Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 18
Enterosgel er gel til inntöku og er mest notað við meltingarkvillum ýmiss konar en er líka notað til að hjálpa líkamanum að hreinsa áfengi hraðar út sem og útvortis á bólur og exem. Helsta virkni Enterosgel í líkamanum: Hjálpar líkamanum að stöðva niðurgang Dregur úr meltingartruflunum Hraðar hreinsun áfengis úr líkamanum Hjálpar líkamanum að viðhalda og byggja upp heilbrigða þarmaflóru Verndar slímhúð meltingarvegar Enterosgel hentar bæði börnum og fullorðnum Áratuga reynsla og fjöldi rannsókna hafa sýnt fram á einstaka eiginleika Enterosgel FÆST Í MAMMA VEIT BEST, MAMMAVEITBEST.IS, HEILSUHÚSUNUM OG HEILSUTORGI BLÓMAVALS Þegar ástin bankar upp á hjá unglingum og ungu fólki er heilbrigð skynsemi ekki endilega efst á lista. Það er bara gaman að vera til og njóta þess að vera elskaður, dýrkaður og dáður. Þó er gott veganesti að hafa hug- fast að ekkert ástarsamband er fullkomið þótt það líti sannarlega út fyrir það út á við. Þegar fólk byrjar saman er því mikilvægt að velta fyrir sér hvað það vill fá út úr sambandi. Það þarf að gera kröfur um hvernig komið er fram við það og vera óhrætt að láta vita af þeim kröfum. Því getur verið gott að skrifa niður hvað maður vill fá út úr sambandi og velta fyrir sér hvað manni finnst mikil- vægast. Gott er að skoða þennan lista reglulega og velta fyrir sér hvort maður sé að fá það út úr sam- bandinu sem skiptir mann máli, ekki síst ef maður fer að efast um sambandið. Að sama skapi má snúa dæminu við og spyrja sjálfan sig hvernig maður vill koma fram við kærustu sína eða kærasta. Öll berum við ábyrgð á framkomu okkar við aðra og getum ekki gert kröfur á aðra ef við ætlum ekki sjálf að leggja okkur fram. Heiðarleiki góður grunnur Í heilbrigðu sambandi ríkir jafnrétti, heiðarleiki og virðing. Samskiptin þurfa að vera góð og í góðum samböndum eru góðu tím- arnir f leiri en þeir slæmu. Heiðar- leiki er grunnur að góðu sambandi hjá kærustupörum en heiðarleiki er líka mikilvægur í samböndum við fjölskyldu og vini. Í heiðarleg- um samböndum geta báðir aðilar viðurkennt að hafa rangt fyrir sér, sagt sannleikann án þess að óttast og fyrirgefið mistök. Í góðum samböndum ríkir virðing á báða bóga. Virðing er til dæmis að styðja við hinn í því sem hann eða hún hefur áhuga á. Það er mikilvægt að virða skoðanir annarra, vera næmur á tilfinning- ar og treysta hinum í sambandinu. Þegar virðing ríkir í sambandinu er annar ekki að reyna að stjórna hinum né breyta því hvernig hann er. Góð samskipti eru límið sem heldur fólki saman. Því er mikil- vægt að geta rætt málin af heiðar- leika, að hlusta á hinn aðilann og vera tilbúin að ræða vandamál og ósamkomulag, því stundum verða rifrildi hreinlega til vegna misskilnings. Heimild: Embætti landlæknis Ertu í heilbrigðu sambandi? Þótt ástin sé funheit í byrjun og tilveran virðist tindra í rósrauðum bjarma er gott að hafa í huga að ekkert samband er fullkomið. Í upphafi sambands er því mikilvægt að vera nákvæmur og skýr. Til að efla góð samskipti er gott að hafa þetta í huga: l Verum nákvæm og skýr l Greinum frá tilfinningum okkar og spyrjum um tilfinningar hins aðilans l Skoðum hvað það er sem skiptir ykkur máli og hvað skiptir máli fyrir hinn l Veltið upp mögulegum lausnum þar sem báðir aðilar fá sem mest af því sem þeir vilja Forðumst þetta: l Kaldhæðni l Uppnefningar l Að grípa fram í l Að setja afarkosti Svona vil ég að komið sé fram við mig: l Að mér sé treyst l Að ég njóti hvatningar l Að ég sé elskuð/elskaður l Að komið sé fram við mig af hreinskilni l Að það sé séð um mig l Að það sé borin virðing fyrir mér l Að það sé haldið utan um mig l Að ég geti treysti honum/henni l Að við leiðumst l Annað sem skiptir máli Góð samskipti eru límið sem heldur fólki saman í ástarsamböndum, sem og virðing, jafnrétti og heiðarleiki. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R 0 8 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 3 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 F 6 -4 0 D 4 2 3 F 6 -3 F 9 8 2 3 F 6 -3 E 5 C 2 3 F 6 -3 D 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 3 2 s _ 7 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.