Fréttablaðið - 15.10.2019, Side 6
n Vinstribandalagið 27,45%
n Bandalag um frelsi
og sjálfstæði 25,68%
n Borgaralega stefnan 25,15%
n Lög og réttlæti 17,17%
n Pólska bandalagið 4,56%
Kosningaþátttaka 2.656
✿ Þingkosningar í Póllandi
Atkvæði greidd á Íslandi
SÝRLAND Hersveitir Sýrlands halda
nú norður á bóginn að landamær-
unum til þess að stöðva framgang
Tyrkja og sýrlenskra málaliða. Á
sunnudag höfðu Rússar milligöngu
um samning á milli Kúrda í Rojava
og Bashar al-Assad Sýrlandsforseta
um aðstoð í borgunum Manbij og
Kobani, í vesturhluta Rojava.
Racip Erdogan Tyrklandsforseti
sagði að það gæti komið til átaka við
Sýrlandsher ef hann reyndi að koma
í veg fyrir innrásina og að málalið-
arnir væru þegar byrjaðir að undir-
búa að ná Manbij á sitt vald.
Samkomulag Kúrda og al-Assad
nær aðeins til vesturhluta landa-
mæranna og sambandið er mjög
stirt. Óstaðfestar fregnir herma að
Sýrlandsher og Kúrdum hafi lent
saman nálægt Qamishli, í austur-
hlutanum. Væri því sú skrýtna
staða komin upp að Sýrlendingar
og Kúrdar berðust saman í vestrinu
en hverjir gegn öðrum í austrinu.
Aðeins 300 kílómetrar skilja þessi
átakasvæði að.
Mannfall í stríðinu hefur vaxið
dag frá degi og hafa nú nokkur
hundruð farist, að mestu leyti Kúrd-
ar. Tugir Sýrlendinga hafa fallið en
aðeins örfáir Tyrkir. Þá eykst flótta-
mannastraumurinn hratt og sam-
kvæmt Sameinuðu þjóðunum hafa
130 þúsund manns flúið heimili sín.
Í upphaf i innrásarinnar var
meginþunginn á borgirnar Ras al-
Ain og Tal Abyad á miðjum landa-
mærunum. Erdogan tilkynnti á
sunnudag að Tyrklandsher hefði
náð þeirri fyrrnefndu á sitt vald og
að sýrlenskir málaliðar hefðu tekið
þá síðarnefndu.
Kúrdar eru þegar byrjaðir að
sleppa fólki lausu úr ISIS-fanga-
búðum eins og þeir hafa hótað
og Vesturlönd hafa óttast. Í Ain
Issa hefur um þúsund fjölskyldu-
meðlimum ISIS-liða verið sleppt
úr haldi og búist er við að f leirum
verði sleppt á næstunni. „Hverjum
er ekki sama um að vakta fanga?
Aðrir mega koma og finna lausn á
þessu,“ sagði Redur Xelil, hjá SDF,
landstjórn Kúrda í Rojava. Ítrekaði
hann að Kúrdar hefðu varað við
því að þetta gæti gerst ef Banda-
ríkjamenn yfirgæfu svæðið. ISIS
hafa þegar lýst yfir ábyrgð á bíla-
sprengjum á svæðinu og segja nýja
uppreisn samtakanna hafna.
Um helgina samþykkti Salman,
konungur Sádi-Arabíu, að auka
við bandarískt herlið í landinu um
3.000 manns en ástæða þess eru
árásir frá Jemen á Saudi Aramco
olíuvinnslustöðvarnar. Þetta vekur
athygli þar sem Donald Trump
hefur heitið því að fækka banda-
rískum hermönnum í Miðaustur-
löndum og brotthvarfið frá Rojava
var liður í því.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Átökin í norðurhluta
Sýrlands að flækjast
Sýrlandsher berst með Kúrdum á einum stað en gegn þeim á öðrum. Tyrkir
og málaliðar þeirra segjast hafa náð tveimur borgum. Á meðan sleppa Kúrdar
fjölskyldum ISIS og Bandaríkjamenn færa herafla frá Sýrlandi til Sádi-Arabíu.
Liðsmenn Frelsum Sýrland, sem njóta stuðnings Tyrkja, stefna á borgina Tal Abyad í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
PÓLLAND Niðurstöður pólsku þing-
kosninganna á Íslandi voru töluvert
frábrugðnar heildarniðurstöðunni.
Vinstrimenn og öfgahægrimenn
fengu góða kosningu en stjórnar-
flokkurinn Lög og réttlæti var Pól-
verjum á Íslandi síður að skapi.
Lög og réttlæti varð í fjórða sæti,
með rúm 17 prósent í kosningunni
sem fór fram í pólska sendiráðinu
við Þórunnartún í Reykjavík.
Flokkurinn, sem er mjög íhalds-
samur hægriflokkur og hefur verið
við völd síðan 2015, bætti við sig
tæpum 7 prósentum og hlaut um 44
prósent í þingkosningunum.
Vinstribandalagið, sem þurrkað-
ist út af þingi árið 2015, vann einn-
ig sigur og fékk meira en 12 prósent
sem rímar vel við almenna kosn-
ingahegðun í Evrópu á undanförnu
ári. Hér á Íslandi var Vinstribanda-
lagið stærst allra flokka með meira
en 27 prósent. Það sem kemur þó
mest á óvart er velgengni Banda-
lags um frelsi og sjálfstæði, sem er
Vinstrið og öfgahægrið stærst á Íslandi
bandalag smærri öfgahægriflokka
sem sumir eiga rætur í nýnasisma.
Flokkurinn fékk aðeins tæp 7 pró-
sent í þingkosningunum en hér á
Íslandi var hann næststærstur, með
rúmlega fjórðung atkvæða.
Á Íslandi var Vinstri-
bandalagið stærst allra
flokka í pólsku þingkosn-
ingunum með yfir 27
prósenta fylgi.
Hverjum er ekki
sama um að vakta
fanga? Aðrir mega koma og
finna lausn á þessu.
Redur Xelil, hjá landstjórn Kúrda
í Rojava
Borgaralega stefnan, hinn frjáls-
lyndi miðjuf lokkur sem á undan-
förnum árum hefur veitt Lögum og
réttlæti mótspyrnu, tapaði fjórum
prósentum í kosningunum og fylgið
var mjög svipað hér á Íslandi. Pólska
bandalagið, sem er íhaldssamur
miðjuflokkur með sterk tengsl við
bændastétt, fékk tæp 9 prósent í
kosningunum og tæp 5 prósent hér.
– khg
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–16
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Grípandi saga um heillandi
og svolítið hræðilega ráðgátu,
hugrökk og huglaus börn.
„... frábær bók fyrir alla
krakka, spennandi, auðlesin
og skemmtilega skrifuð.“
YRSA SIGURÐARDÓTTIR, RITHÖFUNDUR
Til hamingju
Snæbjörn!
1 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
6
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
4
-2
3
D
4
2
4
0
4
-2
2
9
8
2
4
0
4
-2
1
5
C
2
4
0
4
-2
0
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
3
2
s
_
1
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K