Fréttablaðið - 15.10.2019, Síða 14

Fréttablaðið - 15.10.2019, Síða 14
Það er besta tilfinning í heimi að líða vel á líkama og sál. Hamingjusamur líkami er aðalatriðið fyrir mér,“ segir Anna Marta, líkamsræktar- og matar- þjálfari. Anna Marta hefur unnið sem matarþjálfari í fjögur ár og hjálpað fólki að færa sig nær því að borða hreina fæðu. „Matarþjálfun er algjörlega á forsendum viðskiptavina og ég er bara stuðnings- og aðhaldsbolti. Við byrjum á að hittast, spjalla og fá tengsl okkar á milli, förum yfir þær venjur sem eru í gangi núna og hvort hægt sé að breyta þeim. Stigið er á vigtina og ummál og fituprósenta mæld ef viðkomandi vill það. Allt sem viðkemur nær- ingu er myndað, sent til mín og ég gef endurgjöf um það sem betur má fara, og eftir mánuð mælum við aftur og sjáum árangurinn,“ útskýrir Anna Marta sem talar líka mikið um hvernig okkur líður eftir matinn. „Margir borða spart yfir daginn en koma svo heim að kvöldi og borða þá hreinlega allt sem þá langar til og eru hreinlega bugaðir af hungri. Þá eru margir ekki að huga nóg að prótíni yfir daginn en of lítið prótín og of fáar hitaeining- ar yfir daginn láta mann oft detta í sykurlöngun á kvöldin. Ég hvet því fólk til að borða meira hreina fæðu, passa upp á prótín, vatnsdrykkju og svefn og er með almenna hvatningu og hugmyndir að mat og millimáli,“ segir Anna Marta. „Það skiptir öllu að hafa tengingu við líkamlega og andlega vellíðan. Vera í núinu þegar maður velur mat og einnig þegar maður nærir sig. Flest allt sem við borðum byrjar í innkaupakerrunni. Hver vill ekki hafa hana þannig að maður fyllist stolti? Ef 80 prósent máltíða okkar eru holl og við ástundum heilsu- samlegt líferni getum við leyft okkur 20 prósent óhollustu, en það er líka hægt að vanda valið í óholl- ustu. Þannig þarf það að vera til að úthaldið haldi,“ segir Anna Marta. Kollagenið frá Feel Iceland langsamlega best! Anna Marta starfar nú sem líkams- ræktarþjálfari í World Class í Smáralind en áður var hún þjálfari í Hreyfingu í fimmtán ár. „Ég vakna á hverjum degi klukkan fimm og byrja að þjálfa klukkan sex á morgnana. Ég kenni þrjá til fimm hóptíma á hverjum virkum degi, æfi því oft og mikið og brenni miklu af hitaeiningum. Til að vinna það upp þarf ég að borða mjög margar hitaeiningar auk dag- legrar hitaeiningaþarfar manns- líkamans en oftar en ekki næ ég ekki að innbyrða allt það magn af mat og skortir nóg prótín til að viðhalda vöðvamassanum,“ segir Anna Marta sem borðar bæði kjöt og fisk en uppistaðan í fæði hennar er grænmeti og hreinn, óunninn matur. „Til að mæta aukinni prótínþörf hef ég prófað alls kyns prótínduft en ekkert af því fór vel í mig, ég var alltaf að drepast í maganum með útþaninn kvið og tilheyrandi vind- gang. Þá var mér bent á kollagenið frá Feel Iceland sem er hrein vara unnin úr íslensku hráefni og vá, það er langsamlega best! Munurinn á líðan, húð minni, hári og liðum er stórkostlegur og þvílíkur léttir að geta borðað prótínduft án þess að fá hægðatregðu, magaverki og vera síropandi og prumpandi,“ segir Anna Marta sem býr sér til daglega gómsætan rauðrófugraut með Feel Iceland-kollageni. „Ég hlakka til að koma heim og fá mér þennan ljúffenga graut eftir vinnu en rauðrófur gera líka mikið fyrir minn líkama, ég fæ mikla endurheimt af þeim og finn ekki moldarbragðið sem sumir kvarta undan.“ Upplifa mat á nýjan hátt Anna Marta hefur á undanförnum árum staðið fyrir hinu vinsæla námskeiði Ævintýraferð fyrir bragðlaukana. „Upphaflega var ég með það í heimahúsum en nú kemur fólk heim til mín og nýtur kvöldstundar yfir góðum mat og nytsamlegum lærdómi. Ég vil að fólk læri að upp- lifa matinn á nýjan hátt, áferð og bragð, og spyr hvað það haldi að það sé að borða. Ég kenni því líka að borða hollt og útbúa bragðgott, heilnæmt nesti. Við þurfum mörg að læra að borða rétt og hlusta á líkamann. Íslendingar eru svolítið ginnkeyptir fyrir tískustraumum í matarmenningu, eins og