Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.08.2019, Side 16

Víkurfréttir - 22.08.2019, Side 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir MUNDI S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M Einn ég sit og sauma ... Laus herbergi til útleigu Laus herbergi til útleigu með sameiginlegu eldhúsi og salerni. Rafmagn og hiti innifalið. Sameiginleg þvottaaðstaða. Verð á mánuði kr. 66.500. ÁSBRÚ ÍBÚÐIR EHF. - leiga@235.is - s. 415 0235 www.asbrufasteignir.is BÆJARSTJÓRI SAUMAÐI FYRSTA TAUPOKANN FYRIR PLASTLAUSA LJÓSANÓTT Septembermánuður er plastlaus! Undirbúningur Ljósanætur stendur nú sem hæst. Eins og fram hefur komið er stefnt að plastlausri Ljósanótt. Fyrirtækja- og verslunareigendur í Reykjanesbæ hafa brugðist vel við viðleitni bæjaryfirvalda og samtökin Betri bær hófu, ásamt bæjarstjóra og Bókasafni Reykjanesbæjar, átak sem miðar að plastlausri Ljósanótt. Markmiðið er að sauma 1000 taupoka á Bókasafni Reykja- nesbæjar fyrir Ljósanótt, sem m.a. verði nýttir í verslunum á Hafnargötu. Pokastöð Bókasafnsins Bókasafn Reykjanesbæjar hefur undanfarið ár starfrækt Pokastöð með taupokum sem fólk getur fengið að láni og skilað eftir notkun. Í verkefni safnsins „Saumað fyrir umhverfið“ er markmiðið að fjölga taupokum í stöðinni. Nú þegar stefnt er að pokalausri Ljósanótt þurfa margar hendur að hjálpast að við að fylla Pokastöðina í safninu og koma taupokum til verslanna í bænum. Dagana 23.–31. ágúst eru íbúar hvattir til að koma á Bóka- safnið á opnunartíma og taka þátt í verkefninu. Ekki er krafist að fólk kunni að sauma því hægt er að leggja því lið með því að klippa niður efni og merki Pokastöðvarinnar. Bæjarbúar hvattir til að hjálpa til Guðný Kristín Bjarnadóttir, starfsmaður Bókasafns Reykjanesbæjar og liðsmaður í stýrihópi Plast- lauss september, segir drauminn vera að sauma 1000 taupoka áður en Ljósanótt hefst. „Ég hvet bæjarbúa til að koma til okkar á opnunartíma safnsins og leggja verkefninu lið. Það er hægt að gera með margvíslegum hætti, klippa niður efni fyrir pokana, klippa niður merki Pokastöðvarinnar sem saumað er á alla poka, koma með taupoka sem það á heima og leggja í púkkið, hjálpa okkur að sauma eða bara sauma sinn eigin poka merktan Pokastöðinni og tekið með heim. Við verðum með efni og saumavélar á staðnum.“ Guðný aðstoðaði Kjartan Má Kjartansson bæjar- stjóra við að sauma fyrsta pokann í átakinu en á dag- inn kom að Kjartan Már var nokkuð lunkinn við sauma- skapinn. „Þannig var að mamma saumaði mikið og ég var oft að fylgjast með þó ég hafi ekki sest við saumavélina. Ég kann því ýmislegt fyrir mér,“ sagði Kjartan Már, sem hóf þegar að greina efnið í pokanum þegar verkið hófst. Ljósanótt verði Plastlaus Umhverfismál eru í brennidepli og hjá Reykjanesbæ eru þau sífellt í umræðunni. Á síðastliðnum árum hefur Reykjanesbær tekið þátt í árvekniátakinu Plastlausum september. Þar er fólk vakið til um- hugsunar um ofgnótt plasts og skaðsemi þess í umhverfinu og bent á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. Ljósanótt er í september og því er stefnt að „Plastlausri Ljósanótt“ um alla framtíð. Undirbúningsnefnd hátíðarinnar hefur verið í sambandi við flesta stóru hagsmunaðilana sem allir hafa lýst vilja til að virða þessa stefnu og nú verður spennandi að sjá hvernig til tekst. Hér með er þessari ósk um „Plastlausa Ljósanótt“ komið á framfæri og öllum þeim sem hyggjast koma að viðburðum, sölu eða öðru á Ljósanótt, bent á að taka þarf tillit til „Plastlausrar Ljósanætur“. Þau atriði sem gripið verður til á Ljósanótt eru m.a.: • Pokastöð sem sér fólki fyrir margnotapokum. • Flokkunartunnur á hátíðarsvæðinu. • Skólamatur býður kjötsúpu í pappírsskálum. • Átakið Plastlaus september verður með kynn- ingu á ýmsum valkostum sem við höfum til að draga úr plastnotkun, t.d. með því að nota tannbursta úr bambus í stað plasts. LOKAORÐ Margeirs Vilhjálmssonar Mínus 20 Einn best heppnaði viðburður Ljós- anætur er árgangagangan. Ég eyddi unglingsárunum, eins og margir af minni kynslóð, í að mæla Hafnar- götuna en hús númer 72 fékk enga sérstaka athygli hjá mér fyrr en gangan hafði fest sig í sessi. Þá varð það uppáhalds. Eftir 20 ára sigurgöngu árganga- göngunnar hefur ákvörðun verið tekin um að færa alla árganga fram um 20 húsnúmer. Þannig á minn frábæri árgangur nú að hittast fyrir framan hús númer 52. Eftir önnur 20 verð ég væntanlega kominn að 32, en þar héngum við gjarnan á unglingsárunum. Allt er þetta nú örugglega gert með góðum vilja. Stytta gönguna fyrir þá eldri og koma að árgöngunum sem eiga ekki húsnúmer við Hafnargötuna. Á þessu er samt sá ljóður að þetta tekur í burtu hinn augljósa einfaldleika. Ég var farinn að hugsa til þess að það yrði gaman að hitta krakka fædda 2072 og láta þau ýta mér í hjólastól niður Hafnargötuna. Það er gott að staldra öðru hvoru við og reyna hugsa lengra fram í tímann en 10-20 ár. Þannig losnum við kannski við að eignast fleiri minnisvarða eins og verin í Helguvík.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.