Fréttablaðið - 15.10.2019, Side 16

Fréttablaðið - 15.10.2019, Side 16
Sigra fagnar! Þórunn Gísladóttir Roth sjúkraþjálfari BSc hefur hafið störf hjá Sigra í Læknavaktinni Austurveri, og sinnir allri sjúkraþjálfun. Tímabókanir í síma 556 1300. Stuttur biðlisti. thorunn.roth@sjukrathjalfari.is sjukrathjalfari.is Næringarráðgjafinn Jayne Leonard birti lista yfir 15 hollustu grænmetistegund- irnar á læknafrétta- síðunni Medical News Today. Þar tekur hún fram að það að borða grænmeti sé ein einfaldasta leiðin til að bæta heilsu og almenna vellíðan. Spínat Spínat er ríkt að vítamínum, stein- efnum og andoxunarefnum. Vegna þess hve það er kalk- og járnríkt hentar það mjög vel fyrir fólk sem borðar ekki kjöt eða mjólkur- vörur. Einn bolli af spínati inni- heldur dagskammt fullorðinnar manneskju af K-vítamíni og mikið magn A-vítamíns, C-vítamíns, magnesíums og fólínsýru. K-vítamín er sérlega gott til að við- halda sterkum beinum auk þess sem það hjálpar líkamanum að nýta kalk úr fæðunni. Járn gefur líkamanum orku og er gott fyrir blóðrásina. Rannsóknir hafa sýnt að spínat getur lækkað blóðþrýst- ing og bætt starfsemi hjartans. Grænkál Grænkál líkt og spínat er ríkt að A-, C- og K-vítamínum. Grænkál er talið gott fyrir fólk með hátt kólesteról. Rannsókn sem gerð var á karlmönnum með hátt kólesteról sýndi að eftir að þeir höfðu drukkið 150 millilítra af grænkálssafa daglega í tólf vikur lækkaði slæma kólesterólið, LDL um 10% en góða kólestersólið HDL hækkaði um 27%. Rannsóknir hafa líka sýnt að neysla grænkálssafa lækkar blóðþrýsting og blóðsykur. Brokkólí Brokkólí er af krossblómaætt, líkt og grænkál, blómkál og hvítkál. Neysla á grænmeti af kross- blómaætt er talin geta minnkað líkur á krabbameini. Grænmeti af krossblómaætt inniheldur efnið sulforaphane, en rannsóknir á dýrum hafa sýnt að efnið dregur úr stærð og fjölda brjóstakrabba- Hollasta grænmetið Grænmeti er hægt að matreiða á ýmsan hátt. Það er stútfullt af ýmsum vítamínum og steinefnum. NORDICPHOTOS/GETTY meinsfrumna og hindrar vöxt á krabbameinsæxlum. Einn bolli af brokkólíi inniheldur ráðlagðan dagskammt af K-vítamíni og tvö- faldan dagskammt af C-vítamíni. Grænar baunir Grænar baunir eru orkuríkar. Þær innihalda mikið af trefjum og prótínum. Auk þess eru þær ríkar að A-, C- og K-vítamínum og sumum tegundum B-víta- mína. Vegna hás trefjainnihalds eru grænar baunir góðar fyrir meltinguna. Þær eru prótínríkar og eru þess vegna góður kostur fyrir grænmetisætur og grænkera. Sætar kartöflur Sætar kartöflur eru taldar góðar fyrir fólk með sykursýki vegna þess að þær hafa lágan sykur- stuðul og eru trefjaríkar. Þær eru því taldar geta komið jafnvægi á blóðsykurinn. Meðalstór sæt kartaf la inni- heldur vel ríf lega ráðlagðan dag- skammt fullorðinna af A-víta- mínum. Einnig inniheldur hún fjórðung ráðlagðs dagskammts af C- og B6-vítamínum og 12% af ráðlögðum dagskammti af kalíumi. Rauðrófur Rauðrófur eru ríkar að kalíumi og fólinsýru. Rauðrófur og rauðrófu- safi eru mjög holl fyrir hjartað. Rannsóknir