Fréttablaðið - 12.10.2019, Qupperneq 36
Hreindýrakjöt er sannkall-aður veislumatur og f lestir geta öfundast út í veiði-
menn sem fylla frystinn hjá sér á
haustin. Ragnar Freyr setur hér
upp mjög girnilega uppskrift og
við fengum hana að láni.
Hreindýralund innbökuð
í smjördeigi með Duxelle
sveppum
Fyrst er að huga að sveppunum.
„Samkvæmt því sem fram kemur
í Matarást er þessi aðferð fengin
frá matsveini d'Uxelle lávarðs,
La Varenne, en þar segir að best
sé að nota gamla sveppi þar sem
þeir hafa mikið bragð,“ upplýsir
Ragnar Freyr á bloggi sínu.
„Maður breytir uppskriftum
alltaf eitthvað þannig að núna
heitir þetta Ragnar'elle sveppir
– maybe. Í dag notaði ég þrjár
tegundir af sveppum, franska
sveitasveppi, kastaníusveppi og
svo venjulega sveppi frá Flúða-
sveppum. Fyrst voru 40 g af
þurrkuðum sveppum leyst upp í
volgu vatni og svo sjóðandi vatni.
Vatninu hellt frá og geymt í
sósuna. Fersku sveppirnir skornir
smátt. Smjör og olía hitað á pönnu.
Þegar olían er að verða heit er 5-6
smátt skornum hvítlauksrifjum
og 2 litlum fínskornum laukum
dembt á pönnuna og látið svitna
aðeins. Því næst var sveppunum
skellt yfir og þeir látnir steikjast.
Þá var ferskum kryddjurtum bætt
á pönnuna, niðurskorinni salvíu,
steinselju, basilíku og timían.
Lyktin gýs að vitum manns. Þetta
er steikt aðeins saman og svo er
glasi af vatni hellt á pönnuna og
jafnmiklu af hvítvíni. Þetta var
soðið niður.
Þá að hreindýrinu. Lundin
var þvegin og þurrkuð. Söltuð
með Maldonsalti og pipruð
með nýmuldum svörtum pipar
og einnig piparblöndu. Smjör
var brætt á pönnu og svo var
lundin svissuð að utan – fáeinar
sekúndur á hverri hlið. Tekið af
pönnunni og látið hvíla,“ útskýrir
Ragnar.
Hreindýrakjöt er
villibráð sem er
einstaklega ljúft og gott.
Það hentar vel í villi-
bráðaveislu ekki síður
en á jólaborðið eða bara
þegar maður gerir sér
glaðan dag.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem heilsubótarfæði og notuð til bóta við hinum ýmsu meinum.
Kínverjar kalla sæbjúgu gjarnan
„ginseng hafsins“ og til eru sagnir
um notkun sæbjúgna þar fyrir
meira en þúsund árum.
Arctic Star sæbjúgnahylkin
innihalda yfir fimmtíu tegundir
af næringarefnum sem geta haft
jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega
starfsemi mannslíkamans, til
dæmis er mikið kollagen í þeim en
það er eitt helsta uppbyggingar-
prótein líkamans.
Finnur mikinn mun á sér
Á síðustu árum hefur Arctic
Star sérhæft sig í þróun á fæðu-
bótarefnum, svo sem framleiðslu,
markaðssetningu og sölu á
hágæða sæbjúgnahylkjum. Hylkin
eru framleidd úr íslenskum,
hágæða, villtum sæbjúgum sem
eru veidd í Atlantshafinu.
Magnús Friðbergs-
son, verkefnastjóri hjá
Landspítala, hefur tekið
sæbjúgnahylkin frá Arc-
tic Star undanfarin tvö
ár. „Vinur minn kynnti
mig fyrir sæbjúgna-
hylkjunum og þar
sem ég hafði lengi
verið slæmur í hnjám,
með liðverki og lítið
getað beitt mér, ákvað
ég að prófa. Tveimur
til þremur vikum
seinna fann ég mikinn
mun. Nú hef ég tekið
sæbjúgnahylkin í tvö
ár og fer allra minna
ferða án óþæginda.
