Fréttablaðið - 12.10.2019, Qupperneq 67
Þá er ekki annað
eftir en að halda
ilmandi matnum heitum
þar til kirkjuklukkurnar
hringja inn jólin.
Landsliðskokk-
arnir Fannar
Vernharðsson,
Bjarni Siguróli
Jakobsson
og Jóhannes
Steinn Jó-
hannesson eru
eigendur Nomy.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Við komum allir færandi hendi með jólahefðir frá æskujólum okkar á jóla-
borðið, sérrífrómasinn hennar
mömmu, síldarsalat frá fjölskyldu
Fannars og Bjarni bakar blúndur
frá ömmu sinni. Enda eru jólin
tími hefða í matseld en þær eru
misjafnar á hverju heimili sem
gerir þær persónulegar og spenn-
andi fyrir aðra að njóta, segir mat-
reiðslumeistarinn Jóhannes Steinn
Jóhannesson, sem rekur veislueld-
húsið Nomy ásamt meistarakokk-
unum Bjarna Siguróla Jakobssyni
og Fannari Vernharðssyni.
Því er engum í kot vísað
þegar kemur að matseldinni hjá
meistarakokkunum þremur sem
allir hafa verið í kokkalandsliði
Íslands undanfarinn áratug en auk
þess var Bjarni valinn kokkur árs-
ins 2012 og Jóhannes árin 2008 og
2009. Þeir hafa líka unnið saman
og trekkt að pottunum hjá Vox,
Geira smart, Sjávarkjallaranum og
Slippbarnum á Hótel Marina.
„Góður matur er okkar aðals-
merki og bragðlaukunum tryggð
ógleymanleg upplifun,“ segir
Jóhannes, sem eins og þeir allir
elskar að elda gómsætan mat sem
gleður augu, munn og maga.
Veislumat heim á jólunum
Nomy er tvíþætt veislueldhús.
Minni hópar geta pantað sér
veislumat á vefverslunni nomy.is
og svo er það veisluþjónusta fyrir
stærri hópa.
„Fyrir jólin bjóðum við í fyrsta
sinn nýjung fyrir þá sem vilja
fá jólamatinn tilbúinn heim á
aðfangadagskvöld eða gamlárs-
kvöld. Hægt verður að velja um
dýrindis forrétti, aðalrétti og
eftirrétti í vefversluninni og hægt
að sækja matinn fram til klukkan
16 báða hátíðardagana. Þá er ekki
annað eftir í eldhúsinu heima en
að halda matnum heitum þar til
kirkjuklukkurnar hringja inn jólin
og fá ilm af indælli steik í húsið,“
upplýsir Jóhannes og pantanir eru
þegar farnar að streyma inn.
„Við höfum fundið fyrir þörf
fyrir þessa þjónustu og í vef-
verslun Nomy er einnig hægt að
panta pinnamat, steikarpakka og
fleira girnilegt sem nýtur mikilla
vinsælda fyrir skemmtilega sam-
fundi þegar fólk er að fara saman
í leikhús, á tónleika eða annað og
vill hrista sig saman í hugguleg-
heitum áður,“ segir Jóhannes sem
með þeim Bjarna og Fannari gerir
æ meira af því að elda sælkeramat
fyrir matarboð í heimahúsum við
hátíðleg tilefni og um helgar.
Pop-up villibráðarveisla
Í aðdraganda jóla verður margt
freistandi á boðstólum hjá Nomy.
„Við byrjum á villibráðarpop-
up veitingastað í Norræna húsinu
dagana 24. til 26. október. Þar
verður stjarna kvöldsins hreindýr-
asteik með saltbakaðri seljurót,
gljáðum rauðrófum, svörtum hvít-
lauk og sólberjum í aðalrétt, sem
Koma með matarhefðir að heiman
Jólin eru gómsætt ævintýri hjá landsliðskokkunum í Nomy. Þar er hægt að panta jólamatinn heim
á aðfangadagskvöld og einnig ómótstæðilegar veislur og jólahlaðborð fyrir litla og stóra hópa.
Gómsætur matur er í hávegum hafður á veisluborðinu hjá Nomy.
Jólamatseðill Nomy
Í nóvember og desember mun
kokkasveit Nomy halda jólapop-
up í Norræna húsinu.
Þar verður boðið upp á spenn-
andi jólamatseðil þar sem
fjölbreyttir klassískir jólaréttir,
í bland við nútíma áherslur í há-
gæða matargerð, koma á borð
gesta til að deila.
Eftirtaldar dagsetningar eru í
boði:
29. – 30. nóvember
Jólamatseðill – Set Menu
6. – 7. desember
Jólamatseðill – Set Menu
Athugið að takmarkaður sæta-
fjöldi er á þessum dagsetningum
og því er betra að bóka fyrr en
síðar.
Við bjóðum einnig upp á fleiri
dagsetningar fyrir 30-50 manna
hópa.
