Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 24
LEIKHÚS Shakespeare verður ástfanginn Þjóðleikhúsið Aðlagað að leiksviði af: Lee Hall Leikstjóri: Selma Björnsdóttir Leikarar: Aron Már Ólafsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Edda Björgvinsdóttir, Örn Árnason, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Jóhann G. Jóhanns- son, Guðjón Davíð Karlsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Atli Rafn Sigurðarson, Björn Ingi Hilmars- son, Sigurður Sigurjónsson, Hákon Jóhannesson, Bjarni Snæbjörns- son, Hilmir Jensson, Davíð Þór Katrínarson, Ágúst Örn B. Wigum, Ragnheiður Steindórsdóttir, Þórey Birgisdóttir, Eygló Hilmarsdóttir Þýðing: Kristján Þórður Hrafnsson Tónlist: Jón Jónsson og Friðrik Dór Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson Búningar: María Th. Ólafsdóttir Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson Tónlistarstjórn og útsetningar: Karl Olgeir Olgeirsson Hljómsveit: Karl Olgeir Olgeirs- son, GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð), Matthías Stefánsson, Friðrik Sturluson og Kristinn Snær Agnarsson Grafík: Pálmi Jónsson Hljóðhönnun: Kristinn Gauti Einarsson og Kristján Sigmundur Einarsson Sviðshreyfingar: Þórey Birgis- dóttir Bardagalistir: Kevin McCurdy Leikgervi: María Th. Ólafsdóttir og Tinna Ingimarsdóttir Will Shakespeare er með rit- stíf lu. Illa gengur að skrifa Rómeó og Ethel sjóræningjadóttur. Röð atvika verður til þess að augu hans og yfirstéttarstúlkunnar Víólu de Lesseps mætast á grímudansleik, þau verða yfir sig ástfangin og líf þeirra verður aldrei samt. Shake- speare verður ástfanginn var frum- sýnt síðastliðinn föstudag á Stóra sviði Þjóðleikhússins í leikstjórn Selmu Björnsdóttur. Leikhandritið er byggt á frægri Óskarsverðlaunabíómynd með sama nafni eftir Marc Norman og Tom Stoppard. Kristján Þórður Hrafnsson þýddi nýlega Ríkharð III af mikilli færni en nær ekki að skapa sömu töfra hér. Ýmissa grasa kennir í handritinu sem er upp á sitt besta þegar víddir lífshlaups og skáldskapar Shakespeares f læða saman. Litlar leikhúsgjafir eru dreifðar um textann sem að öllum líkindum koma frá Stoppard sem er þekktur fyrir slík vinnubrögð. En þessar víddir opna líka fyrir endur- mat á nýjum tímum, tuttugu árum eftir að kvikmyndin var frumsýnd. Kynjapólitík verksins er óþægi- leg, ekki einungis vegna vofu Harveys Weinstein. Konurnar eru vændiskonur, fóstrur, fjarverandi eða fórna sér fyrir hinn listræna málstað karlkyns snillingsins. Eitthvert mótvægi er að finna í persónu Víólu og sérstaklega Elísa- betar drottningar, sem kannast vel við að vera kona í karlmannsstarfi. Sömuleiðis kraumar sú hvimleiða kenning að Shakespeare hafi ekki skrifað leikritin sín sjálfur undir öllu saman. Kitla hláturtaugar Leikarahópurinn er af stærri gerðinni. Mikið mæðir á Aroni Má Ólafssyni sem leiðir sýninguna, nýútskrifaður frá Listaháskóla Íslands, í hlutverki Shakespeares. Hann ber þungann laglega og kemst langt á persónutöfrunum. En Aron er að stíga sín fyrstu skref á atvinnusviðinu og þarf tíma til að rækta sína hæfileika. Ástríðu- blossinn kviknar þó ekki á milli hans og Láru Jóhönnu Jónsdóttur, í hlutverki Víólu, sem dregur úr drifkrafti sýningarinnar. Sakleysi stjórnar túlkun Láru Jóhönnu framan af en hún nær ekki að koma þróun karaktersins til skila þegar líða tekur á. Jóhann G. Jóhannsson og Björn Ingi Hilmarsson sýna lipran leik í sínum hlutverkum. Guðjón Davíð Karlsson kætir með orkumikilli frammistöðu. Annað mál er með þá Stefán Hall Stefánsson og Atla Rafn Sigurðarson, sem virðast báðir vera víðsfjarri. Jarlinn af Wessex, leik- inn af Stefáni Halli, er samsuða af hrotta og aula, og situr illa í sýning- unni. Atli Rafn skuldbindur sig ekki sýningunni og nýtir ekki tækifærin í textanum. Lítil hlutverk geta nefnilega verið eftirminnileg. Þröstur Leó Gunn- arsson leiðir áhorfendur í maka- laust ferðalag með Fenny man, til- finningasnauða ríkisbubbanum sem ætlar að fjármagna leikritið en verður fyrir uppljómun þegar hann fær smátt hlutverk í hinu nýja verki Shakesperes. Jóhanna Vigdís