Það er algjör bylting
frá því sem áður var. Nú get ég
gert hluti eins og að fara í langar
gönguferðir, sem ég gat varla gert
áður. Að minnsta kosti gerði ég
það ekki með bros á vör og það tók
mig langan tíma að jafna mig eftir
álag,“ útskýrir hann.
Magnús, sem er 69 ára gamall
í dag, hafði fengið að heyra frá
lækni að mikið slit væri í hnjám
hans og ekki væri von á að það
gengi til baka. „Hann sagði mér að
kíkja á fæðingardaginn minn og
að ég gæti ekki búist við að fara
aftur í tíma. Mér fannst vont að
heyra þetta og var því
tilbúinn að prófa ýmis-
legt sem gæti mögulega
lagað þetta. Sæbjúgna-
hylkin frá Arctic Star
virka mjög vel á mig
og ég mæli með að
fólk prófi þau.“
Framleiðandi
sæbjúgna er Arctic
Star ehf. Allar nánari
upplýsingar fást á
arcticstar.is. Arctic
Star sæbjúgnahylki
fást í flestum apó
tekum og heilsu
búðum og í Hag
kaupum.
Sæbjúgnahylkin eru bylting
Magnús Frið-
bergsson mælir
með Arctic star
sæbjúgnahylkj-
unum.
Magnús Frið
bergsson mælir
með sæbjúgna
hylkjum frá Arct
ic Star en hann
finnur mun á sér
eftir að hann
fór að nota þau.
Sæbjúgu inni
halda fimmtíu
tegundir af nær
ingarefnum.
Innbökuð hreindýralund er sannkallaður veislumatur. Ragnar Freyr gefur skemmtilega hugmynd að eldun.
Ragnar Freyr Ingvarsson, læknirinn
í eldhúsinu, matreiðir dásamlega
flotta rétti. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hreindýr að hætti læknisins
RagnFreyr
Ingvarsson
eða læknirinn
í eldhúsinu,
býr yfir fjölda
girnilegra
uppskrifta á
heimasíðu sinni.
Hér er til dæmis
frábær uppskrift
að hreindýralund
sem veiðimenn
ættu að fagna.
„Í framhaldinu eru þrjár
plötur af smjördeigi f lattar út.
Ragnar'elle sveppirnir eru lagðir
á og lundin ofan á sveppina. Svo
er niðurskorinn gullostur lagður
á kjötið og meira af sveppunum.
Deigið er vafið yfir og innsiglað,
penslað og látið í 160 gráðu heitan
ofn með kjöthitamæli – tilbúið
þegar kjarnhiti er á bilinu 72-76
gráður.
Löngu áður er niðurskorinn
hvítlaukur, laukur, sellerí og
gulrætur steiktar í potti. Þegar
grænmetið er farið að mýkjast
er vatninu af sveppunum hellt í
pottinn (um 1 lítri) og suðan fær
að koma upp. Saltað og piprað.
Villibráðarkraftur af hvaða tagi
sem er settur ofan í og svo meira
vatn. Suðan fær að koma upp og
svo soðið niður á nýjan leik. Næst
er grænmetið skilið frá og soðið
sett aftur í pott og látið malla.
Niðursneiddir sveppir líkt og voru
notað í fyllinguna eru settir í pott-
inn og látnir mýkjast í suðunni.
Smakkað til. Bætt á krafti, saltað
og piprað ef þarf. Hálfum pela af
rjóma bætt út í og sósan soðin
áfram og þykkt eftir þörf. Mjög
gott er að mauka grænmetið með
töfrasprota og bragðbæta sósuna
með þessu, það bæði bragðbætir
og þykkir hana, ég endaði með því
að nota um helminginn af græn-
metinu aftur ofan í sósuna.
Þessi matur var borinn fram
með sykurhúðuðum kartöf lum,
grænbaunapuré og Waldorf salati
og var hreinasta sælgæti.“
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
2
-0
5
F
0
2
4
0
2
-0
4
B
4
2
4
0
2
-0
3
7
8
2
4
0
2
-0
2
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K