Þetta er tilvalið fyrir þá sem
vilja vera út af fyrir sig og eiga
notalega kvöldstund í því
yndislega umhverfi sem Norræna
húsið býður upp á.
Norrænn jólamatseðill að
hætti meistarakokka Nomy
Lystaukar
n Tvíreykt hangikjöt á flatbrauði
n Einiberjagrafin gæs á laufabrauði
n Síld með piparrót og eplum
Forréttir
n Grafinn lax með hunangs-
sinnepi, dilli, selleríi og íslensku
wasabi
n Hreindýrapaté með kónga-
sveppum og íslenskum hrúta-
berjum
n Stökksteikt rauðspretta með
remúlaði
Aðalréttir
n Grilluð andabringa með rauð-
rófu- og kirsuberjakremi ásamt
rauðkáli, shitake-sveppum og
rósakáli
n Til hliðar – Hægelduð andalæri,
sykurbrúnaðar kartöflur og
andasósa
Eftirréttur
n Jólasúkkulaðikúla með
Tanariva-súkkulaðimús, hind-
berjum, vanilluís og súkkulaði-
sósu
Verð 8.900 kr.
Verð með vínpörun 14.900 kr.
Vinsamlega hafið samband og
takið frá dagsetningu með því að
senda okkur línu á nomy@nomy.
is eða hringja í síma 777-1017.
og innbakað hreindýr með villtum
sveppum en eftirréttir koma á
diski fyrir hvern og einn. Þá verða
forréttir bornir á borð í smárétt-
aformi fyrir gesti að deila. Þar má
nefna villisúpu með freyðandi
jarðsveppum „cortado“, grafinn
gæsatartar með hrútaberjum og
greni, hörpuskel með reyktum
eggjum, villtum kapers og stökkri
svartrót og grillaðan lunda í
umslagi með lauksultu, andalifur
og döðlum,“ segir Jóhannes um
villibráðarveislu Nomy.
Sætaframboð er takmarkað en
hópar geta fengið sal út af fyrir sig
og fleiri dagsetningar eru í boði
fyrir áhugasama hópa og mat-
gæðinga.
„Við verðum líka með nokkur
jólahlaðborð hjá Golfkúbbnum
Keili þar sem örfá sæti eru enn
laus. Svo taka við jólakvöld í Nor-
ræna húsinu þar sem við verðum
með pop-up veitingastað fram
að jólum, byrjum á villibráð í lok
október og svo taka við Jóla-
hádegi og Jólakvöld í nóvember og
desember,“ upplýsir Jóhannes.
Auk þess býður Nomy upp á
glæsileg jólahlaðborð fyrir stærri
hópa.
„Jólamaturinn okkar á Nomy er
með hefðbundnu sniði í bland við
nýjar og spennandi útfærslur. Það
má enda ekki rugla mikið í jóla-
réttum Íslendinga en við leikum
okkur með hráefnið og setjum á
það okkar tvist þegar kemur að
bragði og óvæntum útfærslum til
að gera þetta enn skemmtilegra,“
segir Jóhannes.
Matarboð sem slá í gegn
Landsliðskokkarnir hjá Nomy eru
rómaðir fyrir ekta gómsætan jóla-
mat en líka spennandi nýjungar sem
gæla við bragðlaukana fyrir jólin.
„Við gerum alltaf nýja útfærslu
af rauðkáli á hverju ári og fyrir
jólin nú ætlum við að vera með
kryddaða kalkúnaleggi á beini
sem og Söru Bernhard-tertu sem
hvergi hefur sést áður. Svo mat-
búum við síldina með hefðbundnu
jólasniði en ögrum gestum okkar
líka með nýrri síldarnálgun sem
svíkur engan,“ segir Jóhannes og
vitaskuld fær jólafrómas móður
hans að fljóta með á eftirrétta-
hlaðborðinu.
„Í sælkeraverslun okkar á nomy.
is verða líka í boði jólapinnar fyrir
kokkteilboðin og allir sem panta
mat úr versluninni geta sótt hann
eða fengið sendan í vistvænum
umbúðum og bökkum sem eru
huggulegir á borði. Í stærri veisl-
um komum við sjálfir á staðinn,
stillum upp matnum og fylgjum
honum eftir,“ segir Jóhannes sem
á Nomy er alltaf tilbúinn að snara
fram ómótstæðilegum veislu-
föngum með skömmum fyrirvara.
„Við elskum að matreiða
góðan mat og jólin eru í sérstöku
uppáhaldi enda gleðileg sælke-
ratíð með kósíheitum sem fylgja
aðventu og jólum.
Hjá okkur er aldrei lokað og
ef fólki dettur í hug að halda
matarboð með litlum fyrirvara
og slá í gegn með góðum mat er
stundin tryggð með gæðaréttum
frá okkur.“
Nánar á nomy.is
KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 1 2 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 JÓLAHLAÐBORÐ
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
2
-1
9
B
0
2
4
0
2
-1
8
7
4
2
4
0
2
-1
7
3
8
2
4
0
2
-1
5
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K