Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 25
Sparneytnari, hagkvæmari og hljóðlátari ISUZU D-MAX Isuzu D-Max BASIC dísil, beinskiptur. Verð: 5.290.000 kr. (Verð án vsk: 4.266.129 kr.) Isuzu D-Max PRO dísil, sjálfskiptur. Verð: 6.290.000 kr. (Verð án vsk: 5.072.581 kr.) 164 hestöfl – 3.500 kg dráttargeta. Eyðsla frá 7,0 l/100km* E N N E M M / S ÍA / N M 9 6 1 7 0 I s u z u D - M a x a lm e n n 5 x 2 0 o k t *M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tr i. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Undur er sýning í Gall-eríi Fold og þar sýna saman verk sín hin bandaríska Lulu Yee og Daði Guðbjörns-son. „Forsvarsmenn gallerísins stungu upp á þessari sýningu,“ segir Daði. „Lulu hefur verið viðloðandi Ísland og er gift íslenskum manni. Hún er hluti af íslensku listasenunni, mjög yndis- leg manneskja.“ Lulu, sem var horfin af landi brott þegar viðtalið var tekið, sýnir fígúrur úr leir og Daði sýnir vatns- litamyndir. „Leirinn er eitt það massaðasta sem hægt er að fást við og vatnslitir það léttasta en það er sannarlega ekki út í loftið að sýna þessi verk saman. Sýningargestir sjá samstundis að litapalletta okkar er skyld. Við vinnum þó mjög ólíkt og hugsunin á bak við verkin er ekki sú sama. Það er gaman að stefna saman ólíkum einstaklingum með ólíkan uppruna,“ segir Daði. Hann segist hafa farið í smá sam- tal við verk Lulu. „Margar mynda minna á þessari sýningu eru eins og hús, landslag eða stemning sem hentar verum eins og hún skapar. Þetta sést í sjálfu sér ekki á verk- Stefnumót Daði Guðbjörnsson og Lulu Yee sýna sam- an málverk og leirverk í Galleríi Fold. „Það er gaman að stefna saman ólíkum einstaklingum með ólíkan uppruna,“ segir Daði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is unum en þegar ég var að vinna þau þá var ég að hugsa um hvernig umhverfi verur eins og hennar gætu hugsað sér að vera í.“ Daði segist ekki hafa sýnt vatns- litamyndir í nokkurn tíma. „Öðru hvoru gríp ég í vatnslitina en í allt sumar gerði ég vatnslitamyndir og það var óskaplega gaman. Það er ákveðið hugarfar og lýrík í vatns- litunum, maður verður massaðri í olíunni. Vatnið tekur líka dálítið völdin af manni, myndirnar fara allt í einu að f læða í einhverja átt sem maður vissi ekki af.“ Nokkrar mynda hans á sýning- unni er af höndum og fingrum. „Ég hef verið að velta fyrir mér þeim galdri sem felst í tengingu augans og fingranna. Fingragerðin hefur örugglega áhrif á það hvernig myndlist maður gerir.“ Sýningin í Galleríi Fold stendur til 14. október. Daði segist hafa feng- ið góð viðbrögð við henni. „Fólk er hrifið af þeirri heild sem hefur skap- ast á sýningunni og hefur orð á því að verkin passi vel saman.“ SÝNINGARGESTIR SJÁ SAMSTUNDIS AÐ LITAPALLETTA OKKAR ER SKYLD. VIÐ VINNUM ÞÓ MJÖG ÓLÍKT OG HUGSUNIN Á BAK VIÐ VERKIN ER EKKI SÚ SAMA. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17Þ R I Ð J U D A G U R 8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 0 8 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 6 -3 2 0 4 2 3 F 6 -3 0 C 8 2 3 F 6 -2 F 8 C 2 3 F 6 -2 E 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 7 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.