Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 9
Rafbíllinn Jaguar I-Pace vann nýverið til þrennra gullverðlauna á hinni virtu uppskeruhátíð bílaframleiðenda World Car Of The Year. I-Pace varð þar með fyrsti bíllinn í heiminum til að vinna þrjá flokka á sama árinu. Vertu með þeim fyrstu sem upplifa nýjan fjórhjóladrifinn Jaguar I-PACE, 470 km drægi*, 400 hestöfl, 4,8 sek. í 100 km. jaguarisland.is VERÐ FRÁ: 9.790.000 KR. Jaguar I-Pace E N N E M M / S ÍA / N M 9 5 1 6 8 J a g u a r i- P a c e 5 x 2 0 á g ú s t JAGUAR HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK SÍMI: 525 6500 HAT-TRICK HEIMSBÍLL ÁRSINS HÖNNUN ÁRSINS RAFBÍLL ÁRSINS *U pp ge fn in ta la u m d ræ gi s am kv æ m t s am ræ m du m m æ lin gu m W TP L st að al si ns Það hefur oft gustað hressilega um Ríkisútvarpið síðan það hóf starfsemi sína árið 1930. Ýmis upphlaup hafa orðið í gegnum árin og menn hafa haft ýmsar skoð­ anir uppi varðandi starfsemi þess. Umræðan undanfarið hefur eink­ um beinst að fjármögnun stofn­ unarinnar og þá einkum hlutdeild hennar í auglýsingamarkaðinum hér á landi . Auglýsingar hafa verið fastur liður í dagskrá Ríkisútvarps­ ins frá stofnun og eru þess vegna hluti af daglegu lífi landsmanna. Mörgum íbúum nágrannalanda okkar kemur það stundum spánskt fyrir sjónir að hér séu auglýsingar í ríkisfjölmiðlinum, en svona er það nú samt, líkt og í f lestum eða öllum öðrum löndum á meginlandi Evr­ ópu. Þar eru stöðvarnar líka fjár­ magnaðar í f lestum tilfellum með blöndu af afnotagjöldum og aug­ lýsingum líkt og hér. Tryggur hópur að baki RÚV Það verður ekki annað sagt en að landsmenn standi þétt að baki Ríkis útvarpinu, ef marka má fjöl­ margar kannanir á undanförnum árum. Þrátt fyrir tilkomu heims­ miðla sem hafa haft mikil áhrif á fjölmiðlun – ekki aðeins hér á landi heldur um allan heim – á Ríkis­ útvarpið sinn trygga hóp hlustenda og áhorfenda. Stofnunin hefur líka lagt sig fram um að fylgja þróun í miðlun efnis, og sinna öllum aldurs­ hópum, ekki síst ungu kynslóðinni. Má þar bæði nefna KrakkaRÚV og Rúv Núll, sem segja má að hafi vald­ ið byltingu í notkun þessara hópa á fjölmiðlum og haft veruleg áhrif á menningarlegt uppeldi þeirra. Meiri og meiri samkeppni Samkeppni við erlendar efnisveit­ ur verður sífellt harðari, en til að keppa við þær hefur RÚV stóraukið áherslu á innlent efni. Á undanförn­ um fimm árum hefur það aukist um 23% og á sama tíma hefur verið dregið úr framboði af bandarísku afþreyingarefni um 45%. Þetta eru tölur sem tala sínu máli og landinn hefur vel kunnað að meta. Sumt af því efni sem stofnunin hefur átt þátt í að framleiða hefur svo ratað í erlendar stöðvar og aukið hróður Íslands á sviði kvikmyndagerðar. Við í Ríkisútvarpinu erum ákaf­ lega stolt af útvarpsrásunum okkar tveimur og Sjónvarpinu. Hin gamla og virðulega Rás 1 hefur haldið sínu striki og blómstrað, þrátt fyrir mikla samkeppni á ljósvakarás­ unum. Löggjafinn ákveður fjármögnun En allt kostar þetta peninga, og til að standa undir hinni metnaðar­ fullu dagskrá eru auglýsingar og útvarpsgjaldið svokallað. Menn geta haft mismunandi skoðanir á því hvernig hlutfallið varðandi fjár­ mögnunina á að vera, en það er lög­ gjafans að ákveða það. Við vonum bara og treystum því að verði hlut­ fall auglýsinga minnkað, fáum við það bætt með útvarpsgjaldinu. Ef til vill verða hugsanlegar breytingar á þessu hlutfalli til þess að styrkja einkarekna fjölmiðla og það er ekki nema gott um það að segja, því sannleikurinn er sá að löggjafinn hefði átt fyrir löngu að vera búinn að búa þannig um hnútana að hér á landi geti þróast lýðræðisleg og menningarleg umræða um hvað­ eina sem mönnum liggur á hjarta. Framtak mennta­ og menningar­ málaráðherra á þessu sviði lofar góðu. Stöndum vörð um tunguna