Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.08.2019, Side 9

Víkurfréttir - 22.08.2019, Side 9
hjá flestum sjófuglum, sérstaklega hér á suður- og vesturlandi þar sem sílið hefur verið af skornum skammti og sumir tala meira að segja um hrun. Ég hef oft talað um það að kríur séu í kreppu. Á sama tíma og kreppa kom yfir íslenskt samfélag þá kom kreppa yfir þessa sjófugla. Þær virðast ekki hafa rétt úr kútnum. Svæðisbundið virðast vera góð ætissvæði. Fyrir tveimur árum voru þau við Faxaflóa, einhver svæði fyrir norðan en heilt á litið hefur þetta verið afskaplega lélegt hjá flestum sjófuglum. Það er eitthvað sem gefur rannsóknum eins og þessum mikið vægi, að við séum ennþá að fylgjast með ástandinu. Rannsóknir með þessum tækjum gefa okkur upplýsingar miklu hraðar, frekar en að verja mörgum árum í að fylgjast með viðkomu og stærðum sjófuglastofna, heldur líka að skoða hvað fuglarnir eru að gera og hvert þeir fara í æti. Þetta sem þú ert að lýsa rímar nákvæmlega við það sem við höfum verið að mæla. Þetta er eitthvað sem er alveg þess virði að halda áfram að fylgjast með.“ — Hvað gefur þessi búnaður ykkur langan tíma til að fylgjast með kríunni? „Þessi GPS-tæki rita gögnin þann- ig að við þurfum annað hvort að fá sendinguna til baka í þennan beini hér við Norðurkot eða að ná tækinu til baka til þess að lesa af því. Með því að hafa það þannig í stað þess að senda upplýsingarnar upp í gervi- tungl, þá náum við að safna miklu fleiri gögnum, heldur en ef við værum með gervitunglatæki. Við fáum gögn að minnsta kosti á 15 mínútna fresti á meðan þeir eru hérna í varpinu. Þann 1. septem- ber þá breytir tækið um dagskrá og tekur mælingu fjórum sinnum á sólarhring. Þá fáum við upplýsingar fjórum sinnum á sólarhring um hvar fuglinn er og hver hreyfingin er. Þetta gefur okkur nákvæmar upp- lýsingar um hvar kríurnar eru. Þessi upplýsingaöflun verður í gangi allan ársins hring þangað til þær koma aftur hingað til Hönnu Siggu og Palla næsta vor. Þá náum við tækjunum aftur eða hlöðum niður frá þeim í beininn og fáum heilt ár af þessum upplýsingum. Þá getum við tekið tækin aftur af kríunni og endurhlaðið þau, forritað upp á nýtt og sett þau aftur út. Ef að endurheimtan gengur vel, sem hefur gengið hingað til, þá getum við haldið áfram svo lengi sem við höfum rannsóknarpening, nennu og getu til að standa í þessu.“ — Hvað vitið þið um kríuna í dag, er hún trú varpsvæðum sínum? „Það er alveg ótrúlegt hvað þær eru nákvæmar. Við erum búin að finna nítján fugla af þeim sem við merktum í fyrra á hreiðrum. Það hefur varla skeikað metra. Sumar fara nákvæm- lega í sömu skálina og þær voru í í fyrra. Við erum með sérmerkt hreiður með GPS-merkingum og vitum ná- kvæmlega hvar þau voru. Af þessum nítján fuglum var aðeins einn fugl sem ákvað að færa sig og hann færði sig alveg um tvo metra,“ segir Dr. Frey- dís og brosir. VERJA UNGVIÐIÐ AF ÖLLU AFLI — Hvað er það við kríuna sem er að heilla þig svona mikið? „Það er ansi margþætt. Ég kynnist kríunum fyrst sem krakki á Vest- fjörðum og svo þegar ég var sjálf í doktorsnámi fyrir áratug og það var allt svona á varpstöðum. Árásargirni er það fyrsta sem mér kemur í hug og örugglega flestum Íslendingum. Ég ber svo mikla virðingu fyrir kríunni vegna árásargirninnar. Það sem þær eru fyrst og fremst að gera er að berj- ast fyrir ungviði sínu. Þær eru búnar að koma alla leið frá Suðurskautinu, alla leið yfir hnöttinn, og verpa hér. Ástæðan fyrir því að þær eru að verja varpið sitt, er að þær verða að koma þessum ungum á legg á svo rosalega stuttum tíma. Ég ber virðingu fyrir þeim, að hafa getu til að gera þetta og að þær hafi þennan kraft til að passa upp á ungana sína og koma þeim á legg. Þetta er ekkert smá mikil vinna. Svo þessi virðing sem við höfum fyrir henni, sem erum að læra núna um ferðalag kríunnar alla þessa leið. Ég held því að tilfinning mín sé fyrst og fremst viðring.