Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.10.2019, Blaðsíða 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Sighvatur Arnmundsson sighvatur@frettabladid.is Það má ekki verða svo að minnstu sveitar- félögin komi í veg fyrir að fleiri verk- efni verið færð yfir til sveitarfélag- anna. Fyrirtæki upplifa sig mörg nokkuð varnarlaus gagnvart vaxandi ógnum á netinu. Fyrsti stóri slípirokkurinn knúinn af einni rafhlöðu sem skilar ai til þess að slípa, er léttari en snúrurokkur í sinni stærð. Sveigjanlegt rafhlöðuker sem virkar með öllum Milwaukee ® M18™ rafhlöðum. Verð 136.900 kr. (með rafhlöðu) M18 FLAG Alvöru slípirokkur frá Milwaukee vfs.is Einstaklingar og fyrirtæki hér á landi hafa nú þegar orðið fyrir verulegu fjártjóni og ýmsu öðru tjóni þegar viðkvæmar upplýsingar komast í hendur óviðkomandi. Margt bendir til þess að atvikum af þessu tagi muni halda áfram að fjölga á næstu árum. Talið er að íslensk fyrirtæki hafi orðið fyrir tugmilljarða króna tapi, en aðeins lítið brot er tilkynnt til lögreglu og rannsakað. Fyrirtæki upp- lifa sig mörg nokkuð varnarlaus gagnvart vaxandi ógnum á netinu. Hið sama má segja um heimilin í landinu sem eru að taka í notkun margs konar snjall- tæki, svo sem reykskynjara, hitastilla, öryggiskerfi, eftirlitsmyndavélar og læsingar, sem tengd eru Inter- netinu með tilheyrandi hættu á að óviðkomandi geti farið að stýra þeim sé ekki gætt fyllsta öryggis. Októbermánuður er tileinkaður netöryggis- málum og hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðu- neytið birt hagnýtar leiðbeiningar fyrir almenning og fyrirtæki á stjornarradid.is/netoryggi til að auð- velda fólki og fyrirtækjum að verjast í netheimum. Einföld atriði geta stóraukið öryggi við notkun snjalltækja svo sem: n Að nota ólík lykilorð fyrir mismunandi þjónustur. n Að spyrja sölu- eða þjónustuaðila snjalltækja um hvaða öryggisráðstafanir séu mögulegar við upp- setningu og notkun tækjanna. n Að breyta upphaflegu lykilorði WiFi-neta og snjalltækja þegar þau eru tekin í notkun. n Að breyta persónuverndar- og öryggisstillingum tækis miðað við þarfir og gera þá eiginleika óvirka sem ekki á að nota. n Að setja inn öryggisuppfærslur um leið og þær eru fáanlegar. Nýsamþykkt lög um netöryggismál ásamt nýrri stefnu og aðgerðaáætlun leggja grunn að verkefnum stjórnvalda á þessu sviði. Net- og upplýsingaöryggis- mál varða samfélagið allt, einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila. Netógnir í nýjum heimi Sigurður Ingi  Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra Mögulegur fjárhagslegur ávinningur af sameiningu sveitarfélaga, miðað við tillögur um að lágmarksíbúafjöldi verði eitt þúsund árið 2026, gæti orðið allt að fimm milljarðar króna á ári. Þetta sýnir ný úttekt sem unnin var fyrir samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytið og kynnt á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga fyrir helgi. Þessar tölur, sem eru auðvitað settar fram með fyrirvara um að mögulegur ávinn- ingur skili sér, eru að mati skýrsluhöfunda varfærnis- mat. Það er ljóst að hér er eftir miklu að slægjast. En það er ekki bara fjárhagslegur ávinningur sem horfa þarf á, heldur einnig möguleikar og tækifæri sveitarfélaga til að eflast og dafna. Eins og við var að búast hafa tillögur Sigurðar Inga Jóhannssonar mætt töluverðri andstöðu hjá mörgum af minnstu sveitarfélögunum. Hafa sum þeirra gengið svo langt að segja sig úr Sambandi íslenskra sveitar- félaga. Meðal þeirra raka sem heyrast eru að það sé andstætt lýðræðinu að ætla sér að þvinga sveitarfélög til sameiningar með löggjöf. Aldís Hafsteinsdóttir, for- maður