Ríkisútvarpið vill hér eftir sem hingað til leggja sitt af mörkum til íslenskrar menningar og lýðræðis­ legrar umræðu. Það hefur kannski aldrei verið nauðsynlegra en nú á tímum, þegar við verðum að slá skjaldborg um tungumálið okkar íslenskuna, sem á í sífellt meiri vök að verjast vegna erlendra áhrifa. Ríkisútvarpið haldi stöðu sinni Kári Jónasson formaður stjórnar Ríkisútvarpsins Við í Ríkisútvarpinu erum ákaflega stolt af útvarps- rásunum okkar tveimur og Sjónvarpinu. Hin gamla og virðulega Rás 1 hefur haldið sínu striki og blómstrað, þrátt fyrir mikla samkeppni á ljósvakarásunum. Í bréfi sem Matthías Jochumsson skrifaði í mars 1904 segir: „Ég lét byggja mér nýtt dáfallegt hús í fyrra til að deyja í.“ Þetta hús er Sigur­ hæðir sem hann lét reisa 1903 og þar sem Matthíasarfélagið stofnaði Matthíasarsafn 1962, minningar­ safn um Matthías Jochumsson og opnað var árið 1965. Þar voru skrif­ stofuherbergi, ætluð skáldum og fræðimönnum til skapandi skrifa. Sigurhæðir standa sunnan undir núverandi Akureyrarkirkju, sem vígð var 1940, og nefnd hefur verið Matthíasarkirkja. Mörg skáld hafa í tímans rás tengst Akureyri með einum eða öðrum hætti, þótt tengslin séu mis­ munandi. Sum eru fædd í „höfuðstað hins bjarta Norðurs“, önnur komu til bæjarins á fullorðinsárum og sett­ ust þar að, og enn önnur dvöldust þar aðeins skamma hríð, en skildu eftir sig ljóð, myndir og minningar. Í þessum hópi eru um fimmtíu skáld. Mætti því kalla bæinn „skáldabæinn Akureyri“. Eitt skáld kom iðulega til Akureyrar, en hafði þar aldrei fasta búsetu, listaskáldið góða, Jónas Hallgrímsson, sem fór um Akureyri á ferðum sínum til og frá æskuheim­ ili sínu á Steinsstöðum í Öxnadal. Séra Matthías Jochumsson fluttist til Akureyrar árið 1886 og lifði þar til dauðadags 18. nóvember 1920 og skildi þar eftir sig spor, sem enn hefur ekki fennt í. Matthías átti oft erfitt, allt frá bernskudögum fram á elliár, barðist við þunglyndi og efasemdir í trúmálum, eins og víða kemur fram í kvæðum hans. Af sögu hans má margt læra. Meðal annars getur ungt fólk lært margt af sögu hans – einnig við sem eldri erum. Stjórn Akureyrarstofu hefur nú ákveðið að óska eftir því við umhverf is­ og mannvirkjasvið bæjarins, að húsið Sigurhæðir verði sett í sölu, þótt málið hafi hvorki verið rætt í bæjarstjórn né bæjar­ ráði. Hins vegar verði sögu hússins og sögu Matthíasar Jochumssonar gerð skil með öðum hætti, „til dæmis með söguskilti“ – ég endurtek: „með söguskilti“. Þetta er ekki sæmandi. Formælandi Akureyrarstofu færir þau rök ein fyrir hugmyndinni, að stígur frá kirkjutröppunum sé ekki fær fyrir fatlaða eða fólk sem á erfitt með gang – „ekki síst á snjóþungum dögum“. Furðulegt er að lesa þetta: selja Sigur hæðir, þótt málið hafi ekki verið rætt í bæjarstjórn eða bæjar­ ráði, en sögu Matthíasar gerð skil með söguskilti. Forysta í skálda­ bænum, skóla­ og menningarbænum Akureyri getur ekki verið þekkt fyrir slíkt og þvílíkt. Það finnast leiðir, ef ráðamenn vilja hugsa málið frá upp­ hafi til enda og vilja standa sína plikt gagnvart sögu bæjarins og menn­ ingu. Svo kann líka að vera að leiðin að Sigurhæðum eigi ekki að vera auð­ gengin, hvorki ungum né öldnum, fötluðum né fólki sem á erfitt með gang. Leið Matthíasar Jochumssonar gegnum lífið var heldur ekki auðveld. Sigurhæðir og Matthías Tryggvi Gíslason fyrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9Þ R I Ð J U D A G U R 8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 0 8 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 3 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 F 6 -3 B E 4 2 3 F 6 -3 A A 8 2 3 F 6 -3 9 6 C 2 3 F 6 -3 8 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 3 2 s _ 7 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.