Fréttablaðið - 15.10.2019, Page 10
1 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Vonir Íslands um að kom-
ast í lokakeppni EM snarminnkuðu
í gær þrátt fyrir 2-0 sigur á Andorra
í síðasta heimaleik Íslands í H-riðli.
Á sama tíma náðu Tyrkir í stig gegn
Frakklandi á útivelli sem þýðir að
Ísland er fjórum stigum á eftir Tyrk-
landi og Frakklandi þegar tvær
umferðir eru eftir. Veik von Íslands
felst í því að vinna Tyrkina á útivelli
í næsta leik og Moldóva þremur
dögum síðar en á sama tíma treysta
á að dvergríkið Andorra næli í stig
gegn Tyrklandi. Annars þarf Ísland
að fara í umspil.
„Við þurftum þrjú stig úr þessum
leik og við fengum þau sem er
ánægjulegt þótt að það sé þungt
andrúmsloft inn í hópnum. Eftir
úrslitin í Frakklandi var ekki sama
gleði og vanalega eftir sigurleiki.
Þetta er ekki búið ennþá en við
vitum að þetta verður mjög erfitt úr
þessu. Við verðum að sjá hvað gerist
úr þessu,“ sagði Erik Hamrén, þjálf-
ari íslenska landsliðsins, svekktur á
blaðamannafundi eftir leikinn.
Ljóst var að þetta yrði allt annar
leikur en síðasti leikur Íslands, í
gær yrði Ísland í hlutverki þess að
brjóta niður skipulagðan varnar-
múr Andorramanna sem komu með
það markmið að verja mark sitt með
kjafti og klóm. Fyrir vikið blés Erik
Hamrén til sóknar og setti Alfreð
Finnbogason og Arnór Sigurðsson
inn í liðið ásamt því að Jón Guðni
Fjóluson tók stað Kára Árnasonar
í miðri vörn Íslands.
Ljóst var frá fyrstu mínútu að
Andorra var tilbúið að gera hvað
sem er til að tefja leikinn og fara í
taugarnar á íslenska liðinu. Leik-
menn Andorra virtust sárþjáðir
við hverja snertingu og voru iðulega
snöggir að brjóta þegar Ísland var
að komast í álitlegar stöður. Tamas
Bognár, arfaslakur ungverskur
dómari leiksins, virtist vera á sama
máli því hann gaf lítið fyrir ábend-
ingar Íslendinga og kom í veg fyrir
að Strákarnir okkar næðu að keyra
upp hraðann.
Lengst af í fyrri hálfleik var Ísland
með boltann en náði ekki að finna
glufur á vörn Andorra og vantaði
oftast til úrslitasendinguna þegar
komið var að vítateig andstæðing-
anna. Fyrsta markið var því kær-
komið stuttu fyrir lok fyrri hálfleiks
þegar Kolbeinn Sigþórsson lagði
fyrirgjöf Guðlaugs Victors Pálsson-
ar fyrir Arnór Sigurðsson og Skaga-
maðurinn skoraði fyrsta mark sitt
fyrir Ísland með hnitmiðuðu skoti.
Þrátt fyrir að vera marki undir
var ekki að sjá neina þörf hjá
Andorra að færa sig framar á völlinn
og var Ísland í vandræðum með að
skapa marktækifæri fyrstu mínútur
seinni hálfleiks þar til Kolbeinn Sig-
þórsson tók málin í eigin hendur.
Kolbeinn fékk þá sendingu inn
fyrir vörnina, steig út varnarmann
og lagði boltann í netið og jafnaði
um leið markamet Eiðs Smára Guð-
johnsen með karlalandsliðinu.
Gylfi Þór Sigurðsson fékk tæki-
færi til að innsigla sigur Íslands
korteri fyrir leikslok þegar dæmd
var vítaspyrna á Andorra fyrir
hendi innan vítateigs en Josep Ant-
oni Gómes varði góða vítaspyrnu
Gylfa.
Gylfi komst aftur nálægt því að
bæta við marki á lokasekúndum
leiksins þegar aukaspyrna hans
small í stönginni en inn fór boltinn
og 2-0 sigur staðreynd.
Ísland fer því til Tyrklands í næsta
mánuði vitandi það að allt annað en
sigur gerir út um veika von liðsins
um að komast beint inn á þriðja stór-
mótið í röð og að örlög liðsins séu
líklegast umspilsleikir í mars næst-
komandi. Það verður því áhugavert
að fylgjast með leikjum úr öðrum
riðlum á næstu dögum þegar í ljós
kemur hver verður andstæðingur
Íslands. kristinnpall@frettabladid.is
Veik von lifir eftir sigur á Andorra
Ísland á enn möguleika á að komast beint inn í lokakeppni EM 2020 eftir 2-0 sigur á Andorra en vonin er veik. Ísland þarf að vinna
Tyrkland og Moldóvu í lokaumferðunum og treysta á að Andorra í lokaumferðinni til að komast beint inn á lokakeppni EM.
Kolbeinn Sigþórsson
jafnaði markamet Eiðs
Smára Guðjohnsen í gær í
54. leik sínum fyrir karla-
landsliðið.
Kolbeinn Sigþórsson fagnar með Jóni Daða Böðvarssyni í gærkvöld eftir að hafa innsiglað sigur Íslands og um leið jafnað markamet karlalandsliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Leikmenn Andorra voru duglegir að brjóta á Gylfa og komust upp með ýmis brot hjá slökum dómara leiksins.
1
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
6
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
4
-1
E
E
4
2
4
0
4
-1
D
A
8
2
4
0
4
-1
C
6
C
2
4
0
4
-1
B
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
3
2
s
_
1
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K