Sambands íslenskra sveitarfélaga, hefur bent á að það geti heldur varla talist lýðræðislegt að minnstu sveitarfélögin þurfi að útvista mörgum lögbundinna verkefna sinna. Auðvitað væri æskilegt að sameiningar væru sjálf- sprottnar en reynslan sýnir því miður að þannig gerast hlutirnir allt of hægt. Danir gáfust til að mynda upp á slíkri bið og settu lögbundinn lágmarksíbúafjölda. Það má ekki verða svo að minnstu sveitarfélögin komi í veg fyrir að fleiri verkefni verið færð yfir til sveitar- félaganna. Sterk og öflug sveitarfélög eru forsenda öflugrar landsbyggðar og þess vegna er málflutningur andstæðinga sameiningartillagnanna furðulegur. Hér er í mörgum tilfellum um viðkvæm svæði að ræða í byggðarlegu tilliti sem hafa átt undir högg að sækja. Þótt hægt hafi gengið að sameina sveitarfélög á síð- ustu árum er fram undan síðar í mánuðinum mikilvæg íbúakosning í fjórum sveitarfélögum á Austurlandi. Þrjú sveitarfélaganna hafa í dag færri en þúsund íbúa og eitt þeirra færri en 250 sem gæti orðið lágmarkið frá 2022. Lykilatriði í vinnu samstarfsnefndar sveitar- félaganna er hugmyndin um svokallaða „heimastjórn“. Er þannig ætlunin að koma til móts við kröfur um áhrif heimamanna á þjónustu í nærumhverfi sínu. Sam- eining sveitarfélaga snýst nefnilega ekki endilega um sameiningu byggðanna sem slíkra, heldur sameiningu stjórnsýslunnar. Því fylgir auðvitað stóraukin sam- vinna byggðanna en einkennin þurfa ekki að tapast þótt breytt sé um nafn sveitarfélagsins. Framtíð málsins mun ráðast á Alþingi í vetur. Í þeirri vinnu sem fram undan er þarf auðvitað að hlusta á öll sjónarmið og horfa til reynslu fyrri sameininga og læra af þeim mistökum sem gerð hafa verið. Margir hafa bent á að erfitt geti reynst að miða við einhverja eina tölu þegar kemur að lágmarksíbúafjölda í sveitarfélagi. Undir það má taka og þingmenn þurfa að skoða af fullri alvöru hvort þessar tillögur gangi of skammt. Það er hins vegar tæknilegt úrlausnarefni. Efling sveitar- stjórnarstigsins hefst aftur á móti með pólitískri yfir- lýsingu um stærri og öflugri sveitarfélög. Skýr ávinningur Hafnarfjörður logar Hafnarfjörðurinn logar nú af reiði. Í kaffisamsætum er um lítið annað talað en vondu bæjar- stjórnina sem ætlar að stúta höfninni. Setja stóra landfyll- ingu fyrir framan kirkjuna og planta þar skýjakljúfum. Eða álveri. Eða kjarnorkuveri. Rósa bæjarstjóri og Ágúst Bjarni, eini Framsóknarmaðurinn í bænum, hlaupa um allar koppagrundir með slökkvitækið á lofti. „Djók! Við ætluðum aldrei að gera þetta. Þið áttuð aldrei að sjá þetta!“ Hafnfirðingar eru efins, enda illa brenndir af stórframkvæmdum við hafnarsvæðið. Blokka- lengjan við Norðurbakkann hefur gjörbreytt ásýnd svæðisins og á örskotsstundu hefur ferlíki Hafrannsóknastofnunar risið í hinum enda þess. Gott djobb? „Er það gott djobb?“ spurði Nóbelskáldið. Sennilega spyrja allir sig að þessu á einhverjum punkti á lífsleiðinni. Líka Kristín Linda Árnadóttir, nýráðinn aðstoðarforstjóri Landsvirkj- unar, en hún hefur verið forstjóri Umhverfisstofnunar frá 2008. „Er aðstoðarforstjóri betra djobb en forstjóri?“ Þetta segir mest um stöðu umhverfismála á Íslandi því stofnanirnar tvær gætu ekki verið ólíkari. Umhverfismálin eru í neðri deildunum. Að vera aðstoðarknattspyrnustjóri Liverpool er betra en að vera knattspyrnustjóri Tranmere. kristinnhaukur@frettabladid.is 8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 8 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 6 -3 2 0 4 2 3 F 6 -3 0 C 8 2 3 F 6 -2 F 8 C 2 3 F 6 -2 E 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 7 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.