Víkurfréttir - 22.08.2019, Page 4
Skrifuðu undir samstarf um heilsu-
eflandi samfélag á Suðurnesjum
❱❱ Fyrsta svæðið sem starfar saman með þessum hætti
Bæjarstjórar Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar, Grindavíkurbæjar og Voga
ásamt forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, framkvæmdastjóra Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurnesjum og landlækni undirrituðu í síðustu viku
viljayfirlýsingu um að starfa saman að Heilsueflandi samfélagi á Suður-
nesjum. Athöfnin fór fram í húsnæði Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Mikil fólksfjölgun hefur verið á
svæðinu undanfarin ár en Suður-
nesin standa vel hvað varðar
ýmsa þætti sem hafa áhrif á vellíðan
íbúa. Samkvæmt m.a. Lýðheilsuvísum
2019 eru hins vegar sóknarfæri til
að gera betur. Í samræmi við megin-
markmið Heilsueflandi samfélags er
tilgangur verkefnisins að greina með
markvissum hætti stöðuna og samein-
ast um að leita lausna sem stuðla að
heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu
og vellíðan allra íbúa á Suðurnesjum.
Suðurnesin eru fyrsta svæðið sem
ákveður að starfa saman að Heilsu-
eflandi samfélagi með þessum hætti.
Samstarfið mun meðal annars nýtast
við undirbúning Sóknaráætlunar
Suðurnesja 2020–2024.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, sagðist hlakka til
samstarfsins við hin sveitarfélögin.
„Við höfum verið að vinna að verkefn-
inu Heilsuefling 65+ sem er verkefni
með elsta fólkinu okkar og það hefur
algjörlega slegið í gegn. Það vantar
ekkert upp á vilja og áhuga okkar
hjá Reykjanesbæ og ég efast ekki um
það hjá hinum sveitarfélögunum líka
þegar þau eru komin í þetta samstarf
með okkur. Við vorum að ganga frá
því að ráða til okkar lýðheilsufræðing.
Við þurfum að virkja allt samfélagið,
íþróttahreyfinguna, skólana, félaga-
samtök, fyrirtæki, atvinnulíf, alla, því
það er verk að vinna og við ætlum að
gera það.“
Berglind Kristinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjunum, sagði Suðurnesin
vera í sóknarfæri þegar lýðheilsu-
vísar svæðisins væru skoðaðir. Það
fælust auðlindir í því að eiga ungt
samfélag. „Ég hef miklar væntingar til
þessa verkefnis. Við stöndum á tíma-
mótum og okkur fannst þetta verkefni
smellpassa inn í nýja sóknaráætlun.
Ég hlakka til.“
Meðfylgjandi myndir tók Sólborg
Guðbrandsdóttir við undirritunina
á HSS á dögunum.
Lýðheilsufræðingur ráðinn hjá Reykjanesbæ
Gengið hefur verið frá ráðningu
Guðrúnar Magnúsdóttur í starf
lýðheilsufræðings á velferðar-
sviði Reykjanesbæjar. Guðrún er
hjúkrunarfræðingur að mennt,
með meistaragráðu í lýðheilsu-
vísindum frá Háskóla Íslands með
áherslu á stjórnun og stefnumótun
í heilbrigðisvísindum. Síðastliðin
ár hefur hún starfað sem hjúkr-
unarfræðingur á bráðamóttöku
barna og sem hjúkrunar- og lýð-
heilsufræðingur í Heilsuskóla
barnaspítalans, ásamt störfum á
geðsviði Landspítalans. Guðrún
mun hefja störf á haustmánuðum.
Þórdís Ósk ráðin forstöðumaður Súlunnar
Þórdís Ósk Helgadóttir hefur verið
ráðin sem forstöðumaður Súl-
unnar hjá Reykjanesbæ. Tólf hæfir
einstaklingar sóttu um starfið en
Súlan er ný skrifstofa þar sem
ýmsir málaflokkar heyra undir,
svo sem atvinnumál, menningar-
mál, markaðs- og kynningarmál,
ferðamál, safnamál og verkefna-
stjórnun.
Þórdís Ósk er með BA gráðu í hús-
gagnaarkitektúr og meistaragráðu í
verkefnastjórnun. Í starfi forstöðu-
manns Súlunnar felst meðal annars
ábyrgð á innleiðingu verkefnastjórn-
unar sem stjórnunaraðferð í starf-
semi Reykjanesbæjar, ábyrgð á inn-
leiðingu og vinnu með stefnumótun
Reykjanesbæjar á verkefnasviði
Súlunnar og efling og samræming
á kynningar- og markaðsmálum
bæjarins.
Á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar
þann 15. ágúst kom þetta fram:
„Meirihluti bæjarráðs samþykkir
að ráða Þórdísi Ósk Helgadóttur
sem forstöðumann Súlunnar. Mar-
grét Þórarinsdóttir styður tillögu
meirihlutans. Margrét Sanders,
Sjálfstæðisflokki, og Gunnar Þórar-
insson, Frjálsu afli, sitja hjá.“
Skrifstofur Súlunnar verða í Gömlu búð
Bæjarráð Reykjanesbæjar gerir ekki athugasemdir við að ákveðið hafi
verið að nýta Gömlu búð alfarið undir starfsemi Súlunnar, verkefnastofu
atvinnu-, menningar- og markaðsmála.
Unnið hefur verið að endurbygg-
ingu hússins undanfarin ár og sér
nú fyrir endann á þeirri fram-
kvæmd. Menningarfulltrúi og verk-
efnastjóri menningarmála hafa
báðar haft vinnuaðstöðu í húsinu
um tveggja ára skeið og er þetta
eðlilegt framhald á því skrefi sem
þá var stigið.
Gamla búð verður opin og til sýnis
almenningi á sunnudeginum á
Ljósanótt.
F.v. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, Markús Eiríkur Ingólfsson,
forstjóri HSS, Alma D. Möller landlæknir, Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Fannar Jónasson,
bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, og Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Voga.
Guðrún Magnúsdóttir er nýr
lýðheilsufræðingur hjá Reykjanesbæ.
Talsvert af lausum tímum hjá læknum á HSS
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segir
frá því á Facebook-síðu sinni að það sé
talsvert framboð af viðtölum heilsu-
gæslulækna HSS á dagvinnutíma á
næstu dögum. Hávær umræða hefur
lengi verið nokkuð ríkjandi að erfitt
sé að fá tíma hjá lækni í Keflavík.
HSS bendir á að til séu hefðbundnir
viðtalstímar sem og 10 mínútna við-
töl sem hægt sé að bóka í síma eftir
klukkan 8:00 á hverjum degi.
Minnt er á að hægt er að bóka tíma í
gegnum Heilsuveru á https://www.
heilsuvera.is/
KYNNINGARFUNDUR
& LEIKLISTARNÁMSKEIÐ
Kynningarfundur og leiklistarnámskeið fyrir farsann
Fló á Skinni verður haldinn í Frumleikhúsinu,
Vesturbraut 17 þann:
26. ágúst frá 19:00 til 23:00
27. ágúst frá 19:00 til 23:00
Hvetjum alla áhugasama, 18 ára og eldri (fædd 2001),
til að mæta.
Allir sem hafa áhuga á því að leika,
dansa, syngja eða taka þátt í verkinu
með einhverjum hætti eru hjartanlega
velkomnir.
Leikstjóri verksins er
Karl Ágúst Úlfsson.
Fló
á sKInNi
4 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. ágúst 2019 // 31. tbl. // 40. árg.