chia- grautnum sem tröllreið öllu á tímabili. Ég prófaði hann auðvitað eins og allir hinir en chia-fræin hentuðu mínum meltingarvegi alls ekki. Sumir láta sig samt hafa það að borða allt af því það er í tísku en það er ekki þar með sagt að maturinn henti þeim. Við þurfum því að fara í sjálfskoðun til að finna út hvaða fæða hentar okkur og sleppa því ef hún fer illa í okkur,“ segir Anna Marta. Hún segir skipta sköpum hvernig matur er fram borinn. „Þannig getur skurður á epli eða papriku breytt bragðskynjuninni og hvernig maður raðar matnum á borðið, ekki síst fyrir börn. Einn daginn sker ég því gúrkuna í bita og þann næsta í renninga og nota sparistellið til að upplifunin sé ný og spennandi. Þá er svo gaman að setjast að borði og njóta á nýjan og upplífgandi hátt,“ segir Anna Marta. „Ég hef lifað og hrærst í heilsu- geiranum svo lengi að ég hef mjög mörgu að miðla og nýt þess í botn.“ Flauelsmjúkir liðir og meltingin loks komin í lag Heilsubótin varð víðtæk fyrir Önnu Mörtu eftir að hún fór að taka inn Feel Iceland-kollagen. „Nú hef ég tekið inn kollagen í meira en mánuð og finnst undur hversu fljótt líðanin varð betri. Eftir aðeins tvær vikur var meltingin komin í lag og liðirnir urðu flauels- mjúkir,“ segir Anna Marta sem fann líka stóran mun á húð sinni og hári. „Mér hreinlega brá þegar ég leit í spegil og sá muninn á hárinu. Í vinnunni er ég vanalega með hárið í hnút en tók það niður og gerði fínt fyrir afmæli á dögunum og afmælisgestirnir spurðu mig forviða hvort ég væri komin með hárlengingar. Hárið vex svo hratt og nýja hárið sem vex er svo þykkt og fallegt,“ segir Anna Marta sem er líka himinsæl með hörundið sem hún segir allt annað með kolla- geninu frá Feel Iceland. „Ég hef þurrburstað húð mína í árafjöld, frá tám og upp að hjarta- stöðinni á hverjum degi. Það kemur sogæðakerfinu í gang og húðin er jú stærsta líffærið sem þarf að hugsa vel um. Ég er líka með vanvirkan skjaldkirtil og sökum þess á háum hormónaskammti en eitt af sterk- ustu einkennum vanvirkninnar hjá mér var skraufþurr húð. Ég þakka það Feel Iceland-kollageninu, og því að ég er sólgin í avókadó sem gefur húðinni góða fitu, að ég er nú betri í húðinni en nokkru sinni fyrr. Ég er líka með marga heita átakatíma í ræktinni sem útheimtir mikinn svita og húðþurrk en ég glími ekki við það lengur né kólnandi veðurfar sem nú bítur ekkert á mig,“ segir Anna Marta, hin ánægðasta með árangurinn. „Ég gjörþekki líkama minn að innan sem utan og finn að Feel Ice- land-kollagenið hefur breytt öllu. Ég gæti í raun hrópað yfir allt og alla: „Loksins! Loksins er ég búin að finna það eina rétta sem líkaminn minn er virkilega sáttur við!“ Fylgstu með Önnu Mörtu á Instagram: annamartaas og á Facebook: Anna Marta Asgeirs- dottir. Nánari upplýsingar um Feel Ice­ land­kollagen á feeliceland.com Anna Marta er himinsæl yfir heilsubótinni sem Feel Iceland-kollagenið hefur gefið henni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Feel Iceland-vörurnar hafa slegið í gegn enda árangurinn einstakur. 100 g bláber frosin 100 g hindber frosin ½ banani ½ hrá rauðrófa eða rauðrófusafi 100 g möndlumjólk 2 msk. Feel Iceland-kollagen Rauðrófugrautur Önnu Mörtu með Feel Iceland-kollageni Framhald af forsíðu ➛ Ég gæti í raun hrópað yfir allt og alla: Loksins! Loksins er ég búin að finna það eina rétta sem líkaminn minn er virkilega sáttur við. Allt maukað saman nema kollagenið. Hægt er að setja meiri möndlumjólk ef vill. Anna Marta setur stundum rauðrófusafa í stað rauðrófu og þá um 100 grömm Eftir að allt er maukað bætir hún við tveimur matskeiðum af Feel Iceland-kollageni og hrærir saman við. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :3 6 F B 0 3 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 4 -2 D B 4 2 4 0 4 -2 C 7 8 2 4 0 4 -2 B 3 C 2 4 0 4 -2 A 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 3 2 s _ 1 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.