sýna að rauðrófu- safi getur lækkað blóðþrýsting verulega. Neysla á rauðrófum er mjög góð fyrir fólk með sykursýki. Rauðrófur inniheldur alfa lipóín sýru sem er talin geta haft jákvæð áhrif á taugavandamál tengd sykursýki. Gulrætur Gulrætur innihalda fjórfaldan dagskammt fullorðinna af A-víta- mínum. A-vítamín eru mjög góð fyrir sjónina. Til eru rannsóknir sem benda til að gulrótarsafi geti drepið, eða hindrað vöxt hvít- blæðisfrumna. Sýrt grænmeti Sýrt grænmeti inniheldur sömu næringarefni og ósýrt grænmeti en inniheldur auk þess þó nokkuð af góð- gerlum. Góðgerlar eru taldir stuðla að heilbrigðri þarma flóru. Það grænmeti sem gott er að sýra er til dæmis hvítkál, gúrkur, gulrætur og blómkál. Tómatar Tómatar innihalda mikið af kalíumi og C-vítamíni. Tómatar innihalda einnig lýkópen sem er öflugt andoxundarefni. Rann- sóknir hafa sýnt að lýkópen getur minnkað líkurnar á krabbameini í skjaldkirtli. Einnig hafa rann- sóknir sýnt að neysla á tómötum getur minnkað líkurnar á kölkun í augnbotnum. Hvítlaukur Hvítlaukur eru náttúrulegt sýkla- lyf. Nokkurra ára gömul rannsókn hefur sýnt að ákveðið efnasam- band í hvítlauk virkar betur gegn kampýlóbakter bakteríu en tvö vinsæl sýklalyf. Laukur Laukur er ríkur að C-vítamíni, B6-vítamíni og mangani. Laukur inniheldur súlfúr-sambönd sem talið er að geti veitt vörn gegn krabbameini. Rann- sóknir hafa einnig sýnt að karl- menn sem borða mikið af lauk, eða skyldu grænmeti eins og til dæmis hvítlauk, eru í minni hættu á að fá blöðruhálskirtilskrabbamein. Alfalfa spírur Í alfalfa spírum er mikið af jurta- efnum sem talin eru hafa góð áhrif á heilsuna. Auk þess eru alfalfa spírur ríkar að K-vítamíni. Rann- sóknir á dýrum hafa sýnt að alfalfa spírur geta mögulega minnkað bólgur og haft andoxunaráhrif. Paprikur Paprikur innihalda mikið af C-vítamíni, fólínsýru og beta- karótíni sem líkaminn breytir í A- vítamín. Paprikur eru einnig ríkar að andoxunarefnum, meðal ann- ars lúteini sem verndar sjónina. Blómkál Blómkál er trefjaríkt og inni- heldur mikið af C- og K-víta- míni. Blómkál inniheldur, líkt og brokk ólí, efnið sulforaphane sem er talið geta hindrað vöxt krabba- meinsfrumna. Þari Þari er ein fárra fæðutegunda úr plönturíkinu sem innihalda ómega-3, docosahexaenoic og eicasopentaenioc fitusýrur. Þessar fitusýrur eru mjög mikilvægar fyrir heilsu fólks og finnast aðal- lega í kjöti og mjólkurvörum. Það er misjafnt eftir þarategundum hvaða vítamín og steinefni þær geyma en flestar eru ríkar af joði sem er mikilvægt fyrir starfsemi skjaldkirtilsins. Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Sætar kartöflur koma jafnvægi á blóðsykur og gulrætur eru góðar fyrir sjónina. Tómatar inni- halda mikið af kalíumi og C-vítamíni. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :3 6 F B 0 3 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 4 -1 9 F 4 2 4 0 4 -1 8 B 8 2 4 0 4 -1 7 7 C 2 4 0 4 -1 6 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 3 2 s _ 1 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.