Víkurfréttir - 22.08.2019, Side 11
Ólafsdóttir auk aðkomu Raddlistar,
sem er fyrirtæki Bryndísar í talmeina-
þjónustu. Þá sáu Cargo flutningar um
að koma efninu til skila til leikskóla
um allt land ásamt fjölmörgum öðrum
einstaklingum.
Ánægð með starfsfólk
leikskóla Reykjanesbæjar
Auk efnisins sem leikskólar landsins
hafa nú fengið verða smáforrit Radd-
listar í boði fyrir almenning, þeim
að kostnaðarlausu,
fram í september-
lok. Þá er einnig
fjöldi myndskeiða
á YouTube-rásinni
„Lærum og leikum“
þar sem farið er
ítarlega yfir það
hvernig nota megi
efnið. Á afhending-
unni þakkaði Bryn-
dís starfsmönnum
leikskólanna í
R e y k j a n e s b æ
fyrir samstarfið
síðustu ár. „Það
hefur verið frá-
bært að vinna með ykkur. Ég fylgist
vel með og ég er afskaplega ánægð
með þann góða árangur sem mér
sýnist vera að viðhaldast. Það er ekki
síst vegna þess að þið eruð að vinna
svo frábært starf.“
Hægt er að fylgjast nánar með verk-
efninu á heimasíðunni laerumog-
leikum.is.
Norðanátt hindrar makrílveiðar smábáta
Ekki er nú hægt að segja að veðurguðirnir hafi verið blíðir undanfarið,
því síðustu daga hefur norðanáttin blásið nokkuð duglega og kuldinn eftir
því. Þetta hefur haft nokkur áhrif á makrílbátana, sérstaklega þá minnstu.
Þegar bátarnir hafa komist út þá hafa
þeir fiskað vel af makríl og margir
komið með fullfermi í land, til dæmis
Guðrún Petrína GK sem kom með
90 tonn í fimmtán róðrum og mest
8,7 tonn. Addi Afi GK kom rétt á
eftir með 87 tonn í sextán róðrum og
mest 8,2 tonn. Þessir tveir bátar bera
nokkuð af varðandi makrílveiðar hjá
handfærabátum sem eru að veiða
núna og landa á Suðurnesjum. Aðrir
bátar eru t.d. Agnar BA með 77 tonn
í fjórtán róðrum og mest 8,9 tonn.
Ísak AK 55 tonn í ellefu róðrum og
mest 8,8 tonn. Svala Dís GK 44 tonn
í ellefu róðrum og mest 7,4 tonn.
Máni II ÁR 35 tonn í átta róðrum og
mest 10,7 tonn. Hreggi AK 34 tonn
í 9 róðrum og má geta þess að Ísak
AK og Hreggi AK eru sams konar
bátar og einu stálbátarnir sem eru
á makrílveiðunum á handfærum.
Andey GK 21,5 tonn í sex róðrum.
Hlöddi VE 36,5 tonn í tíu róðrum.
Halla Daníelsdóttir RE 18,5 tonn í
tíu róðrum. Tjúlla GK 17,4 tonn í
sex róðrum. Fjóla GK 70 tonn í þret-
tán róðrum og mest 9,8 tonn. Siggi
Bessa SF 65 tonn í 8 og mest 14 tonn.
Bergvík GK 58 tonn í 13. Ragnar Al-
freðs GK 51 tonn í níu róðrum og
mest 8,4 tonn. Dögg SU 49,4 tonn í
sjö róðrum og mest 12,8 tonn. Nanna
Ósk II ÞH 47 tonn í átta róðrum og
mest 10,1 tonn. Lómur KE 41,7 tonn
í tíu róðrum. Gosi KE 34 tonn í níu
róðrum og mest 8,4 tonn. Sunna Rós
SH 35 tonn í ellefu róðrum og Linda
GK 17 tonn í tíu róðrum.
Það má geta þess að Nanna Ósk II
ÞH kemur lengst allra báta til þess
að stunda makrílveiðar, alla leið frá
Raufarhöfn.
Nýtt fiskveiðiár bráðum að hefjast
Nú er slippurinn í Njarðvík að tæm-
ast hægt og rólega af bátum sem hafa
verið þar í nokkurn tíma því það
styttist óðfluga í að nýtt fiskveiðiár
hefjist. Stóru línubátarnir eru að
hefja veiðar hver af öðrum. Sighvatur
GK landaði í Grindavík 134 tonnum
í einni löndun og af þeim afla þá
var keila 112 tonn. Páll Jónsson GK
75 tonn í einum róðri á Djúpavogi.
Kristín GK 64 tonn í einum róðri á
Grundarfirði. Þar var líka Jóhanna
Gísladóttir GK með 53 tonn í einum
róðri. Hrafn GK er farinn norður
til Siglufjarðar og var með 28 tonn
í einum róðri.
Nokkrir af minni línubátunum eru
úti á landi, bæði fyrir norðan og
austan. Óli á Stað GK fékk 54 tonn í
níu róðrum á Siglufirði. Daðey GK 47
tonn í átta róðrum, Auður Vésteins
SU 58 tonn í níu róðrum. Vésteinn
GK 56 tonn í níu róðrum, allir á Nes-
kaupstað.
Dúddi Gísla GK er eini línubáturinn
sem er að landa á Suðurnesjum
og hefur hann landað 21.6 tonn í
fjórum róðrum og af því þá er langa
9,4 tonn.
Dragnótabátarnir eru að skríða á
veiðar aftur og eru tveir bátar byrj-
aðir á veiðum eftir meira en einn
mánuð í stoppi. Benni Sæm GK er
með 12 tonn og Siggi Bjarna GK
11 tonn, báðir í þremur róðrum.
Reyndar má bæta við að Njáll ÓF
er kominn á veiðar og hefur landað
23 tonnum í sex róðrum á Hofsósi
og Sauðárkróki en þessi bátur var
lengst af Njáll RE sem á sér mjög
langa sögu í útgerð á Suðurnesjum
og þá aðallega Sandgerði.
Af netabátunum er frekar lítið að
frétta. Maron GK og Grímsnes GK
eru báðir að eltast við ufsann og
gengur það brösuglega. Grímsnes
GK er kominn með 43 tonn í fjórum
róðrum og mest 13,8 tonn og af því er
ufsi 39 tonn. Maron GK 30 tonn í tíu
róðrum og af því þá er ufsi 8,8 tonn.
Aðrir netabátar eru Hraunsvík GK
með 14,5 tonn í átta róðrum, Halldór
Afi GK 12,1 tonn í ellefu róðrum.
Við byrjuðum pistilinn á makríl og
endum á makríl, reyndar ekki tengt
handfærabátunum heldur frysti-
togarana. Hrafn Sveinbjarnarson
GK hefur landað 552 tonn í tveimur
löndunum og Gnúpur GK kom með
397 tonn eftir tvo róðra og báðir
í Grindavík. Það má geta þess að
þessir tveir eru einu íslensku frysti-
togarnir sem stunda makrílveiðar.
AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
AFLA
FRÉTTIR
VIÐTAL Sólborg Guðbrandsdóttirvf@vf.is
Bryndís með fulltrúum
frá öllum leikskólum
Reykjanesbæjar
ásamt fræðsluráði.
Tónleikar í Andrews leikhúsinu
REYK JANESBÆ – LJÓSANÓT T
MANNAKORN
5. september kl. 21.00
Miðasala: tix.is/mannakorn - Gallerí Keflavík og í síma 862 0700
11MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. ágúst 2019 // 31. tbl. // 40. árg.MANNLÍF Á SUÐURNESJUM