Arnardóttir spásserar tígu- lega í gegnum hlutverk Elísabetar I og japlar á sínum fáu línum af bestu list. Alltaf má treysta á Örn Árna- son, Sigurð Sigurjónsson og Eddu Björgvinsdóttur til að kitla hlátur- taugarnar með frábærum tímasetn- ingum. Önnur smærri hlutverk eru í höndum ungra leikara og gott er að sjá þennan hóp fá tækifæri til að læra af þeim sem reynsluna hafa. Skapleg skemmtun Listræn stjórnun er sundurleit, Selma Björnsdóttir stjórnar fram- vindunni af fagmennsku, senu- skiptingarnar eru f lottar, en túlk- uninni er ábótavant og sýningin f lýtur áfram á yfirborðinu. Finnur Arnar Arnarson hannar leikmynd- ina af hugvitssemi en sumum hug- myndum hefði mátt sleppa eins og stönginni sem tengir svalirnar við gólfið. Litskrúðið fá áhorfendur svo sannarlega í gegnum búninga Maríu Th. Ólafsdóttur sem tjaldar öllu til, þá sérstaklega í búningum Elísabetar I, þó skortir skýra sýn á heildina. Gervin eru mörg vel unnin en hárgreiðslur karlanna hefði mátt endurhugsa. Ólafi Ágústi Stefánssyni hefur oft tekist betur upp í ljósavinnunni en skrýtinn drungi umlykur f lest atriði. Bræð- urnir Jón Jónsson og Friðrik Dór semja tónlistina sem er því miður afleit. Hún er samtímis óafgerandi og ofnotuð. Bæði tónlistin og söng- atriðin virðast vera úr öðru leikriti. Í heildina er Shakespere verður ástfanginn skapleg skemmtun en valið á þessu leikverki er undarlegt, bæði vegna innihalds og sögu kvik- myndarinnar. Leikararnir f lestir standa sig ágætlega og greinilegt er að mikið hefur verið lagt í upp- setninguna. Sýningin gefur frekar beyglaða sýn á heim Williams Shakespeare en er að mestu mein- laus, og hittir stundum í mark, en of sjaldan. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Á köflum ágætis skemmtun en sýningin skilur lítið eftir sig. Shakespeare endurmetinn Greinilegt er að mikið hefur verið lagt í uppsetninguna, segir Sigríður Jónsdóttir, leiklistargagnrýnandi Fréttablaðsins. MYND/SAGA SIG Hvað? Hvenær? Hvar? Þriðjudagur hvar@frettabladid.is  8. OKTÓBER 2019 Hvað? Trú og samfélag Hvenær? 12.05 Hvar? Þjóðminjasafn Íslands, fundarsalur Alt það, sem við ekkert hefir að keppa, dofnar og deyr, nefnist fyrirlestur á vegum Sagnfræðinga- félagsins. Rakel Edda Guðmunds- dóttir fjallar um blaðaskrif um aðskilnað ríkis og kirkju, guðfræði og trú í kringum aldamótin 1900. Hvað? Bingó Hvenær? 20.00-22.00 Hvar? Salur eldri borgara, Árskóg- um 4, Breiðholti Kiwanisklúbburinn Dyngja stend- ur fyrir bingóinu. Öllum ágóða verður varið til styrktar Vina- setrinu, heimili sem veitir börnum sem á þurfa að halda stuðning og helgardvöl. Hvað? Los Bomboneros Hvenær?  20.30 Hvar? Kex hostel, Skúlagötu 28 Ásamt kvartettinum Los Bom- boneros verður Matthías Hem- stock sérstakur gestur. Hvað? Kúnstpása Hvenær? 12.15 Hvar?  Norðurljós, Hörpu Sópransöngkonan Hrafnhildur Björnsdóttir kemur fram ásamt píanóleikaranum Martyn Parkes. Enginn aðgangseyrir. Hvað?  Barna- og unglingahljóm- sveitin Regnbuen Hvenær? 16.00 og 18.00 Hvar? Akranes Fyrri tónleikarnir eru í Vitanum á Akranesi og þeir seinni í Tón- bergi, Tónlistarskólanum á Akra- nesi. Nemendur úr tónlistarskól- anum spila með. Tónleikarnir eru ókeypis. Hvað? Ljóðaljóðin Hvenær? kl 20 Hvar? Listasafn Sigurjóns 8. Margrét Hrafnsdóttir söngkona og Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari. Miðaverð: 2.900,- en 2.500,- fyrir nemendur og eldri borgara. Hvað? Tíminn og vatnið Hvenær? 20.30 Hvar? Borgarleikhúsið Andri Snær með fyrirlestur. Hvað? Eru peningarnir þínir loftslagsmál Hvenær? 20 Hvar? KjarvalsstaðirFjallað verður á mannamáli um grænar fjár- festingar og skuldabréf í samhengi við hagsmuni almennings. Hvað? Svítur og svör með selló og harmóníku Hvenær? 19.30 Hvar? Salurinn 8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 8 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 3 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 F 6 -3 B E 4 2 3 F 6 -3 A A 8 2 3 F 6 -3 9 6 C 2 3 F 6 -3 8 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 3 2 s _ 7 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.