Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 3 4 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Jafnaðu þig hjá Orkunni Kolefnisjafnaðu aksturinn strax með Orkulyklinum! MENNING „Þetta er algjört hneyksli,“ segir Jónas Haraldsson lögmaður um stöðu mála við Silfru á Þingvöllum. Jónas gagnrýnir harðlega umsvif og ágang köfunarfyrirtækja við gjána Silfru í miðjum Þingvalla- þjóðgarði sem er á Heimsminjaskrá UNESCO. Eftir samskipti við for- mann Þingvallanefndar, fyrrverandi þjóðgarðsvörð, sendi Jónas kvörtun til Heimsminjaskrárinnar. Mechtild Rössler, forstjóri Heims- minjaskrifstofunnar, sendi síðan í september íslenskum stjórnvöldum bréf með óskum um skýringar. „Mig langar að biðja þau yfirvöld sem ábyrg eru í málinu að útvega Heimsminjaskrifstofunni upplýs- ingar um þetta mál við fyrsta tæki- færi,“ segir í bréfi Rössler sem lagt var fram á fundi Þingvallanefndar 25. september síðastliðinn. Þar var ákveðið að fela þjóðgarðsverði að vinna drög að svörum til Heims- minjaskrifstofunnar. Rakið er í kvörtun Jónasar hversu umfangsmikil starfsemi köfunar- fyrirtækjanna sé með salernum, stálpalli, bílaflota og alls kyns bún- aði sem skapi sjónmengun fyrir aðra gesti þjóðgarðsins og álag á lífríki Silfru sem hafi látið stórlega á sjá. Vísar hann í því sambandi til rann- sóknar sem gerð hafi verið árin 2014 og 2015. „Niðurstöður þessarar rannsókn- ar hafa algjörlega verið hunsaðar af stjórn þjóðgarðsins því þetta myndi þýða bann á alla köfun í gjánni Silfru sem valda myndi þjóðgarðinum tekjutapi,“ skrifar Jónas til Unesco. Vegna anna hjá Ara Trausta Guð- mundssyni, formanni Þingvalla- nefndar, náðist ekki tal af honum við vinnslu þessarar fréttar í gær. Ari útskýrði hins vegar afstöðu sína í tölvupósti til Jónasar um miðjan ágúst. „Við erum ósammála um hvort leyfa skuli virknina við og í Silfru og þar með líka um hvort að hún ógni veru þjóðgarðsins á Heims- minjaskránni eður ei. Lít á hana sem nægilega örugga eftir úttekt og sérfræðivinnu EFLU, endur- bætur (sem skila sér í skrefum) og þolmarkagreiningu plús eftirlit með framkvæmdum næstu ára og áhrifum virkninnar,“ skrifar Ari til Jónasar. Kveðst Ari líta á starfsemina í Silfru „sem einstæða náttúruupp- lifun sem megi leyfa á þennan hátt – ekki ósvipað og heimsóknir í Raufarhólshelli eftir aðgerðir þar, Þríhnúkahelli, Vatnshelli á Snæfells- nesi, ísgöngin í Langjökli og raunar margt fleira hér á landi – á friðuðum eða ófriðuðum landsvæðum. Allt svo lengi sem ákvörðuðum takmörk- unum á ýmsum stigum aðgengis og framkvæmda er haldið innan sjálf- bærra marka,“ segir í pósti Ara. „Við Ari tölum bara í kross; ég tala um náttúruverndarsjónarmið og hann um bissness,“ segir Jónas við Fréttablaðið. – gar Skýri köfunina í Silfru fyrir UNESCO Forstjóri Heimsminjaskrifstofu UNESCO vill skýringar frá íslenskum yfirvöldum á starfsemi köfunarfyrirtækja í Silfru eftir kvörtun frá ís- lenskum lögmanni sem kveður umsvifin ekki samræmast stöðu Þingvalla á Heimsminjaskránni. Formaður Þingvallanefndar ósammála. Mig langar að biðja þau yfirvöld sem ábyrg eru í málinu að útvega Heimsminjaskrifstofunni upplýsingar um þetta mál við fyrsta tækifæri. Mechtild Rössler, forstjóri Heimsminja- skrifstofunnar Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, áritar plakat fyrir aðdáanda á opinni æfingu fyrir árskortshafa KSÍ. Ungir jafnt sem aldnir lögðu leið sína í Laugardalinn til að fylgjast með strákunum sem spila brátt tvo þýðingarmikla leiki í undankeppni Evrópumeistaramótsins, gegn Frökkum og Andorramönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 0 8 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 F 6 -3 2 0 4 2 3 F 6 -3 0 C 8 2 3 F 6 -2 F 8 C 2 3 F 6 -2 E 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 7 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.