gegn óæskilegum örverum og hefur margs konar áhrif á heila- og taugakerfið, þar með talið geð- heilsu. Veikindi vegna lífsstíls Þarmaflóran í venjulegri mann- eskju inniheldur yfir þúsund mismunandi tegundir gerla og baktería. Jafnvægi þessara bakt- ería getur auðveldlega raskast vegna veikinda, inntöku sýkla- lyfja, mikillar kaffidrykkju og ýmissa lífsstílstengdra þátta eins og mikils álags eða streitu, neyslu næringarsnauðrar fæðu og fæðu sem er mikið unnin. Fjölmargir eru líka að borða á hlaupum og á óreglulegum tímum sem er ekki síður slæmt. Við þessar aðstæður raskast jafnvægi þarmaflórunnar og getur fólk þá farið að finna fyrir ýmsum óþægindum og veikindi farið að gera vart við sig. Sveppasýking og húðvandamál Það er fjölmargt sem einkennir lélega þarmaflóru eða að hún sé í ójafnvægi. Rannsóknir síðari ára hafa svo rennt styrkum stoðum undir það hversu gríðarlega mikil- vægt það sé að þarmaflóran okkar sé í góðu standi bæði hvað varðar líkamlega sem og andlega kvilla. Það kannast sennilega flestir við ýmiss konar ónot sem við tengjum beint við meltinguna. Það getur t.d. verið: n Uppþemba eftir máltíðir n Erfiðar hægðir n Vindverkir n Gyllinæð (tengist oft harðlífi) Þarmaflóra, geðheilsa og öflugt ónæmiskerfi Öflug þarmaflóra er grunnurinn að öflugu ónæmiskerfi. Rannsóknir sýna að rekja megi ýmsa líkamlega sem og andlega kvilla til lélegrar þarmaflóru. Inntaka góðgerla getur skipt sköpum. Trefjaríkt fæði, gerjaðar afurðir og inntaka á öflugum mjólkursýrugerlum getur örvað vöxt hagstæðra örvera í meltingarveginum og haft þannig jákvæð áhrif á líkamsþyngd okkar. Þannig hefur þarmaflóran áhrif á þyngdina. n Sveppasýkingar n Húðvandamál Þetta er þó bara toppurinn á ísjak- anum því nýlegar rannsóknir sýna að ástand þarmaflóru í veikum einstaklingum er mun verra en hjá heilbrigðum. Þá er verið að tala um bæði líkamlega sem og andlega sjúkdóma af ýmsu tagi. Einhverfa, athyglisbrestur og síþreyta Síðastliðin ár hafa menn verið að skoða þarmaflóru með tilliti til kvíða, þunglyndis, einhverfu og athyglisbrests og nú síþreytu. Í ljós hefur komið að þarmaflóra þessara hópa og síþreytuhópsins er ekki eins og hjá þeim sem eru hraustir. Rannsóknir hafa 2 mánaða skammtur einnig sýnt að bæði forvörnum og meðhöndlun á geðrænum og taugatengdum sjúkdómum á að beina að ástandi þarmaflóru og meltingarvegar. Hefur þarmaflóran áhrif á þyngd? Rannsóknir gefa til kynna að nokkuð sterk tengsl séu á milli ástands þarma flóru og líkams- þyngdar. Í stuttu máli þá bendir allt til þess þarmaflóra fólks sem er grannvaxið sé önnur en í feitu fólki. Þetta gefur okkur vísbendingar um að fjöldi hitaeininga hafi ekki allt að segja um þyngd okkar, heldur hafi öflug og heil- brigð þarma flóra einnig mikið um það að segja. Trefjaríkt fæði, gerjaðar afurðir og inntaka á öflugum mjólkur- sýrugerlum geta örvað vöxt hagstæðra örvera í meltingar- veginum og haft þannig jákvæð áhrif á líkamsþyngd okkar. Það er nefnilega ekki alltaf málið að telja hitaeiningarnar, móttaka og vinnsla á næringunni í þörmunum skiptir máli. Góðgerlar sem margfalda sig í þörmunum Prógastró Gull mjólkursýrugerl- arnir eru afar öflugir en í hverju hylki eru 15 milljarðar af gall- og sýruþolnum gerlastofnum. Einn af þeim er L. acidophilus DDS®-1 en þetta er nafn á mjög áhrifa- ríkum gerlastofni sem margfaldar sig í þörmunum. L. acidophilus DDS®-1 er talinn gagnlegur fyrir alla aldurshópa. Sölustaðir: Flest apótek, heilsu- búðir og heilsuhillur verslana. Bio-Kult Migréa 14 góðgerlastofnar B6-Vítamín Magnesíum Tengsl milli þarmaflóru og annarar líkams- starfsemi eru vel þekkt og er talið að léleg flóra hafi m.a. áhrif á höfuðverki og tíðni þeirra. Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Bio-Kult Migréa er háþróuð 14 stofna góðgerlablanda og hafa rannsóknir sýnt að inntaka á þeim í 10 vikur dró úr tíðni mígrenikasta um 40-45% og styrkur kastanna minnkaði einnig um allt að 31%. Þessi vara inniheldur einnig magnesíum og B6 en það tvennt stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og dregur úr þreytu og lúa. Bio Kult Migréa er vegan og hentar einnig fyrir ófrískar konur. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 8 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 0 8 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 3 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 F 6 -4 0 D 4 2 3 F 6 -3 F 9 8 2 3 F 6 -3 E 5 C 2 3 F 6 -3 D 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 3 2 s _ 7 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.