“ — Ef krían kemur ekki unganum á legg á tilsettum tíma, er það þá tilfellið að þær fari án hans? „Já. Það er tilfellið með öll dýr sem eru langlíf og koma upp fáum ungviðum á lífstíð sinni, að þau fórna ekki sínu eigin heilbrigði fyrir ungana og geta því tekið þá ákvörðun að reyna bara á næsta ári. Það er það sem við sjáum með nánast allar sjófuglategundir, kríur eru ekkert öðruvísi. Þess vegna sjáum við það að þegar tíðin er slök þá verða þær bara að skilja eftir ungann og verða að halda áfram sínu fari og geta komið aftur og reynt á næsta ári. Það er oft nóg fyrir þessa sjó- fuglastofna til að halda viðkomunni að þurfa ekki að koma upp ungum á hverju einasta ári. Þessu er öfugt farið með ýmsa smáfugla sem hafa bara einhver fimm ár og þá er lífið búið og þurfa því að koma upp mörgum í einu. Sjófuglar lifa lengi og geta því sleppt ári. Þetta gefur okkur tækifæri ef við fylgjumst vel með, að þetta segir okkur til um ástand sjávar. Ef þær eru að skilja ungana eftir þá er ekkert að gerast úti í sjónum, ekkert æti og þess vegna taka þær þessa ákvörðun.“ VORU VIKU OF SEINAR Þegar við tókum viðtal við Dr. Freydísi voru ungarnir að byrja að skríða úr eggjum. Vísindafólkið hafði því verið við eggjamælingar í tíu daga. „Þetta leit ekkert vel út í byrjun en það er líflegra yfir varpinu núna. Þær voru alveg viku of seinar miðað við mælingar í fyrra. Árið í fyrra var ekkert voðalega gott hér á Suð-Vestur- landi fyrir kríuna. Þó að krían sé sein, þá er lykilatriði fyrir hana að það sé æti til staðar þegar unginn klekst út.“ — Eruð þið að sjá hana koma með æti? „Já, með tækjunum erum við að sjá hvert krían er að sækja æti og við fylgjumst svo með henni hér í varpinu þegar hún kemur í hreiðrið. Við erum svo með ljósmyndir af ætinu, þannig að þetta gæti ekki verið nákvæmara.“ KRÍAN GEFUR NÁKVÆMA MYND — Og eru þessar upplýsingar að nýtast mörgum stofnunum? „Ekki spurning. Vísindastofnanir sem vinna með málefni sjávarins. Þetta nýtist þeim öllum. Þetta nýtist líka samfélaginu og yfirvöldum. Við fáum núna gríðarlega nákvæma mynd af því hvar kríurnar eru að fara í æti. Ef við komumst að því að þar eru ein- hverjar aðgerðir af okkar hálfu í gangi sem gætu haft áhrif á náttúruna, þá væri það slæm hugmynd. Þessi rann- sóknaraðferð og þessi tæki og vinna, hún nýtist mjög vel við verndun haf- svæða og ákvarðanir sem við tökum um málefni hafsins, hvort sem það eru veiðar, verndarsvæði eða hvað það er sem við myndum ætla að setja upp á þessum hafsvæðum. Hvort sem það væru olíuborpallar eða annað, þá nýtast þessar upplýsingar vel við svoleiðis ákvarðanatöku.“ Ástandið hjá kríunni var mun skárra í ár en undanfarin ár. Henni virðist hafa tekist að koma ungviðinu á legg í sumar en Dr. Freydís segir það þó engin merki um að kreppunni hjá sjófuglunum sé lokið. Krían er núna nær öll lögð upp í lang- ferðina til Suðurskautslandsins en síðustu kríurnar eru þessa dagana að búa sig til brottfarar frá varpstöðvum við Norðurkot. Dr. Freydís Vigfúsdóttir sleppir kríu að loknum mælingum við Norðurkot. Á myndinni eru einnig Jo Morten doktorsnemi, Nicole Parr doktorsnemi, dr. Lucy Hawkes, Sólveig barnabarn hjónanna í Norðurkoti og dr. Sara Maxwell. Hilmar Bragi, blaðamaður Víkurfrétta, fékk að fylgjast með rannsóknar- verkefninu dag einn í júní. Hér er hann með kríu sem hefur verið merkt og klár til sleppingar. Kríupar með sandsíli í varpinu við Norðurkot. Að neðan er Dr. Freydís að merkja kríu. Kríuungi tekur fyrstu skrefin út í lífið. Myndin er úr safni Víkurfrétta frá árinu 2010. KRÍURNAR Í NORÐURKOTI Í SUÐURNESJAMAGASÍNI Á HRINGBRAUT OG VF.IS FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 21:30 Dr. Freydís Vigfúsdóttir. 9MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. ágúst 2019 // 31. tbl. // 40. árg.MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.